1. Kynntu þér Lexus
  2. Hugmyndabílar
  3. lf fc Hugmyndabíll
Lexus á Íslandi
 

SEDAN BÍLL MEÐ VETNISEFNARAFAL

 

Spennandi framtíðarsýn. Fyrsti efnarafalsknúni hugmyndabíllinn. LF-FC er fjögurra dyra sportbíll sem býr yfir áreynslulausum glæsileika og er knúinn byltingarkenndu aldrifi. Hönnun LF-FC-bílsins er ekki bara nýstárleg heldur endurskilgreinir hún væntingar þínar.

 

Ný kynslóð LF-FC hugmyndabílsins vakti mikla athygli á bílasýningunni í Tókýó árið 2015, enda var hér kynntur til sögunnar sannkallaður afburða fólksbíll.

 

"LF-FC ENDURSPEGLAR FRAMSÆKNA GÆÐA HÖNNUN OG SÝN OKKAR Á TÆKNIÞRÓUN FRAMTÍÐARINNAR SEM BÍÐUR HANDAN VIÐ HORNIÐ."

Tokuo Fukuichi, forstjóri Lexus International

01

HEILLANDI EINFALDLEIKI

Sama flæðandi þemað einkennir LF-FC-bílinn, ásamt einkennandi þrískiptum afturljósum. Þegar þú sérð heildarútlit þessa einstaka hugmyndabíls muntu kunna að meta djarft útlit hans. Aðeins þá er hinn sanni andi LF-FC-bílsins afhjúpaður.
02

FRAMSÝN HÖNNUN

Flæðandi topplína LF-FC-bílsins gerir hann sérlega vel hannaðan til aksturs á beinum vegum en hann er ekki síður skemmtilegur í akstri á hlykkjóttum vegum. 21 tommu álfelgur með koltrefjastyrktum plastbrúnum gefa þessum fallega hannaða bíl enn glæsilegra útlit.
03

KYNNTU ÞÉR LF-FC

Komdu með inn í framtíðina, fulla af nýstárlegri tækni og munaði. Þegar þú sest inn í bílinn tekur fyrirferðarlítil heilmynd á móti þér sem varpað er yfir miðstokkinn. Sjálfstýringu, upplýsinga- og afþreyingarkerfi sem og loftræstingu er stjórnað með snertilausri tækni sem bregst við einföldum handahreyfingum.

HRÍFANDI MUNAÐUR

Innanrýminu er skipt í tvennt; efri hlutinn er opinn og breiður og gerir ökumanni kleift að einbeita sér að veginum án þess að finnast að sér þrengt. Séð úr augnhæð virðast anilínleðurklædd framsætin svífa í mjúkri heild með hurðunum og mælaborðinu.

AFLRÁS MEÐ VETNISEFNARAFAL

Þessi hugmyndabíll er með aldrifi knúnu aflrás með vetnisefnarafal, sem dreifir togi af mikilli nákvæmni á milli fram- og afturhjólanna. Bestu þyngdardreifingunni fyrir LF-FC er náð með því að staðsetja vetnisefnarafalinn á afturhluta bílsins, stjórneininguna á framhlutanum og vetnisgeymana í T-laga uppsetningu..

HUGMYNDARÍK TÆKNI

Sjálfvirk aksturstækni með enn þróaðri umferðargreiningarbúnaði, spátækjum og matseiginleikum tryggir öllum í bílnum örugga og skilvirka akstursupplifun – við stefnum að árekstralausri umferð.