1. Kynntu þér Lexus
  2. Öryggi
  3. LDA-akreinaskynjari með akreinastýringu
Lexus á Íslandi
 

LDA-AKREINASKYNJARI MEÐ AKREINASTÝRINGU

Á langferðalögum og nýjum akstursleiðum þurfa ökumenn að halda fullkominni einbeitingu og þar kemur LDA-akreinaskynjarinn þeim til hjálpar. Á meðal þeirra nýjunga sem boðið er upp á til að skerpa einbeitingu ökumannsins og auðvelda honum að halda sér á réttri akrein er stýrisaðstoð, akreinastýring og sveigjuviðvörun.

Með því að nota myndavélarskynjara ákvarðar LDA-akreinaskynjarinn stöðu ökutækisins gagnvart merkingunum á götunni. Ökumaður er því stöðugt meðvitaður um aðstæður og getur gripið til viðeigandi ráðstafana þegar þörf krefur.

LDA-akreinaskynjarinn veitir aukinn stuðning við erfiðar akstursaðstæður. Fyrsta merkið um þreytu eða einbeitingarskort ökumanns er að ökutækið fer að rása. Í Lexus-gerðum með sveigjuviðvörun er ökumaður varaður við, með hljóð- og myndmerkjum, áður en slys verður. Það er hægt að stilla hversu næm sveigjuviðvörunin er þannig að hún passi við aksturslagið þitt.

Stýrisaðstoðin eykur enn á öryggi við akstur með því að sveigja stefnu bílsins örlítið þegar stefnir í að hann rási yfir á aðra akrein og akreinastýringin viðheldur réttri stefnu þegar kveikt er á ratsjárhraðastilli ökutækisins.

Þessir eiginleikar LDA-akreinaskynjarans minnka líkurnar á slysum vegna þreytu eða einbeitingarskorts, þegar augnabliksskortur á einbeitingu gæti annars reynst hættulegur. Viðvaranir úr kerfinu auðvelda ökumanninum að fara leiðar sinnar af stillingu og öryggi.

Í gagnvirku sýnikennslunni má sjá hvernig LDA-akreinaskynjarinn virkar

Fyrirvari: Notið ekki öryggiskerfi Lexus í stað hefðbundins aksturs við neinar kringumstæður og lesið leiðbeiningarnar vandlega áður en kerfið er notað. Ökumaður ber ævinlega ábyrgð á öryggi við akstur.

GERÐIR MEÐ ÞESSUM TÆKNIBÚNAÐI

NX
NX Comfort
Frá 11.590.000 kr.

POST https://dxp-webcarconfig.lexus-europe.com/v1/model-filter-results/is/is?model=rxl%2Cnx%2Clc