Áskriftarleiðir
Fáðu meira út úr Lexus með tengdum þjónustum
Fáðu meira út úr bílnum með áskrift að Tengdum þjónustum. Með nýjum Lexus fylgir gjaldfrjálst prufutímabil og þegar því lýkur getur þú valið þá áskriftarleið sem hentar þér og þínum þörfum. Við fyrstu áskrift færðu einn mánuð til viðbótar án endurgjalds og getur því áfram nýtt alla þá snjöllu eiginleika sem þjónusturnar bjóða upp á.
ÁSKRIFTIR
-
Fjarstýrðar þjónustur
-
Við stjórnvölinn, hvar sem er
Fjarstýrðar þjónustur gera daglegt líf með Lexus enn þægilegra. Með áskrift getur þú undirbúið hitastigið í farþegarýminu áður en lagt er af stað, læst og opnað bílnum úr fjarlægð og látið hættuljósin blikka til að auðvelda þér að finna bílinn.Skoða upplýsingasíður -
*Lengd gjaldfrjálsa prufutímabilsins er mismunandi eftir bílgerðum og þjónustum.
Prufuáskriftir og verð
Með nýjum Lexus sem styður Fjarstýrðar þjónustur fylgir gjaldfrjálst prufutímabil. Að því loknu getur þú haldið áfram að nýta þjónustuna með því að velja þá áskriftarleið sem hentar þér best.* -
-
-
Snjallbíll
-
Allar upplýsingar innan seilingar í bílnum
Fjarstýrðar þjónustur veita þér aðgang að fleiri snjöllum eiginleikum. Stilltu hitastigið í farþegarýminu áður en þú leggur af stað og fáðu umferðarupplýsingar í rauntíma í leiðsögukerfinu. Með raddstýringu getur þú einnig stjórnað ýmsum eiginleikum, fengið upplýsingar og valið afþreyingu án þess að taka hendurnar af stýrinu. Segðu einfaldlega „Hey Lexus“ til að virkja snjalla raddaðstoð.Skoða upplýsingasíður -
Þjónusta, gjaldgengi og prufuáskriftir eru mismunandi á milli gerða og markaða
Prufuáskriftir og verð
Fjartengd þjónusta fylgir nýjum bílum í ákveðinn tíma, að því gefnu að viðkomandi bíll styðji þjónustuna. Lengd tímabilsins getur verið mismunandi eftir gerð bíls og þjónustu. Að því loknu kann að vera hægt að halda þjónustunni áfram gegn gjaldi, þar sem það á við. -
-
-
Stafrænn snjalllykill
-
Stafrænn snjalllykill – ekki þörf á hefðbundnum lykli
Stafrænn snjalllykill opnar Lexus bílinn þinn sjálfkrafa þegar þú nálgast hann. Engin þörf á lykli. Þú getur einnig veitt allt að fjórum viðbótarökumönnum aðgang að bílnum í appinu.Skoða upplýsingasíður -
Þjónusta, gjaldgengi og prufuáskriftir eru mismunandi á milli gerða og markaða.
Prufuáskriftir og verð
Gjaldfrjálst prufutímabil fyrir stafrænan snjalllykil fylgir gjaldgengum bílum. Lengd prufutímabilsins getur verið mismunandi eftir gerð bíls og þjónustu. Að prufutímabilinu loknu kann að vera hægt að halda þjónustunni áfram gegn gjaldi, þar sem það á við. -
-
-
Tengja & tryggja öryggi (Connect & Secure)
-
Alger hugarró
Auktu öryggi bílsins með Tengja og tryggja öryggi (e. Connect & Secure). Þjónustan býður meðal annars upp á endurheimt ökutækis (e. Car Theft Assistant), fjarstýrða ræsivörn og akstursupptöku og veitir þér aukið öryggi,Skoða upplýsingasíður -
Hafðu í huga: þjónusta, gjaldgengi og prufuáskriftir eru mismunandi á milli gerða. Sum þjónusta er ekki í boði með prufuáskrift.
Prufuáskriftir og verð
Hægt er að fá gjaldfrjálsa prufuáskrift í eitt ár, fjögur ár eða 10 ár, allt eftir gjaldgengi viðkomandi bíls. Að prufuáskriftinni lokinni er eftirfarandi verð greitt fyrir áskriftir: 9,99 evrur fyrir mánaðaráskrift, 99,99 evrur fyrir ársáskrift og 299,99 evrur fyrir fjögurra ára áskrift.
-
Algengar spurningar
- Allar
- Áskriftarleiðir
Með því að velja söluaðila auðveldar þú okkur að tengja kaupin við réttan söluaðila og tryggja rétta skráningu og samþættingu þjónustunnar. Val á söluaðila er þó valfrjálst og þú getur lokið við kaupin án þess að velja söluaðila.
Þegar prufutímabilinu lýkur geturðu keypt áskrift til að halda áfram að nota þjónustuna. Ekki er hægt að kaupa áskrift áður en prufutímabilinu lýkur.
Hafðu eftirfarandi í huga varðandi uppsögn áskrifta og endurgreiðslur:
- Ef mánaðaráskrift er sagt upp er áskriftargjaldið ekki endurgreitt. Áskriftin verður hins vegar ekki endurnýjuð að yfirstandandi áskriftartímabili loknu.
- Ef ársáskrift eða fjögurra ára áskrift er sagt upp getur þú átt rétt á hlutfallslegri endurgreiðslu, reiknaðri út frá fjölda mánaða sem eftir eru af áskriftartímabilinu.
- Ef þú segir áskrift upp innan 14 daga frá upphafi hennar áttu rétt á fullri endurgreiðslu, óháð áskriftarleið. Þetta á ekki við um prufutímabil.
- Réttur til 14 daga fullrar endurgreiðslu gildir aðeins einu sinni.
Nánari upplýsingar er að finna í notkunarskilmálum.