Skip to Main Content (Press Enter)
KYNNTU ÞÉR LEXUS

Í leit að ástríðu

Frá því að Lexus var stofnað árið 1989 höfum við komist að því að ökumenn lúxusbílanna okkar hafa mikla ástríðu fyrir fínni og einstakari hlutum lífsins. Við höfum sérstaklega tekið eftir þrenns konar ástríðu sem við deilum með viðskiptavinum okkar, tennis í heimsklassa, gómsætri matargerð og nýjungum í hönnun.

Í gegnum fjölmörg samstarfsverkefni, keppnir og viðburði höfum við búið til fjölbreyttar, ómetanlegar upplifanir fyrir viðskiptavini okkar og vini. Glæsileika og dýpt Lexus-upplifunarinnar er deilt langt út fyrir ökumannssætið.

Lestu áfram til að sjá hvernig.

Fara fullkomlega saman

Lexus X tennis

Nákvæmni, afköst og fullkomnun. Þrír eiginleikar sem eru kjarni Lexus og tennis í heimsklassa.  

Bestu tennisleikarar heims í dag og hinir þekktu Takumi-verkfræðingar, -hönnuðir og -handverksfólk hjá Lexus deila sama viljanum, þrautseigjunni og hæfileikunum til að komast á toppinn.  

Frá því að Lexus hóf samstarf við ATP-mótaröðina og nokkur ATP- og WTA-mót hefur Lexus orðið þýðingarmikill bakhjarl tennis á alþjóðavísu.

Veisla fyrir skilningarvitin

Lexus X matarupplifun

Við hjá Lexus störfum í anda Omotenashi – hvernig við þjónum viðskiptavinum okkar og eigendum á fágaðan hátt.  

Líkt og veitingastaður með Michelin-stjörnu þurfum við að sjá fyrir þarfir, fara fram úr væntingum og bjóða framúrskarandi og eftirminnilega upplifun.  

Til að sýna ástríðu okkar fyrir frábærri matseld, þar sem þjónustan er ekki síðri, höfum við þróað röð matreiðsluviðburða í samvinnu við nokkra af hæfileikaríkustu matreiðslumeisturum heims. Við höfum einnig nýlega svipt hulunni af eftirtektarverða Omotenashi-matarvagninum okkar sem mun veita óviðjafnanlega gestrisni um alla Evrópu.

Útlit, notagildi og fegurð

Lexus X listir og hönnun

Lexus væri ekki í fararbroddi í bílahönnun á heimsvísu án þess að fylgjast með listum og hönnun í heiminum. Að sækja innblástur til ótal listgreina, iðkenda og kennara er mikilvægur hluti af vinnu okkar og því höfum við lagt mikla áherslu á að þróa og styðja við nýtt hæfileikafólk með árlegum hönnunarverðlaunum Lexus og þátttöku okkar á hönnunarvikunni í Mílanó. Fylgstu með hér til að fá nánari upplýsingar.