Lexus á Íslandi
KYNNING

KYNNTU ÞÉR LEXUS

Sýn Lexus byggist á því að fullkomna akstursánægjuna í gegnum einstakar upplifanir. Við leggjum alla áherslu á sérsniðinn lúxus, allt frá framsækinni Lexus Electrified-tækni til handunninnar og frumlegrar hönnunar.

SAGA LEXUS

Saga Lexus er sprottin af metnaði til að heilla. Í upphafi fékk starfsfólk Lexus það verkefni í hendur að skapa lúxusbíl sem bæri af í samanburði við bestu lúxusbíla þess tíma. Nú eru meira en þrjátíu ár síðan og enn sér ekki í mörk Lexus.

Allir þættir í sögu Lexus eru samofnir ígrundaðri natni, allt frá spennandi hugmyndabílum til nýstárlegrar hönnunar. Þar fara saman vandað Takumi-handverk og japönsk omotenashi-menning, sem felur í sér getuna til að sjá fyrir þarfir þínar. Niðurstaðan er áhersla á þarfir einstaklingsins. Af metnaði okkar til að heilla óx hin ótrúlega upplifun með Lexus.

Af metnaði okkar til að heilla óx hin ótrúlega upplifun með Lexus.

TAKMARKALAUS NÝSKÖPUN

HUGVITSSAMLEG TÆKNI

Uppgötvaðu öryggi, tengimöguleika og afþreyingartækni sem þróuð eru með verkfræðilegt innsæi okkar að leiðarljósi og hönnuð með ökumanninn í huga.
ENDURBÆTT HÖNNUN

EINSTAKT HANDVERK

Kynntu þér sjónrænan samhljóm hinnar fornu japönsku Takumi-listar og einkennandi, nútímaleg hönnunareinkenni Lexus-bílanna.
UPPLIFÐU MEIRA

EXPERIENCE AMAZING

Hefur þú upplifað öryggi og þægindi í akstri samtímis eftirvæntingu og gleði? Nú er tíminn fyrir ótrúlega upplifun með Lexus.