1. Eigendur
  2. Lexus relax
Lexus á Íslandi

LEXUS RELAX

Áhyggjulaus í allt að 10 ár

KYNNTU ÞÉR LEXUS RELAX

 

Frá 1. júlí 2021 býður Toyota á Íslandi eigendum Lexus bifreiða sem fluttar eru inn af Toyota á Íslandi upp á þann kost að framlengja ábyrgðina á viðkomandi bifreiðum um 12 mánuði / 15.000 km í senn – hvort sem fyrr kemur – eftir að 5 ára eða 7 ára ábyrgð frá innflutningsaðilanum er útrunnin eða í þann mund að renna út.  Það eina sem eigandi bifreiðarinnar þarf að gera er að koma með hana í þjónustuskoðun hjá viðurkenndum þjónustuaðila Innflytjanda.

Lexus Relax er í boði þar til Lexus bifreið hefur náð 10 ára aldri eða verið keyrð 200.000 km eða meira – hvort sem fyrr kemur.

Listi yfir viðurkennda þjónustuaðila innflytjanda

Er bíllinn þinn gjaldgengur í Lexus Relax?

Eftirfarandi þættir þurfa að vera til staðar til þess að Lexus bíll geti notið Lexus Relax 12 mánaða / 15.000 km ábyrgðar:

  • Bíllinn er innfluttur af Toyota á Íslandi
  • Bíllinn kemur í þjónustuskoðun til viðurkennds þjónustuaðila innflytjanda. Vert er að hafa í huga að verð fyrir þjónustuskoðun getur verið mismunandi á milli viðurkenndra þjónustuaðila.
  • A.m.k. 48 mánuðir eru liðnir af 5 ára ábyrgð og 72 mánuðir af 7 ára ábyrgð Toyota á Íslandi.
  • Bíllinn er keyrður minna en 200.000 kílómetra.
  • Bíllinn er yngri en 10 ára.

Gildistími Lexus Relax

Viðbótarábyrgðin sem fæst með Lexus Relax gildir í 12 mánuði frá og með þeim degi sem þú mætir með bílinn í þjónustuskoðun hjá viðurkenndum þjónustuaðila innflytjanda eða í 15.000 km – hvort sem fyrr kemur.