Skip to Main Content (Press Enter)

Fara í valmynd

Fara í leit

Fara í neðri valmynd

Síðan er að hlaðast

LEXUS RX

BYLTINGARKENNDUR HYBRID SPORTJEPPI

Rafmagnað afl og staðfesta geislar af honum hvert sem litið er og þegar inn er komið bíður „Tazuna“-ökumannsrými sem er miðað að bílstjóranum, með leðurlausu áklæði ef þess er óskað. Til að fá „ótrúlega upplifun“ beint í æð þarf ekki annað en að aka nýja RX 450h+ Plug-in Hybrid bílnum, afkastamikla RX 500h Hybrid bílnum eða RX 350h sjálfhlaðandi Hybrid bílnum til að skilja hvað við meinum.

  • AFGERANDI SPORTJEPPA HÖNNUN

    Einstaklingur nálgast lögðum Lexus RX

    Með glæsilegu lúxusútliti sínu er RX skarpur, stílhreinn og kraftmikill.

  • RX 500H SPECIAL EDITION

    Horft framan á Lexus RX 500h á akstri

    Í tilefni af 35 ára afmæli Lexus bjuggum við til hinn ótrúlega nýja RX 500h Special Edition með sérhönnuðum 21” felgum og gljásvörtum áhersluatriðum.

  • BYLTINGARKENND HYBRID- OG PLUG-IN HYBRID TÆKNI

    Einstaklingur stingur hleðslusnúru í Lexus RX

    Veldu fjórðu kynslóð RX 350h Hybrid, nýjan RX 450h+ Plug-in Hybrid eða hinn afkastamikla og spennandi RX 500h Hybrid.

  • ÁHERSLA LÖGÐ Á ÖKUMANNINN OG TAKUMI

    Ökumaður situr í Lexus RX

    Í „Tazuna“-ökumannsrýminu er áhersla lögð á ökumanninn, það er búið 14“ Lexus snertiskjá og þú getur einbeitt þér að veginum fram undan en finnur einnig fyrir kunnáttu „Takumi“-handverksfólksins okkar.

  • ÍBURÐARMIKILL HLJÓMUR

    Mark Levinson® hátalari innan í Lexus

    Njóttu sérhannaða 21 hátalara Mark Levinson® Premium Surround hljóðkerfisins á meðan S-Flow hita- og loftstýringin eykur þægindin.

  • SJÁLFSÖRYGGI TIL AÐ NJÓTA

    Loftmynd af Lexus RX á ferð um fjölfarin stræti

    Lexus Safety System + er eins og að hafa sinn eigin aðstoðarökumann. Árekstrarviðvörunarkerfið getur nú greint mótorhjól að degi til og gangandi vegfarendur í myrkri.

Forced client side injection based on cached strategy

POST https://dxp-webcarconfig.lexus-europe.com/v1/grade-selector/is/is?modelId=ac7ecf2e-0f39-4e44-86b2-9db3e1ce6577&gad_source=5&gad_campaignid=23821898772&gclid=EAIaIQobChMItMbKr7L6lAMVMMcRCB3GLC2OEAEYASAAEgJH8vD_BwE

TILFINNING „LEXUS ELECTRIFIED“-HÖNNUNAR

LÁTTU Á ÞÉR BERA

Saga Lexus RX er spennandi allt frá upphafi, enda er hann einstakur sportjeppi sem vekur mikla athygli. Hönnuðir okkar bjuggu til bíl sem geislar af staðfestu hvert sem litið er. Ótrúlega stöðugur og rúmgóður með kraftmikið yfirbragð sem fer ekki fram hjá neinum, jafnvel í kyrrstöðu. Þú finnur að þú átt spennandi akstursupplifun í vændum.

LÚXUSHÖNNUN
  1. SÍGILD HÖNNUN RX
    1. Nærmynd af grillinu á Lexus RX
      SNÆLDULAGA YFIRBYGGING, SPORTLEGUR TOPPUR
      „Snældulaga yfirbyggingin“, löng vélarhlífin og 21" felgur sjá til þess að RX sker sig úr. Þetta afgerandi útlit er undirstrikað með einkennandi grillinu ásamt glæsilegum, þreföldum LED aðalljósum. Sportlegur toppurinn og svört stoð að aftan ljá bílnum einstakt útlit um leið og langt hjólhaf og mótaðar línur gera hann enn þróttmeiri að sjá.
      REYNSLUAKTU RX
      HANNAÐU ÞINN NÆSTA LEXUS RX
    2. Samfellt ljós þvert yfir afturendann á Lexus RX
      EINKENNANDI ÚTLIT LEXUS
      Að aftan falla einkennandi Lexus ljósin í einni línu saman við mikla sporvídd sportjeppans og gefa honum sterklegan svip á meðan LEXUS merkið skapar stílhreint og nútímalegt útlit. Litahönnuðir RX nýttu sér nýja og spennandi litatóna til að leggja áherslu á stílhreint útlit hans.
      REYNSLUAKTU RX
      HANNAÐU ÞINN NÆSTA LEXUS RX
    3. Nærmynd af felgu Lexus RX
      NJÓTTU FALLEGRA FELGA
      Comfort útfærslur eru með 5 arma 19” felgur með dökkgrárri sanseraðri áferð og vélunnum smáatriðum, sem undirstrika kraftmikið yfirbragð RX. Executive útfærslur eru með dökkgráa sanseraða áferð á 20 arma 21" felgunum. Þessi 20 arma 21" felga er hönnuð fyrir lúxusútfærslur og er með fallegri sanseraðri áferð og vélunnum smáatriðum.
      REYNSLUAKTU RX
      HANNAÐU ÞINN NÆSTA LEXUS RX
    4. Lexus F SPORT merki utan á bílnum
      RX F SPORT FÆR HJÖRTUN TIL AÐ SLÁ HRAÐAR
      RX 500h F SPORT færir sportlegt yfirbragð RX upp á næsta stig með annarri útfærslu á framgrilli, svuntum og straumlínulöguðum fram- og afturstuðurum. 10 arma mattsvartar 21" felgur með samlitum hemlaklöfum að framan undirstrika þetta útlit.
      REYNSLUAKTU RX
      HANNAÐU ÞINN NÆSTA LEXUS RX
    5. Hliðarsýn af Lexus RX 500h
      RX 500h SPECIAL EDITION
      Í tilefni af 35 ára afmæli okkar völdum við að búa til sérhannaðan nýjan RX: RX 500h Special Edition. Gljásvartir straumlínulagaðir listar undirstrika einstöku 21“ gljásvörtu álfelgurnar með 5 tvískiptum örmum og ljá bílnum hátíðlega stemningu.
      REYNSLUAKTU RX
      HANNAÐU ÞINN NÆSTA LEXUS RX
    6. Innanrými Lexus RX
  2. INNANRÝMI TAKUMI-MEISTARANNA
    1. Lexus RX Tazuna innanrýið
      LISTASMÍÐ FRÁ TAKUMI-HANDVERKSFÓLKI
      Vertu vitni að óviðjafnanlega Tazuna ökumannsrýminu, búnu hágæðaleðri og rúskinni með Takumi handbragði. Áklæðið er skreytt L-tákni Lexus og gefur bílnum það sérhannaða útlit sem hönnuðir innanrýmisins voru að leita eftir.
      KYNNTU ÞÉR HANDVERKIÐ
      HANNAÐU ÞINN NÆSTA LEXUS RX
    2. Lexus RX ökumannssvæðið
      „TAZUNA“ STJÓRNSVÆÐIÐ SÉRHANNAÐ FYRIR ÖKUMANNINN
      Fyrst má nefna stjórnsvæðið sem lagað er að ökumanninum með sjónlínuskjá og 12,3“ stafrænum mæli. Njóttu síðan lýsingarinnar, þar sem hægt er að velja á milli 64 lita og skapa stemningu í farþegarýminu sem fellur að líðan þinni.
      REYNSLUAKTU RX
      HANNAÐU ÞINN NÆSTA LEXUS RX
    3. Lexus RX þriggja arma stýrishjól
      HANDUNNIÐ STÝRI
      Til að gera akstursupplifunina einstaka hafa hönnuðir Lexus unnið með „Takumi“ akstursmeistara að því að fínpússa alla snertipunkta. Við hönnun sportlega þriggja arma stýrisins var hugað sérstaklega að lögun og þversniði til að veita framúrskarandi tilfinningu.
      REYNSLUAKTU RX
      HANNAÐU ÞINN NÆSTA LEXUS RX
    4. Sæti og hurðarspjald innan í Lexus RX
      LEÐURLAUST INNANRÝMI AÐ HÆTTI TAKUMI MEISTARA
      Rúmgott innanrými RX er fallega hannað og býður upp á gott fótarými og stílhreina hönnun. Annað sem vert er að minnast á er að einnig er hægt að fá innanrýmið án leðurs. Í þeirri útfærslu eru ekki einungis sætin heldur einnig stýrið og gírskiptihnúðurinn klædd Tahara áklæði.
      REYNSLUAKTU RX
      HANNAÐU ÞINN NÆSTA LEXUS RX
    5. Innanrými Lexus RX
      FERÐAST Á FYRSTA FARRÝMI
      Ásamt aðgengi og stuðningi af bestu gerð bjóða Takumi sætin upp á þægindi á borð við hita og loftræstingu. Farþegar geta einnig notið róandi hljóms úr 21 hátalara Mark Levinson® Premium Surround-hljóðkerfisins, sem er í algjörum sérflokki.
      REYNSLUAKTU RX
      HANNAÐU ÞINN NÆSTA LEXUS RX
    6. Þrír Lexus RX saman í hnapp
  3. VELDU ÞINN RX LÍFSSTÍL
    1. Lexus RX þægindi
      RX COMFORT
      19" álfelgur með fimm breiðum örmum og vélunninni áferð, 235/60 R19-hjólbarðar; tvöföld LED aðalljós með sjálfvirku háljósakerfi (AHB); Tahara áklæði (án leðurs) með svörtum heilmyndarinnfellingum; þriggja arma stýri með Tahara áklæði; Lexus Link Pro margmiðlun með 14” snertiskjá og Hybrid leiðsögn (í skýi og innbyggð); 12 hátalara fyrsta flokks hljómtæki.
      REYNSLUAKTU RX
      HANNAÐU ÞINN NÆSTA LEXUS RX
    2. Lexus RX F SPORT Design
      RX F SPORT Design
      21" gljásvartar álfelgur með 10 örmum, 235/50 R21 hjólbarðar; þreföld LED aðalljós með sjálfvirku háljósakerfi (AHB); ytra byrði F SPORT; leðuráklæði með svörtum heilmyndarinnfellingum; marglit stemningslýsing (64 litir); þriggja arma leðurklætt stýri; Lexus Link Pro margmiðlun með 14” snertiskjá og Hybrid leiðsögn (í skýi og innbyggð); 12 hátalara fyrsta flokks hljómtæki.
      REYNSLUAKTU RX
      HANNAÐU ÞINN NÆSTA LEXUS RX
    3. Lexus RX Executive
      RX EXECUTIVE
      21" álfelgur með 20 örmum og vélunninni áferð, 235/50 R21-hjólbarðar; þreföld LED aðalljós með sjálfvirku háljósakerfi (AHB); leðuráklæði með svörtum heilmyndarinnfellingum; þriggja arma leðurklætt stýri; Lexus Link Pro margmiðlun með 14” snertiskjá og Hybrid leiðsögn (í skýi og innbyggð); 12 hátalara fyrsta flokks hljómtæki.
      REYNSLUAKTU RX
      HANNAÐU ÞINN NÆSTA LEXUS RX
    4. Lexus RX Luxury
      RX LUXURY
      21" dökksanseraðar álfelgur með 20 örmum; þreföld LED aðalljós með BladeScan®; AVS fjöðrun; hálf-anilínáklæði; geislahitun í framsætum; þriggja arma leður- og viðarklætt stýri með hita; Lexus Link Pro margmiðlun með 14” snertiskjá og Hybrid leiðsögn (í skýi og innbyggðri); 21 hátalara Mark Levinson®-hljóðkerfi.
      REYNSLUAKTU RX
      HANNAÐU ÞINN NÆSTA LEXUS RX
    5. Lexus RX F SPORT Performance
      F SPORT Performance
      21" mattsvartar 10 arma álfelgur; þreföld LED aðalljós með BladeScan®; AVS fjöðrun; DRS stýring; leðuráklæði á sætum með F álinnfellingum; þriggja arma stýri með götuðu leðuráklæði; Lexus Link Pro margmiðlunarkerfi með 14" snertiskjá og Hybrid leiðsögn (í skýi og innbyggðri); 21 hátalara Mark Levinson® hljóðkerfi.
      REYNSLUAKTU RX
      HANNAÐU ÞINN NÆSTA LEXUS RX
    6. Lexus RX 500h Special Edition ekur eftir vegi
      RX 500h SPECIAL EDITION
      Í tilefni af 35 ára afmæli Lexus ákváðum við að búa til sérhannaðan RX. RX 500h Special Edition sker sig úr frá fyrstu sýn. Gljásvartir listar að framan, aftan og á hliðunum undirstrika einstöku 21" gljásvörtu álfelgurnar með 5 tvískiptum örmum og ljá bílnum hátíðlega stemningu.
      REYNSLUAKTU RX
      HANNAÐU ÞINN NÆSTA LEXUS RX

FÁGAÐUR ÍBURÐUR

HEFÐIR Í BLAND VIÐ FRAMTÍÐINA

„Omotenashi“ er orð sem þú heyrir oft hjá Lexus. Þessi forna japanska hugmyndafræði um gestrisni snýst um að sjá fyrir þarfir gesta jafnvel áður en þær vakna. Íburðarmiklar móttökur þínar eru í höndum „Takumi“ handverksfólksins okkar í bland við tækni sem veitir óviðjafnanlega lúxusupplifun.

TÆKNI SEM VEITIR SLÖKUN
  1. MÓTTÖKUR LEXUS Í ANDA OMOTENASHI
    1. Afturendi á Lexus RX
      JAPÖNSK GESTRISNI
      Njóttu einstakrar japanskrar nálgunar okkar á gestrisni: „Omotenashi“ snýst um að sjá þarfir gesta fyrir. Þetta finnurðu í viðmótinu hjá söluaðilum okkar, en ekki síður í tæknilausnunum okkar. Þú getur til dæmis stillt hitastig bílsins eða afísað framrúðuna í símanum.
      REYNSLUAKTU RX
      HANNAÐU ÞINN NÆSTA LEXUS RX
    2. Lexus RX ökumannsrými
      TEKIÐ ER VEL Á MÓTI ÞÉR
      Um leið og þú opnar bílinn ökumannsmegin birta stjórntæki RX útlínur bílsins og heilsa þér með nafni. Þegar stigið er á hemlafótstigið virkjast aflrofinn, sem byrjar að titra varlega og vekur ökumannsrýmið til lífsins með því að birta myndir á stjórntækjunum. Sjónlínuskjárinn og 14" skjárinn beina síðan athygli þinni að veginum fram undan.
      REYNSLUAKTU RX
      HANNAÐU ÞINN NÆSTA LEXUS RX
    3. Lexus stafrænt 360° yfirlitsmyndakerfi birt á margmiðlunarsnertiskjá
      STAFRÆN YFIRLITSMYND AF UMHVERFI BÍLSINS Á SKJÁNUM
      Til að auðvelda akstur við þröngar aðstæður birtir stafræn yfirlitsmynd af umhverfi bílsins á skjánum 360° mynd í rauntíma og mynd sem tekin er undir bílnum. Þessi búnaður er staðalbúnaður í F SPORT- og Luxury-útfærslum og býr til þrívíða sýndarmynd af RX-bílnum, séðum að ofan, með skjáleiðbeiningum til að aðstoða við akstur á þröngum borgargötum.
      REYNSLUAKTU RX
      HANNAÐU ÞINN NÆSTA LEXUS RX
    4. Kyrrstæður Lexus RX með handfrjálsa rafknúna afturhleranum opnum.
      RAFKNÚINN HANDFRJÁLS AFTURHLERI
      Auðvelt er að hlaða og afferma bílinn með sérlega hraðvirkum og viðbragðsfljótum fjarstýrðum rafknúnum afturhlera, sem er kærkominn eiginleiki, til dæmis þegar þú kemur úr búð með fangið fullt. Þegar lykillinn er í vasanum eða töskunni geturðu opnað eða lokað afturhleranum með því að smeygja fætinum undir afturstuðarann.
      REYNSLUAKTU RX
      HANNAÐU ÞINN NÆSTA LEXUS RX
    5. Lexus Remote Park birt á margmiðlunarsnertiskjá
      AFSLAPPAÐUR INNANBÆJARAKSTUR MEÐ REMOTE PARK
      Þetta er ný og byltingarkennd stoðtækni fyrir ökumenn sem veitir þér enn meiri hugarró. Þú þarft aðeins að ýta á einn hnapp og þá skannar háþróaða bílastæðakerfið, með Remote Park, bílastæðið sem þú vilt leggja í og ekur þér síðan sjálfkrafa inn. Þú getur jafnvel vistað upplýsingar um bílastæðin sem þú notar oft.
      REYNSLUAKTU RX
      HANNAÐU ÞINN NÆSTA LEXUS RX
    6. Einstaklingur gengur frá Lexus RX sem er búið að leggja í stæði
  2. FRAMÚRSKARANDI LÚXUS
    1. Nærmynd af sæti í Lexus RX
      BETRI SÆTAHÖNNUN
      Hönnuðir RX leituðust við að skapa lágstemmt og haganlega hannað innanrými með hágæðaefnum. Sætin bjóða upp á aðgengi, stuðning og hita- og loftræstingu í hæsta gæðaflokki. Sætin eru nú körfulaga til að tryggja æskilega líkamsstöðu og góðan stuðning.
      REYNSLUAKTU RX
      HANNAÐU ÞINN NÆSTA LEXUS RX
    2. Aftursæti í Lexus RX
      LÚXUSRÝMI
      RX er búinn stóru farangursrými og fimm lúxussætum með frábæru fótarými. Farangursgeymslan er með litla hleðsluhæð og er því einföld í notkun og lengd farangursrýmisins býður upp á flutning á fyrirferðarmeiri hlutum. 40:20:40 skiptingin á aftursætunum býður upp á pláss fyrir langa hluti eins og skíði.
      REYNSLUAKTU RX
      HANNAÐU ÞINN NÆSTA LEXUS RX
    3. Mark Levinson® Premium hátalari í Lexus RX
      21 HÁTALARA MARK LEVINSON® HLJÓÐKERFI
      RX farþegarýmið er nánast hljóðlaust og skapar fullkominn vettvang fyrir sérhannaða 21 hátalara Mark Levinson® Premium Surround hljóðkerfið. Það er staðalbúnaður í dýrari útfærslum, er fínstillt fyrir hönnun innanrýmis bílsins og skilar eintökum 7,1 rása heimabíóhljómi.
      REYNSLUAKTU RX
      HANNAÐU ÞINN NÆSTA LEXUS RX
    4. nanoe™ X loftræsting í Lexus RX
      ÞRIGGJA SVÆÐA HITA- OG LOFTSTÝRING
      S-Flow hita- og loftstýringin stillir lofthitann í innanrýminu hugvitssamlega í samræmi við fyrirliggjandi aðstæður og tryggir þannig framúrskarandi sparneytni og ákjósanleg þriggja svæða þægindi fyrir ökumann, farþega í framsæti og farþega í aftursæti. RX 450h+ er meira að segja búinn geislahiturum að framan sem halda farþegarýminu þægilegu og spara um leið rafhlöðuorku.
      REYNSLUAKTU RX
      HANNAÐU ÞINN NÆSTA LEXUS RX
    5. Farþegarými í Lexus RX með rauðri stemningslýsingu
      VAL UM STEMNINGSLÝSINGU
      Stilltu stemningslýsingu RX að þínu skapi. Úr 64 litum hefur Lexus þróað 14 þemu, innblásin af náttúrunni. Hvert þeirra er hannað til að kalla fram tilfinningu fyrir „Omotenashi“ gestrisni, með stillingum á borð við Græðandi, Róandi, Örvandi, Einbeitingu og Upplyftandi.
      REYNSLUAKTU RX
      HANNAÐU ÞINN NÆSTA LEXUS RX
    6. Einstaklingur notar margmiðlunarskjáinn í Lexus RX
  3. LEXUS LINK+ TENGING
    1. Nærmynd af margmiðlunarskjánum
      HNÖKRALAUSIR LEXUS TENGIMÖGULEIKAR
      Við trúum því að lúxus felist ekki hvað síst í fullvissu um að komast tímanlega á áfangastað, á sem ánægjulegastan hátt. Lexus Link Pro margmiðlun spilar sitt hlutverk með 14" snertiskjá, tengingu við síma, háþróaðri raddstýringu og Lexus Link+ appi.
      NÁNARI UPPLÝSINGAR
      HANNAÐU ÞINN NÆSTA LEXUS RX
    2. Síma lagt ofan á þráðlausu símahleðslutæki í RX
      TENGING VIÐ SNJALLSÍMA OG ÞRÁÐLAUS HLEÐSLA
      Með þráðlausu Android Auto® og Apple CarPlay® geturðu notað öpp snjallsímans á 14" snertiskjánum. Þú getur hlaðið snjallsíma með þráðlausa hleðslutækinu í miðstokknum, 50% hraðar en áður. RX er með 6 USB tengi til að hlaða tæki.
      REYNSLUAKTU RX
      HANNAÐU ÞINN NÆSTA LEXUS RX
    3. Nærmynd af margmiðlunarskjánum
      SÉRLEGA HANDHÆGUR 14" SNERTISKJÁR
      Lexus Link Pro margmiðlun er hraðvirk og þægileg í notkun á 14” háskerpusnertiskjánum. Lexus Link Pro leiðsögn er fyrsta kerfi sinnar tegundar sem notar leiðsögukerfi í gegnum ský til að uppfæra kort og umferðarupplýsingar. Öll tengd þjónusta er uppfærð með þráðlausri tækni.
      REYNSLUAKTU RX
      HANNAÐU ÞINN NÆSTA LEXUS RX
    4. Lexus raddstýring birtist á margmiðlunarskjánum
      „HEY LEXUS“ RADDAÐSTOÐ
      Raddaðstoðin „Hey Lexus“ skilur eðlilegt talað mál og túlkar setningar á borð við „Ég er svangur“ eða „Mér er kalt“. Hún greinir jafnvel hvort ökumaður eða farþegi í framsæti tali. Þú getur meðal annars valið áfangastað og tónlist án þess að taka augun af veginum.
      REYNSLUAKTU RX
      HANNAÐU ÞINN NÆSTA LEXUS RX
    5. Lexus Link+ appið á símaskjá
      TENGDAR ÞJÓNUSTUR LEXUS LINK+
      Lexus Link+ appið opnar heilan heim af tengimöguleikum sem styðja við okkar einstöku „Omotenashi“ þjónustuupplifun. Skilvirkir og sérhannaðir eiginleikar hjálpa þér að stjórna bílnum um fjartengingu, bóka þjónustu eða jafnvel bæta aksturslag þitt. Umbreyttu lífinu með RX og notaðu þjónustu á borð við þessa: talnagögn um akstur; finna bílinn minn; þjónusta og viðhald; viðvörunarljós (eCare); staða bíls; fjarstýring.
      REYNSLUAKTU RX
      HANNAÐU ÞINN NÆSTA LEXUS RX
    6. Loftmynd af Lexus RX sem ekur um fjölfarna götu.
  4. LEXUS SAFETY SYSTEM +
    1. Grafík sem sýnir ökumannseftirlitskerfi Lexus
      ÞRIÐJA KYNSLÓÐ LEXUS SAFETY SYSTEM +
      Allir RX bílar eru búnir þriðju og nýjustu kynslóð Lexus Safety System +, með uppfærslum og endurbótum sem fela í sér aukna greiningu á slysahættu. Þar má meðal annars nefna ökumannsskynjara sem greinir þreytu eða einbeitingarleysi hjá ökumanni og fyrirbyggjandi akstursaðstoð.
      FREKARI UPPLÝSINGAR UM ÖRYGGISKERFI LEXUS
      HANNAÐU ÞINN NÆSTA LEXUS RX
    2. Grafík sem sýnir árekstrar forvarnarkerfi Lexus.
      ÁREKSTRARVIÐVÖRUNARKERFI
      Auk þess að nema mótorhjól í dagsbirtu hjálpar endurbætt Lexus Árekstrarviðvörunarkerfi til við að forðast mögulega árekstra - meðal annars þegar þú tekur beygjur og þegar ökutæki keyra inn í akreinina. Kerfið getur einnig greint hættu frá ökutækjum á móti eða gangandi vegfarendum sem þvera veginn þegar beygt er á gatnamótum. Neyðarstýrisaðstoð eykur enn frekar getu kerfisins til að forðast árekstra.
      REYNSLUAKTU RX
      HANNAÐU ÞINN NÆSTA LEXUS RX
    3. Grafík sem sýnir aðlagandi hraðastilli Lexus með ratsjá
      RATSJÁRHRAÐASTILLIR
      Kerfið notar radarmæli og myndavél til að halda hæfilegri fjarlægð frá bílnum fyrir framan. Búnaðurinn greinir einnig í snatri alla umferð beint fyrir framan bílinn og vinnur með akreinastýringunni til að velja æskilegustu stefnuna í beygjum.
      REYNSLUAKTU RX
      HANNAÐU ÞINN NÆSTA LEXUS RX
    4. Lexus akreinaaðstoð (LCA) graphic
      VIÐBÓTARÖRYGGISPAKKI
      Samhliða Lexus Safety System + er nýi RX bíllinn búinn viðbótaröryggispakka sem staðalbúnaði. Hann felur í sér akreinaskiptiaðstoð (LCA) og umferðarskynjara að framan, sem notar ratsjá til að vara ökumann við umferð sem nálgast frá hlið.
      REYNSLUAKTU RX
      HANNAÐU ÞINN NÆSTA LEXUS RX
    5. Myndræn skýring á aðstoðarkerfi fyrir örugga útgöngu í Lexus
      AÐSTOÐARKERFI FYRIR ÖRUGGA ÚTGÖNGU
      Aðstoðarkerfi fyrir örugga útgöngu er tengt við blindsvæðisskynjara bílsins og kemur í veg fyrir að farþegar opni dyrnar (að framan og að aftan) ef einhver er á ferð beint fyrir utan bílinn, til dæmis bílar eða hjólreiðafólk sem nálgast aftan frá.
      REYNSLUAKTU RX
      HANNAÐU ÞINN NÆSTA LEXUS RX

PLUG-IN HYBRID OG HYBRID BÍLAR

LEXUS RX

RX 450h+ Plug-in Hybrid setur ný viðmið fyrir rafvæðingu og er með yfir 67 km drægni á rafmagni. Ef þú ert fyrir meiri spennu er RX 500h F SPORT fyrsti hybrid bíllinn okkar með forþjöppu. RX 350h hybrid er einstaklega skilvirkur og skilar meiri sparneytni og minni útblæstri.

HYBRID Í ÞRIÐJA VELDI

LEXUS RX
Starting From
17.690.000 kr.

*Tölur úr WLTP-prófunum. Frekari upplýsingar um nýju WLTP-prófunina er að finna á: https://www.lexus.is/legal/wltp

RX 450+ PLUG-IN HYBRID RX 450h PLUG-IN HYBRID Plug-in Hybrid aflrásin frá Lexus sameinar kosti 4. kynslóðar sjálfhlaðandi hybrid bíla hjá Lexus og rafbílatækni Lexus. Bíllinn er knúinn háþróaðri 18,1 kWh Li-ion rafhlöðu og tryggir þér nánast hljóðlausan, alrafknúinn akstur á allt að 135 km/klst. REYNSLUAKTU RX HANNAÐU ÞINN NÆSTA LEXUS RX YFIR 67 KM DRÆGNI Í EV STILLINGU Fjögurra stillinga valbúnaður RX 450h+ tryggir hnökralausan og skemmtilegan akstur í hvert sinn. Sjálfgefna EV stillingin hámarkar rafhlöðunotkunina og gerir þér kleift að aka 67 (blandaður akstur) til 90 km innanbæjar. REYNSLUAKTU RX HANNAÐU ÞINN NÆSTA LEXUS RX HRÖÐUN ÞEGAR Á ÞARF AÐ HALDA Í EV-/hybrid stillingu, og eftir því hversu fast þú stígur á inngjöfina, tekur öflug bensínvélin til óspilltra málanna og tryggir snögga línulega hröðun þegar hennar er þörf, sem gerir þér kleift að ná 100 km/klst. á 6,5 sekúndum. REYNSLUAKTU RX HANNAÐU ÞINN NÆSTA LEXUS RX RX 500h PERFORMANCE HYBRID RAFKNÚINN MEÐ FORÞJÖPPU Allir sjálfhlaðandi Lexus Hybrid bílar eru hljóðlátir og þægilegir í akstri. Þegar hraðinn eykst kemur ótrúlega 2,4 lítra bensínvélin með forþjöppu í RX 500h til skjalanna, sem studd er af rafmótor(um) þegar þess er þörf. REYNSLUAKTU RX HANNAÐU ÞINN NÆSTA LEXUS RX EINSTAKUR LEXUS AKSTUR, DIRECT4 RX 500h er með létt en stíft byggingarlag, lága þyngdarmiðju og fjölliða afturfjöðrun og skilar meiru en aðeins fullkomnum krafti og sparneytni. Aktu hinum afkastamikla og spennandi RX 500h F SPORT Hybrid með DIRECT4 til að njóta alls þess sem hann hefur upp á að bjóða. REYNSLUAKTU RX HANNAÐU ÞINN NÆSTA LEXUS RX MIKIL HRÖÐUN Það er æðislegt að aka RX 500h F SPORT. Þegar þú gefur hressilega í bætist afl rafmótorsins/rafmótaranna samstundis við 2,4 lítra vél með forþjöppu, sem skilar 371 DIN hestöflum eða 273 kW frá 0–100 km/klst. á 6,2 sekúndum. REYNSLUAKTU RX HANNAÐU ÞINN NÆSTA LEXUS RX RX 350h SJÁLFHLAÐANDI HYBRID NÁNAST HLJÓÐLAUS Á AKSTURSHRAÐA Auktu hraðann í hinum sérlega lipra RX 350h og rafmótorinn/rafmótorarnir styðja við 2,5 lítra bensínvélina. Samhliða minni útblæstri og eldsneytisnotkun veitir nær fullkomin dreifing afls hina ótrúlegu akstursánægju sem einkennir RX 350h. REYNSLUAKTU RX HANNAÐU ÞINN NÆSTA LEXUS RX ALRAFKNÚINN Á MINNI HRAÐA Við gangsetningu og á minni hraða knýr kraftmikill rafmótorinn/rafmótorarnir RX 350h áfram með rafafli frá drifrafhlöðunni. Þarna er um að ræða nánast hljóðlausan 100% rafknúinn akstur stutta vegalengd. REYNSLUAKTU RX HANNAÐU ÞINN NÆSTA LEXUS RX ENDURHEIMT HEMLAORKU, ENGIN INNSTUNGA Við hemlun, eða þegar þú tekur fótinn af inngjöfinni, nýtir endurheimt hemlaorku hreyfiorku bílsins og aflrásin umbreytir henni í raforku sem geymd er í hybrid-rafhlöðunni. Þar af leiðandi þarftu aldrei að stinga honum í samband. REYNSLUAKTU RX HANNAÐU ÞINN NÆSTA LEXUS RX

PAKKAR Í BOÐI

Hér getur þú bætt búnað RX með því að velja pakka fyrir innanrými, vernd, SUV, útlit eða lýsingu.

VELDU PAKKA FYRIR NÝJAN LEXUS RX
PAKKI FYRIR INNANRÝMI

Gólfmotta: Hlífðarmottur úr svörtu velúrefni, motta ökumanns er með tveimur öryggisfestingum til að koma í veg fyrir að hún renni til. Gúmmímotta í farangursrými: Sérsniðin að farangursrýminu og með skriðvörnin til að koma í veg fyrir að farangurinn færist úr stað. Öryggispakki: Inniheldur öryggisvesti, viðvörunarþríhyrning og sjúkrakassa.

HLÍFÐARPAKKI

Aftursætishlíf: Sætisbakahlífin fyrir aftursæti ver sætisbakið gegn óhreinindum og vökva þegar sætin eru felld niður til að hægt sé að flytja lengri hluti. Áferðin hjálpar til við að koma í veg fyrir að hlutir færist eða renni til.

SPORTJEPPA PAKKI

Stigbretti veitir þægilegt aðgengi að aukahlutum á toppi bílsins og undirstrikar jafnframt sterkbyggt yfirbragð hans. Aurhlífar Lexus eru sérstaklega hannaðar til að vernda brettakanta bílsins.

ÚTLITSPAKKI

Krómaðir sílsalistar falla hnökralaust að hliðum bílsins. Krómaður skrautlisti á neðri hluta farangursgeymslunnar eykur fágað yfirbragðið. Upplýstar sílsahlífar bjóða upp á stílhreina hönnun og vernda auk þess lakkið á sílsalistunum.

LÝSING

Upplýst sílsahlíf við afturhlera ver lakkið í kringum farangursgeymsluna og er fallega hönnuð í samræmi við útlit bílsins. Hurðalýsing (pollaljós) er falleg lýsing sem auðveldar aðgengi að bílnum.

ALGENGAR SPURNINGAR

  1. Allar

RX línan býður upp á þrenns konar Hybrid aflrásir: Sjálfhlaðandi Hybrid, Plug-in Hybrid og Performance Hybrid.

ALRAFKNÚINN Á MINNI HRAÐA

 

Við gangsetningu og á minni hraða knýr kraftmikill rafmótorinn að framan (og rafmótorinn að aftan á aldrifsgerðum) RX 350h áfram með rafafli úr rafhlöðunni. Þarna er um að ræða nánast hljóðlausan og 100% rafknúinn akstur stutta vegalengd.

 

 

 

NÁNAST HLJÓÐLAUS Á AKSTURSHRAÐA

 

Sjálfhlaðandi Lexus Hybrid bílar eru hljóðlátir og þægilegir í akstri. Þegar hraðinn eykst kemur sérlega lipur 2,5 lítra bensínvélin til skjalanna, sem studd er af rafmótor/rafmótorum þegar þörf er á. Ef vélin er í gangi á ákjósanlegum hraða er hægt að nota umframafl til að hlaða rafhlöðuna. Ásamt lítilli mengun í útblæstri og eldsneytisnotkun veitir þessi nærri fullkomna dreifing á bensíni og rafmagni einnig þá einstöku akstursánægju sem einkennir RX 350h.

 

 

 

SKJÓT LÍNULEG HRÖÐUN

 

Það er skemmtilegt að aka sjálfhlaðandi Lexus Hybrid bíl. Við mikla hröðun gefur afl rafmótorsins/rafmótoranna 2,5 lítra bensínvélinni í RX tafarlausa aflaukningu. Saman gefa aflgjafarnir mikinn togkraft og skjóta línulega hröðun einmitt þegar þú þarft á því að halda.

 

 

 

ENDURHEIMT HEMLAORKU, ENGIN INNSTUNGA

 

Bensínvélin slekkur oft hljóðlega á sér þegar hægt er á bílnum, hann staðnæmist eða við akstur á jöfnum hraða. Við hemlun, eða þegar þú tekur fótinn af inngjöfinni, nýtir endurheimt hemlaorku hreyfiorku bílsins þíns (í hefðbundnum bílum fer hún í súginn). RX 350h breytir þessari orku í raforku sem er geymd í Hybrid rafhlöðunni, ásamt þeirri orku sem myndast þegar ekið er á miklum hraða, sem þýðir að það þarf aldrei að stinga bílnum í samband.

Plug-in Hybrid aflrásin frá Lexus sameinar kosti 4. kynslóðar sjálfhlaðandi Hybrid bíla* hjá Lexus og rafbílatækni Lexus. „Plúsinn“ í heiti RX 450h+ er til marks um einstaklega kraftmikla li-ion rafhlöðu bílsins og framúrskarandi drægni í EV stillingu. Ólíkt hefðbundnum tengiltvinnbílum þar sem rafhlaðan tæmist skiptir Lexus RX 450h+ yfir í sérlega skilvirka sjálfhlaðandi Lexus Hybrid stillingu og hleður rafhlöðuna á meðan þú ekur.

 

 

 

EV STILLING

 

Fjögurra stillinga valbúnaður RX 450h+ tryggir hnökralausan og skemmtilegan akstur í hvert sinn. Sjálfgefna EV stillingin hámarkar rafhlöðunotkunina og gerir þér kleift að aka allt að 70 km (blandaður akstur, allt að 90 km innanbæjar). Bíllinn er knúinn háþróaðri 18,1 kWh Li-ion rafhlöðu og tryggir þér nánast hljóðlausan og alrafknúinn akstur á allt að 135 km/klst.

 

 

 

HRÖÐUN ÞEGAR Á ÞARF AÐ HALDA

 

Í sjálfvirkri EV-/Hybrid stillingu, og eftir því hversu fast þú stígur á inngjöfina, tekur öflug bensínvélin til óspilltra málanna og tryggir snögga línulega hröðun þegar hennar er þörf sem gerir þér kleift að ná 100 km/klst. á aðeins 6,5 sekúndum.

 

 

 

HLEÐSLA Á FERÐINNI

 

Ef þú þarft nauðsynlega að hlaða rafhlöðuna þína, til dæmis til að komast inn á svæði þar sem útblástursmengun er ekki leyfileg, getur þú notað hleðslustillingu rafhlöðunnar til að fylla á hana.

 

 

 

REYNSLA BYGGÐ Á 2,5 MILLJÓNUM HYBRID BÍLA

 

Fjórða kynslóð sjálfhlaðandi Hybrid tækni Lexus hefur ýmsa kosti í för með sér. Ef hleðsla rafhlöðunnar minnkar á meðan hún er í EV stillingu eða sjálfvirkri EV-/Hybrid stillingu skiptir kerfið yfir í einstaklega sparneytna Hybrid stillingu sem gerir þér kleift að nýta allt afl bílsins á ný.

 

 

 

STINGDU Í SAMBAND HEIMA EÐA Á FERÐINNI

 

Fylltu á rafhlöðuna í þinni eigin Lexus heimahleðslustöð eða almennri hleðslustöð til að fá hámarks drægni og afköst á rafmagni. Lexus Link+ appið sýnir þér staðsetningu hleðslustöðva, aðgengi að þeim og jafnvel verð á kílómetra um alla Evrópu.

 

 

 

*Tölur úr WLTP-prófunum. Frekari upplýsingar um nýju WLTP-prófunina er að finna á: www.lexus.eu/wltp#nedc (Opens in new window)

 

 

 

** WLTP-drægni

 

WLTP-prófun er opinber prófun sem skráð er við rannsóknarstofuaðstæður (23° C, slökkt á hita- og loftstýringu, á aflmælissamstæðu) sem gerir viðskiptavinum kleift að bera saman mismunandi gerðir rafbíla út frá sömu viðmiðunum. Allir rafbílar munu sýna mismun á milli WLTP og raunverulegrar drægni. Þó að WLTP-tölur séu staðlaðar er drægni og skilvirkni mismunandi eftir einstökum þáttum og skilningur á þeim getur hjálpað viðskiptavinum að meta bílinn sinn til fulls.

Í tilefni af 35 ára afmæli Lexus völdum við að búa til sérhannaðan SUV-bíl. Frá fyrstu sýn finnurðu að RX 500h Special Edition er ekki eins og allir hinir. Gljásvartir listar að framan, aftan og á hliðunum undirstrika einstöku 21" gljásvörtu álfelgurnar með 5 tvískiptum örmum og ljá bílnum hátíðlega stemningu, sem ýtt er undir með úrvali yfirbyggingarlita fyrir F SPORT.

Við leggjum okkur fram við að tryggja að þú njótir þess að aka og eiga Lexus hybrid-bíllinn þinn. Í dag eru yfir 500.000 Lexus hybrid-bíla á götum Evrópu. Allir voru þeir smíðaðir í Japan í sérstökum verksmiðjum með nýjustu tækni og samkvæmt þeim nákvæmu gæðakröfum sem tryggja áreiðanleika Lexus hybrid-bíla um allan heim. Auðvitað er bíllinn áberandi glæsilegur og rennilegur, en hann mun líka lækka rekstrarkostnaðinn þinn umtalsvert og þar munar ekki aðeins um eldsneytið heldur einnig lægri útgjöld vegna hemla, hjólbarða og annarra íhluta, þökk sé endurheimt hemlaorku og háþróuðum aflstýringarkerfum.

Lexus RX er lúxussportjeppi í millistærð. Hjólhaf RX er 2.850 mm og bíllinn er 4.890 mm á lengd, 1.920 mm á breidd og 1.695 mm á hæð. Hann er einnig rúmgóður að innan. Li-ion rafhlöður með mikilli afkastagetu voru þróaðar fyrir RX-bílana og eru uppsettar undir aftursætunum. Þær stuðla bæði að rúmgóðu innanrými og framúrskarandi aksturseiginleikum.

Já. RX-bíllinn er búinn nýjasta Lexus Link Pro-margmiðlunarkerfinu sem er stjórnað með 14“ snertiskjá og er með innbyggðri „Hey Lexus“-raddaðstoð.

Já. Þú getur tengt snjallsímann þinn þráðlaust eða með snúrutengingu fyrir Apple CarPlay.

Já. Þráðlaus eða snúrutengd tenging snjallsíma er virk fyrir Android Auto.

RX er fáanlegur sem RX 450h+ Lexus Plug-in Hybrid, RX 350h Lexus sjálfhlaðandi hybrid eða afkastamikill RX 500h hybrid. Þú getur valið eftirfarandi útfærslur fyrir RX: COMFORT, F SPORT Design, EXECUTIVE og LUXURY.

Lexus kynnti RX 400h sjálfhlaðandi hybrid-bílinn til sögunnar árið 2005 og innleiddi þar með rafvæðingu á lúxusmarkaðnum. Í dag, eftir þrjá áratugi og framleiðslu á nærri 3 milljónum hybrid-bíla frá Lexus, höldum við áfram að auðga lífsstíl viðskiptavina okkar með úrvali rafknúinna gerða.
*Tölur úr WLTP-prófunum. Frekari upplýsingar um nýju WLTP-prófunina er að finna á: https://www.lexus.is/legal/wltp