1. Kynntu þér Lexus
  2. Öryggi
  3. Stillanlegt háljósakerfi (AHB) +
Lexus á Íslandi
 

STILLANLEGT HÁLJÓSAKERFI (AHS)

 

Stillanlega háljósakerfið er tilbrigði við sjálfvirkt háljósakerfi. Kerfið greinir veginn og bregst við aðstæðum. Þarna mynda þörfin fyrir útsýni og tillitssemi við aðra ökumenn fullkomið jafnvægi og stillanlega háljósakerfið færir þannig ökumenn í náttmyrkri áður óþekkta hugarró.

 

SJÁLFVIRK HÁLJÓS

Stillanlegt háljósakerfi nýtir snjallbúnað til að kveikja eða slökkva á stökum LED-ljósum í hverri háljósastæðu og stjórna þannig ljósdreifingunni með hárnákvæmum hætti. Kerfið notar myndavél ofan á bílnum til að greina ljós frá ökutækjum sem nálgast framundan og lýsir mjúklega upp veginn, en forðast af mikilli nákvæmni að blinda ökumenn sem aka á undan eða úr gagnstæðri átt.

Þetta gerir ökumanni kleift að njóta þægilegra og vel lýstra ökuferða að kvöldi til og tryggir frábært útsýni, samhliða afslappaðri akstursskilyrðum, án þess að sífellt þurfi að skipta um stillingar ljósanna úr háljósum í lággeisla.

TVEGGJA ÞREPA STILLANLEGT HÁLJÓSAKERFI

Tvegga þrepa stillanlegt háljósakerfi felur í sér enn frekar þróun stillanlega háljósakerfisins og gerir kleift að stýra ljóskeilunni enn betur. Kerfið er með tvær raðir tuttugu og fjögurra LED-ljósa í tveimur röðum sem slökkt er og kveikt á sjálfkrafa til að tryggja nákvæma stjórn á lýstum og ólýstum svæðum og gera kleift að deyfa ljósið utan um ökutækið að framan en lýsa áfram á hluti eins og vegaskilti fyrir framan bílinn.

Fyrirvari: Notið ekki öryggiskerfi Lexus í stað hefðbundins aksturs við neinar kringumstæður og lesið leiðbeiningarnar vandlega áður en kerfið er notað. Ökumaður ber ævinlega ábyrgð á öryggi við akstur.

 

 

GERÐIR MEÐ STILLANLEGU HÁLJÓSAKERFI

 

 

UX
UX Comfort
Frá 9.670.000 kr.
NX
NX Comfort
Frá 11.590.000 kr.
ES
ES Comfort
Frá 10.490.000 kr.

POST https://dxp-webcarconfig.lexus-europe.com/v1/model-filter-results/is/is?model=nx%2Ces%2Cux

 

GERÐIR MEÐ TVEGGJA ÞREPA STILLANLEGU HÁLJÓSAKERFI

 

ES
ES Comfort
Frá 10.490.000 kr.
LS
LS EXE Sedan 4 dyra (LWB)
Frá 28.360.000 kr.

POST https://dxp-webcarconfig.lexus-europe.com/v1/model-filter-results/is/is?model=ls%2Ces