EIGINLEIKAR RZ
FRAMLEIDDUR MEÐ AFKÖST Í HUGA
STERKUR UNDIRVAGN
Nýtt heildrænt byggingarlag fyrir rafbíla (e-TNGA) er grundvöllur þess að við getum boðið upp á einstakan akstur. Byggingarlagið er einstaklega sterkt en þó létt og rafhlaðan er felld inn í undirvagninn undir farþegarýminu. Þetta lækkar þyngdarmiðju bílsins og veitir þannig betra jafnvægi, stýringu og viðbragð.
NÝ FJÖÐRUN
Ný gerð MacPherson-gormafjöðrunar veitir framúrskarandi viðbragð við stýringu. Jafnvægisstöng sem dregur úr óæskilegum hreyfingum skilar stöðugleika og auknum þægindum í akstri.
RAFKNÚIN E-AXLE SAMSTÆÐA
E-Axle samstæðan frá Lexus er notuð bæði að framan og aftan. Hún vinnur samhliða DIRECT4-aldrifskerfinu að því að stilla stöðu, spyrnu og orkudreifingu bílsins, allt eftir akstursskilyrðum. Fremri mótorinn framleiðir 150 kW og sá aftari 80 kW.