Skip to Main Content (Press Enter)
Fara í valmyndFara í leitFara í neðri valmynd

MARGMIÐLUN

Margmiðlun

Stjórnstöð bílsins

Margmiðlunarkerfi Lexus er einfalt í notkun, alltaf tengt og veitir rauntímaupplýsingar þegar þeirra er þörf. Á snertiskjánum í miðju mælaborðsins færðu meðal annars skýjatengda leiðsögn með lifandi umferðarupplýsingum og þráðlausa snjallsímatengingu með Apple CarPlay® og Android Auto®. *Eiginleikar geta verið mismunandi eftir gerðum og markaðssvæðum.

Margmiðlun
  1. Grunnþjónusta
    1. Lexus Link+ appið birt á margmiðlunarskjá Lexus
      Persónulegar stillingar í bílnum
      Í margmiðlunarkerfinu geturðu tengt Lexus Link+ notandasniðið þitt og vistað stillingar fyrir hliðarspegla, uppáhaldsáfangastaði, tengiliði og miðla. Stillingarnar eru þá tilbúnar næst þegar þú ekur bílnum.
      Algengar spurningar og kennslumyndbönd
    2. Apple CarPlay® birt á margmiðlunarskjá Lexus
      Snjallsímatenging
      Tengdu samhæfan snjallsíma þráðlaust með Bluetooth, Apple CarPlay® eða Android Auto®.
    3. Einstaklingur situr í ökumannsrými Lexus
      Forhitun rafhlöðu
      Forhitun rafhlöðunnar er stjórnað af margmiðlunarskjánum og tryggir að rafhlaðan í rafbílum Lexus nái kjörhitastigi. Þannig fæst betri orkunýtni, hraðari hleðsla og aukin drægni.
      Kynntu þér drægni og hleðslu
    4. Einstaklingur notar skýjaleiðsögn Lexus
  2. Uppfærslur á margmiðlun
    1. * Þjónusta og framboð geta verið mismunandi eftir gerðum og mörkuðum.
      Einstaklingur notar skýjaleiðsögn Lexus
      Skýjaleiðsögn
      Veldu bestu leiðina með rauntímaupplýsingum um umferð og viðvörunum um hraðamyndavélar. Með Lexus Link+ geturðu einnig sent upplýsingar um áfangastað í bílinn áður en lagt er af stað.
      Skoða upplýsingasíður Lexus
    2. Framhluti innanrýmis Lexus
      Leiðarskipulag fyrir rafbíla með skýjaleiðsögn
      Í rafbílum Lexus bætir skýjaleiðsögnin hleðslustöðvum sjálfkrafa við leiðina. Ráðlagðar stöðvar eru uppfærðar eftir hleðslustöðu rafhlöðunnar og akstursskilyrðum hverju sinni.
    3. *Þjónusta og framboð geta verið mismunandi eftir gerðum og mörkuðum.
      Raddstýring birt á margmiðlunarskjá Lexus
      Raddstýring
      Stjórnaðu búnaði, upplýsingum og afþreyingu í bílnum með einfaldri „Hey Lexus“ skipun. Lækkaðu hitann með því að segja „Hey Lexus, turn down the heat“ eða opnaðu gluggan með því að segja „Hey Lexus, open the window“.
      Skoða upplýsingasíður Lexus
    4. Hugbúnaðaruppfærsla birt á margmiðlunarskjá Lexus
      Alltaf uppfært
      Bíllinn sækir nýjan hugbúnað þráðlaust um leið og hann verður í boði. Uppfærslurnar eru þér að kostnaðarlausu og tryggja að bíllinn noti nýjustu útgáfu hugbúnaðarins. Þannig fær margmiðlunarkerfið reglulega nýja eiginleika og endurbætur.

Margmiðlunarkerfi Lexus

Hannað fyrir þinn Lexus

Hver Lexus er búinn margmiðlunarkerfi sem er hannað til að styðja við eiginleika og búnað viðkomandi bíls.

Margmiðlunarkerfi
  1. LexusConnect
    1. *Þjónusta og framboð geta verið mismunandi eftir gerðum og mörkuðum.
      LexusConnect á margmiðlunarskjá Lexus
      LexusConnect
      LexusConnect er nýjasta kynslóð margmiðlunarkerfa Lexus. Kerfið endurskilgreinir stafræna notendaupplifun í bílnum með sérsniðanlegri heimaskjámynd, innbyggðu Spotify-appi, snjallaðstoð, viðvörunum um færanlegar hraðamyndavélar og akstursupptöku.
    2. Einstaklingur opnar Lexus Link+ appið í snjallsíma
      LexusConnect margmiðlun og Lexus Link+ appið
      LexusConnect margmiðlunarkerfið og Lexus Link+ appið vinna saman til að veita þér betri yfirsýn og meiri stjórn á bílnum. Með tengdum þjónustum færðu aðgang að eiginleikum sem gera aksturinn einfaldari, þægilegri og tengdari.
      Skoða áskriftarleiðir
    3. Einstaklingur notar LexusConnect á margmiðlunarskjá Lexus
  2. Lexus Link Connect & Lexus Link Pro
    1. *Þjónusta og framboð geta verið mismunandi eftir gerðum og mörkuðum.
      Einstaklingur notar LexusConnect á margmiðlunarskjá Lexus
      Lexus Link Connect​
      LexusConnect er skýjatengt margmiðlunarkerfi sem býður upp á leiðsögn*, snjallsímatengingu, raddstýringu* og tengdar þjónustur. Lexus Link Connect er stjórnað með margmiðlunarkerfinu og Lexus Link+ appinu.
    2. Innanrými Lexus
      Lexus Link Connect og Lexus Link+ appið
      Með LexusConnect margmiðlunarkerfinu og Lexus Link+ appinu færðu aðgang að frekari tengdri þjónustu í gegnum mismunandi áskriftarleiðir.
      Skoða áskriftarleiðir
    3. Einstaklingur notar Lexus Link Pro á margmiðlunarskjá Lexus
      Lexus Link Pro​
      Lexus Link Pro er öflugt margmiðlunarkerfi, með stórum snertiskjá í hárri upplausn og leiðsögukerfi sem byggir bæði á skýjaþjónustu og innbyggðum kortagögnum. Innbyggða leiðsögnin virkar einnig þar sem netsamband er takmarkað.
    4. *Þjónusta og framboð geta verið mismunandi eftir gerðum og mörkuðum.
      Skjámynd úr Lexus Link+ appinu
      Lexus Link Pro og Lexus Link+ appið
      Með Lexus Link Pro og Lexus Link+ appinu færðu aðgang að snjall- og fjarþjónustu sem er í boði með áskrift.*
      Skoða áskriftarleiðir
  • Finndu tengimöguleika bílsins

  • Hver Lexus er búin margmiðlunarkerfi sem er sérsniðið að eiginleikum og búnaði bílsins til að tryggja sem bestu notendaupplifun. Kynntu þér alla möguleika Lexus-bílsins þíns með tengileitinni. Sláðu inn verksmiðjunúmer bílsins (VIN) til að sjá hvaða eiginleikar, þjónustur og tengdar lausnir eru í boði fyrir þinn bíl.

Algengar spurningar

Til að virkja Snjallþjónustur þarftu að sækja Lexus Link+ appið og tengja það við bílinn eða bílana þína. Smelltu hér (Opens in new window) til að horfa á myndband sem leiðir þig í gegnum fyrstu skrefin.

Já. Í einkabílum getur kerfið hlaðið síðast notaða sniðinu (LLP) án auðkenningar, en það á aðeins við um tilteknar gerðir. Notendur geta hvenær sem er kveikt eða slökkt á LLP-eiginleikanum í stillingum.

Notandasnið geymir persónulegar stillingar, svo sem stöðu sætis og spegla, valkosti í margmiðlunarkerfi og stillingar hita- og loftstýringar. Hægt er að hlaða sniðinu sjálfkrafa þegar kerfið ber kennsl á notandann.

OTA (Over-The-Air) gerir kleift að uppfæra hugbúnað bílsins í gegnum nettengingu hans. Þannig er bæði hægt að bæta við nýjum eiginleikum og lagfæra vandamál.

Raddaðstoðin þróar hefðbundna raddstýringu áfram og gerir notendum kleift að stjórna eiginleikum bílsins á eðlilegan og notendavænan hátt með raddskipunum.

Í Lexus Link+ appinu geturðu séð hvaða eiginleikar og möguleikar eru í boði fyrir bílinn þinn, ásamt upplýsingum um áskriftarþjónustur.