Skip to Main Content (Press Enter)
EIGENDUR

LEXUS HEIMAHLEÐSLA

Lexus Heimahleðsla gerir upplifun þína af Plug in Hybrid eða rafbíl enn einfaldari. Lexus Heimahleðsla er fljótleg í uppsetningu og einföld í notkun, og tryggir þér hraðvirka og trausta hleðslu. Þú einfaldlega stingur bílnum í samband í innkeyrslunni eða bílskúrnum og nýtur þannig þægilegri og oft og tíðum hagstæðari* hleðslu.

*Þegar þú hleður heima og nýtir þér orkuverð utan álagstíma. Tekur ekki til greina kostnaðinn við Lexus Heimahleðslu búnaðinn.

RÉTTUR HLEÐSLUBÚNAÐUR OG RÉTTIR AUKAHLUTIR FYRIR HEIMAHLEÐSLU

Lexus Heimahleðsla gerir þína upplifun af Lexus Plug-in Hybrid eða rafbíl einfaldlega ótrúlega, enda er búnaðurinn háþróaður, öruggur og hannaður til framtíðar, einstaklega vandaður og áreiðanlegur.

  • MID-ÚTFÆRSLA

    Samþætting við Lexus Link+ appið

    Wi-Fi og Bluetooth

    RFID-sannvottun

    4G og gagnaáskrift

    Eins fasa / 7,4 kW – innstunga með loki

    Þriggja fasa / 22 kW – innstunga með loki

  • HIGH-ÚTFÆRSLA

    Með innbyggðum upplýsingaskjá. Hentar vel fyrir fyrirtækjabíla – með innbyggðum skjá og staðlaðri orkumælingu. (MID calibration)

    Samþætting við Lexus Link+ appið

    Wi-Fi og Bluetooth

    RFID-sannvottun

    4G og gagnaáskrift

    Innbyggður upplýsingaskjár

    MID vottun

    Þriggja fasa/ 11 kW – innstunga með loki (Eichrecht)

    Þriggja fasa / 22 kW – innstunga með loki

UPPSETNING Á LEXUS HEIMAHLEÐSLU

SKREF 1

Þegar þú hefur keypt nýjan Lexus Plug-in Hybrid eða rafbíl frá Lexus mun starfsmaður Lexus aðstoða þig við að finna Lexus Heimahleðslubúnað sem hentar þér best.

SKREF 2

Lexus-umboðið*** getur aðstoða þig við koma þér í samband við löggilta uppsetningaraðila.

*** Hafðu samband við söluaðila / söluráðgjafa til að fá ráðgjöf og frekari upplýsingar.

SKREF 3

Að því loknu mun uppsetningaraðilinn ganga úr skugga um samhæfi við búnaðinn og gera grein fyrir því ef einhverra viðbóta er þörf, annað hvort í síma eða öðrum fjarskiptabúnaði.

SKREF 4

Að því loknu getur þú sótt Lexus Link+ appið og skráð þig sem notanda og þá er þér ekkert að vanbúnaði og þú getur stungið Lexus Plug-in Hybrid eða -rafbílnum í samband og hlaðið.

FÁÐU ENN MEIRA ÚT ÚR AKSTRI Á RAFMAGNI MEÐ LEXUS

Akstur á rafmagni§ hefur aldrei verið einfaldari með tengdum þjónustu.

LEXUS LINK+ APPIÐ

Lexus Link+ appið gerir upplifun þína af rafkakstri enn betri með ýmiss konar aðgerðum, svo sem eftirliti með hleðslustöðu og forstillingu á hitastigi í farþegarými.

ALGENGAR SPURNINGAR UM HEIMAHLEÐSLU

Lexus Heimahleðsla er snjallhleðslubúnaður fyrir heimili sem virkar snurðulaust með Lexus bílnum þínum og Lexus Link+ appinu.

Allir rafbílar eða Plug-in Hybrid bílar með venjulegt hleðslutengi af gerð 2 geta tengst Lexus Heimahleðslu. Hafðu í huga að notkun sumra eiginleika Lexus Link+ appsins fara eftir því hvaða bíll er hlaðinn og að Lexus Link+ appið er ekki samhæft við aðra bíla en Lexus.

Með heimahleðslu verður einfalt og þægilegt að hlaða Lexus bílinn þinn. Hleðslubúnaðurinn er samþættur að fullu við bílinn þinn gegnum Lexus Link+ appið og þú ert því alltaf með stjórn á öllu.

 

Þú getur gert allt það sem þú myndir ætlast til af tengdu hleðslutæki, svo sem að hafa umsjón með notendum, hlaða gegnum fjarstýringu og skrá hleðsluloturnar þínar. Þú getur að auki nýtt þér snjallhleðslu með því að setja upp gagnvirka hleðsluáætlun** í takt við orkuverð á álagstímum og til að hlaða sem oftast utan álagstíma og lækka þannig orkukostnaðinn.

Hleðslubúnaður með fastri snúru er með innbyggðri hleðslusnúru, en hleðslubúnaður án fastrar snúru notar aðskilda hleðslusnúru. Lexus Heimahleðsla er án fastrar snúru til að tryggja sem mestan sveigjanleika.

Hleðslutíminn fer eftir tegund og gerð bílsins. Kynntu þér upplýsingarnar í tæknilýsingu þíns bíls. 

Já! Það er algjörlega öruggt að hlaða bílinn í rigningu.

Þegar hleðslubúnaðurinn hefur verið settur upp er einfalt að hlaða hann. Þú setur bara í samband og hleðslubúnaðurinn hleður bílinn – rétt eins og í hvaða öðru raftæki sem er. Það er auk þess leikur einn að velja eiginleika, svo sem tímastillta hleðslu, gegnum Lexus Link+ appið.

Já, þú getur það. Hafðu samband við rafvirkja til að fá frekari ráðgjöf. 

Það fer eftir aðstæðum hverju sinni. Hafðu samband við rafvirkja til að fá leiðbeiningar.  
§ Rafknúinn bíll er bíll sem er knúinn einum eða fleiri rafmótorum að einhverju leyti. Sumir rafknúnir bílar, þar á meðal Hybrid-bílar og Plug-in Hybrid, eru einnig með bensínvél.