1. Kynntu þér Lexus
  2. Tæknilausnir
  3. Nýsköpun í nýrri hugsun
Lexus á Íslandi
 

NÝSKÖPUN Í NÝRRI HUGSUN

NÝ TÆKNI, ÓVÆNT NOTKUNARSVIÐ

Ólíkt öðrum þá notum við ekki bara fyrirliggjandi tækni í óbreyttri mynd. Við notum hana til að sækja innblástur og skapa ný verkefni hjá Lexus. Í okkar huga eru nýjustu eiginleikarnir stökkpallur fyrir nýtt notkunarsvið, nýsköpun og þróun. Eitt er á tæru: Við notum nýjustu tækni á nýstárlegan og óvæntan hátt.

 

SNJALLARI SKÖNNUN

Við hugsuðum út fyrir kassann og fengum að láni nýjustu sneiðmyndatækni í læknavísindunum. Hvers vegna? Vegna þess að við komum auga á óvænt og verðmætt notkunarsvið fyrir Lexus.

Hefðbundnar aðferðir við vélarskoðun reiða sig á vélrænt eftirlit og ytri skoðun. En við hjá Lexus viljum geta gengið úr skugga um að innra byrði allra véla sé fullkomið.

Með sneiðmyndatöku eða CAT-skönnun getum við kíkt inn í vélarnar með þrívíddarmyndum. Þar getum við komið auga á galla með mikilli nákvæmni. Þessi óvenjulega aðferð skilaði óviðjafnanlegum árangri.

SNJÖLL AÐSTOÐ

Þegar þú situr við stýrið vinna skilningarvitin á fullu við að tryggja öryggi þitt. En hvað ef þau nytu aðstoðar „skilningarvita“ bílsins? Háþróuð öryggiskerfi okkar ganga lengra en skynfæri mannsins til að aðstoða þig og farþega þína á snjallan hátt.

AKSTURSÖRYGGI

Öryggi er sá þáttur sem skiptir hvað mestu máli við innleiðingu tækni og nýjunga. Við vinnum stöðugt að því að þróa þá eiginleika sem þegar eru til staðar og nýja aðstoðareiginleika.

Útkoman? Bílarnir okkar verða snjallari og öruggari með hverjum degi. Auk annarra eiginleika er það LSS+ öryggiskerfið sem verndar þig þegar þú ert á vegum úti og veitir snjalla ökumannsaðstoð þegar þörf er á.

ÓHEFÐBUNDIN EFNI

Með því að sameina náttúruna og tæknina nýtum við lífræn efni á nýjan hátt til að finna umhverfisvænni lausnir. Einkennandi umhverfisþættir í innanrýminu laða fram hina náttúrulegu fegurð. Frágangurinn er nýtískulegur en jafnframt hagnýtur með fjölda nýstárlegra eiginleika.

 

BAMBUSHLJÓMBURÐUR

Náttúran og tæknin vinna saman í öflugum hátölurum í Lexus CT og útkoman er með ólíkindum. Við notum bambus á algjörlega nýjan hátt sem skilar hreint ótrúlegum hljómburði.

Hljóðhimnurnar í hátölurunum eru formaðar úr efni þar sem blandað er saman svokölluðu „plant opal“ – sem er örsmá nálarlaga bygging sem finna má á jaðri bambuslaufa – og viðarkolum. Himnan er létt en hljóðmikil, nógu sterkbyggð til að ná háum tónum með nákvæmni en nógu sveigjanleg til að draga úr eigin titringi.

PRÓFANIR Í SÝNDARVERULEIKA

Við notum sýndarveruleika til að færa prófanir á næsta stig. Nú er hægt að líkja eftir akstursskilyrðum og viðbrögðum ökumanns sem aldrei fyrr. Með því skapa ítarlega upplifun getum við safnað upplýsingum frá raunverulegum ökumönnum um fjölda öryggiseiginleika. Við notum þær svo til að bæta og fullkomna tæknina okkar og auka öryggi þitt og hugarró.

LÍKT EFTIR AKSTRI

Inni í svartri hvelfingu er Lexus LS. Hann er umluktur skjáum sem sýna raunsæjar myndir af akstri innan og utan borgar. Hvelfingin öll er látin hreyfast með risastórum tjökkum sem geta hallað henni og snúið í hringi, til að herma eftir beygjum, hröðun og hraðaminnkun. Hljóðupptökur af vélarhávaða, titringur frá vegi og vindgnauð fullkomna sýndarveruleikaupplifunina.

Möguleikarnir á því hverju hægt er að líkja eftir eru endalausir. Með því til dæmis að líkja eftir tilbreytingarlausum akstri er hægt að kanna aðstæður sem valda þreytu og hjálpa þannig til við að þróa snjöll viðvörunarkerfi. Takahiko Murano, sem sér um að hanna prófanirnar, segir: „Þetta er prófun sem ómögulegt er að framkvæma í raunverulegum aðstæðum.“