Skip to Main Content (Press Enter)

Áhrif lokunar 2G og 3G

Lexus framleiðir bíla sem standast öryggis- og búnaðarkröfur sem gerðar eru af yfirvöldum í því landi þar sem bílarnir eru seldir. Hluta þess búnaðar sem krafist er að sé í bílum hér á landi ber að nota 2G eða 3G fjarskiptakerfið – sem rekið er af fjarskiptafyrirtækjum - til að koma ýmsum skilaboðum og gögnum á milli bíls og viðtakenda, jafnvel í þeim bílum hafa búnað til 4G samskipta. 

 

Áhrif lokunar 2G og 3G á eCall

ECall er búnaður sem bílaframleiðendum í Evrópu hefur verið skylt að hafa í bílum sínum frá marsmánuði 2018 – skv. Evrópusambandsreglugerð 2015/758 (með viðauka 2024/1180).   ECall kemur boðum frá bíl til Neyðarlínunnar 112 með sjálfvirkum hætti í gegnum 2G eða 3G fjarskiptakerfin, lendi bíllinn í árekstri.  Þá gangsetur eCall einnig sjálfkrafa símtal við Neyðarlínuna 112 í gegnum kerfi bílsins – sem fyrr með aðkomu 2G og 3G fjarskiptakerfanna.  

Fjarskiptafyrirtæki á Íslandi hafa tilkynnt um lokun 2G og 3G kerfanna í landinu. Lokun fjarskiptafyrirtækjanna á kerfunum mun valda því að eCall mun ekki virka. Þrátt fyrir að bílarnir virki samkvæmt reglugerðum og hafi óskerta getu til að senda frá sér boð, þá berast boðin ekki til Neyðarlínunnar 112 þegar fjarskiptafyrirtækin hafa slökkt á 2G og 3G samskiptum í landinu.   

Þessara áhrifa mun gæta á allar bifreiðar Lexus sem gerðarviðurkenndar voru fyrir 1. janúar, 2026.  Nýjar væntanlegar Lexus bifreiðar sem gerðarviðurkenndar verða í Evrópu frá og með árinu 2026 verða búnar nýrri kynslóð eCall skv. reglugerðum þar um.  

 

Áhrif lokunar 2G og 3G á Tengdar Þjónustur

Tengdar þjónustur vísa til ákveðinnar grunnþjónustu / fjarstýrðrar þjónustu í Lexus bifreiðum í gegnum Lexus Link+ appið.  Til grunnþjónustu í appinu teljast þættir eins og kílómetrastaða bifreiðar, meðan að fjarstýrðar þjónustur vísa til möguleika eins og fjarhitunar, tímsetningar hleðslu raf- og Plug-in Hybrid bíla og opnunar/læsingar bifreiðar í gegnum appið.

Grunnþjónusta 

Engin áhrif verða af lokun 2G og 3G á flestar bifreiðar Lexus sem tengjast Lexus Link+ appinu þar sem fjarskiptafyrirtæki hafa sett upp tímabundna ráðstöfun til að hægt sé að nýta eiginleika samskiptatölvu bílanna fyrir tengdar þjónustur.    Lexuseigendum verður innan tíðar boðið að uppfæra samskiptatölvu bíla sinna gegn gjaldi þannig að þeir verði óháðir fyrrgreindum ráðstöfunum fjarskiptafyrirtækjanna. Aðeins í tilvikum ákveðinna bifreiða sem búnar eru 18DCM samskiptatölvu (e. Data Communication Module) mun þessi grunnþjónusta detta út varanlega.

Fjarstýrðar þjónustur

Engin áhrif verða af lokun 2G og 3G á flestar bifreiðar Lexus sem tengjast Lexus Link+ appinu og geta nýtt gagnvirkar þjónustur þar sem fjarskiptafyrirtæki hafa sett upp tímabundna ráðstöfun til að hægt sé að nýta eiginleika samskiptatölvu bílanna fyrir tengdar þjónustur.   Í tilvikum ákveðinna bifreiða sem búnar eru 19MC DCM og 19DCM samskiptatölvum (e. Data Communication Module) þar sem áhrifa lokunar 2G og 3G verður vart verður Lexuseigendum innan tíðar boðið að uppfæra samskiptatölvur bíla sinna gegn gjaldi þannig að þeir verði óháðir fyrrgreindum ráðstöfunum fjarskiptafyrirtækjanna.   

 

Hvað með tengdar þjónustur í minni bifreið?

Á meðfylgjandi slóð má sjá hvaða tengdu þjónustur eru í boði í Lexus Link+ appinu í bifreið þinni.   Verði tengdar þjónustur óvirkar í bíl þínum sökum lokunar fjarskiptafyrirtækja á 2G og 3G fjarskiptakerfum munu sérstök skilaboð þess efnis birtast eftir innsetningu á verksmiðjunúmeri bílsins þíns.

Hvernig finn ég verksmiðjunúmerið í bifreiðinni minni?

Verksmiðjunúmer bílsins þíns getur þú fundið með því að fara inn á ökutækjaskrá hjá Samgöngustofu (með auðkenni í gegnum rafræn skilríki) og slegið inn bílnúmer þitt.  Verksmiðjunúmerið er einnig að finna í skráningarskírteini bílsins og í hurðarstaf bílstjórahurðar eða framrúðu.

Upplýsingar frá Fjarskiptastofu

Nánari upplýsingar um útfösun 2G og 3G má finna á vef Fjarskiptastofu – sjá hér að neðan: