LEXUS LBX LITRÍKUR KARAKTER
7.950.000 kr.
- Eldsneytiseyðsla WLTP gildi
- 4,5 - 4,8 l/100km
- CO₂ útblástur WLTP gildi
- 103 g/km
Fyrirvari
Uppgefin gildi miðast við WLTP prófunina, verð eru birt með fyrirvara um villurÞINN STÍL
LBX fæst í mismunandi útfærslum sem eru hannaðar til að hæfa lífsstíl og persónuleika hvers og eins. LBX ELEGANT, LBX RELAX, LBX EMOTION og LBX COOL og hver þeirra skartar mismunandi litum á ytra byrði og mismunandi stíl í innanrými.
LBX ELEGANT
LBX ELEGANT vekur hvarvetna athygli fyrir glæsilegt Takumi-handverkið á lakkinu. Innanrýmið er einstaklega fallegt og prýtt vegan Tahara-áklæði í látlausum skógarbrúnum eða steingráum tónum.
LBX RELAX
LBX RELAX er sérlega glæsilegur og fangar augað hvar sem er. Að innan er hægt að velja um brúnt eða svart hálf-anilínleður með einkennandi Tatami-saumi. Auk þess býður þessi útfærsla upp á stemningslýsingu í 64 mismunandi litum.
LBX EMOTION
18“ álfelgurnar og tvítóna lakkið eru aðeins hluti af því sem LBX EMOTION hefur upp á að bjóða. Að innan getur að líta Takumi-saumað áklæði með rauðum andstæðulit á sætum, miðstokki og hurðarklæðningu.
LBX COOL
LBX COOL með tvílitu lakki sker sig ævinlega úr fjöldanum. Innanrýmið er með leðurbrydduðu Ultrasuede-áklæði með fallegum koparskreytingum, sem og sérhannaðri lýsingu sem fellur að þínu skapi hverju sinni.
AFGERANDI OG STAÐFÖST HÖNNUN
Þú kannt að meta fágaða hönnun og tekur því strax eftir afgerandi snældulaga grillinu – frá Lexus, en í nýrri útfærslu. Lágstæð vélarhlífin lítur ekki bara vel út heldur tryggir ökumanninum líka frábært útsýni. LBX er með einkennandi Lexus-aðalljósum sem gefa honum áræðið yfirbragð.
Það er meira að segja glæsibragur yfir hurðaropnuninni. Með rafrænu læsingakerfi færðu aðgang að bílnum með aðeins einni snertingu. Svo getur þú komið þér vel fyrir í glæsilegu Tahara-sætunum. Þessi vegan sæti líta ekki aðeins vel út heldur eru þau hönnuð til að tryggja þér ýtrustu þægindi, jafnvel í beygjum. Loftstýringin býður upp á sérsniðna hitastýringu fyrir farþega og ökumann í framsæti.
LBX-grillið er með afgerandi trapisulögun, staðsett undir þröngu opi sem liggur undir vélarhlífinni og tengir saman rennileg aðalljósin. Þetta útlit framhliðar bílsins byggir á hönnunararfleifð Lexus „Staðfast yfirbragð“ sem kynnt var á LF-S hugmyndabílnum árið 2003.
Nú getur þú, í fyrsta skipti í Lexus, upplifað fágað látleysi ELEGANT, friðsældina sem fylgir RELAX, eða fjörlegan kraft EMOTION og sérstæð einkenni COOL. Hvaða LBX kýst þú helst?
TÆKNI
Mesti munaðurinn sem Lexus LBX færir þér er hugarróin sem fylgir því að vita að bíllinn er búinn allri nauðsynlegri tækni til að létta þér aksturinn. Tækni til að skila þér á áfangastað á réttum tíma, án óþarfa streitu og alltaf með öryggið í fyrirrúmi. Þegar þú sest undir stýri blasir við úrval byltingarkenndra lausna og stafrænna verkfæra sem gera hvert ferðalag auðvelt og snurðulaust. Þú ert í traustum tengslum við vinnustaðinn og heimilið, en samt öllum stundum með hugann við aksturinn og veginn framundan.
Við trúum því að lúxus felist ekki hvað síst í fullvissu um að komast tímanlega á áfangastað, á sem ánægjulegastan hátt. Þetta tryggjum við meðal annars með margmiðlunarþjónustu Lexus Link+ þar sem snjall snertiskjár, hnökralaus samþætting snjallsíma, háþróuð raddgreining og Lexus Link+ appið vinna saman og veita frábæra þjónustu, innan bílsins sem utan.
Lexus Link+ appið opnar heilan heim tengimöguleika sem eru hannaðir til að styðja við okkar einstöku „Omotenashi“-þjónustuupplifun. Skilvirkir og sérhannaðir eiginleikar hjálpa þér að skipuleggja ferðalagið, finna bílastæði, bóka þjónustu eða jafnvel bæta aksturslagið. Þú munt geta nýtt þér þjónustu eins og akstursskýrslur til að fylgjast með ferðum þínum, eCare til að annast viðhaldið á LBX og hybrid-þjálfun, sem kennir þér að keyra á skilvirkari hátt.
Njóttu einstakrar japanskrar nálgunar okkar á gestrisni. Omotenashi snýst um að sjá þarfir gesta fyrir og það er einnig leiðarljós okkar hjá Lexus. Þetta finnur þú í viðmótinu hjá söluaðilum okkar, en einnig og ekki síður í tæknilausnum LBX. Þú getur til dæmis stillt hitastig bílsins eða afísað framrúðuna í snjallsímanum.
Hönnuðir Lexus leituðust við að skapa einfalt og fágað innanrými með þeim einstaka anda og yfirbragði sem einkennir alla Lexus bíla. Til að tryggja gott útsýni til allra átta er hönnun lárétta mælaborðsins bæði látlaus og einföld.
LBX nýtir allar tiltækar lausnir til að tryggja öruggan og afslappandi akstur. Þriðja kynslóð Lexus Safety System+ er ökumanni innan handar og fylgist stöðugt með veginum framundan, lætur vita af hættum og grípur til aðgerða þegar þess er þörf. Til að auðvelda akstur á þrengri svæðum býr sérstakt kerfi í bílnum til sýndarþrívíddarmynd af bílnum á skjá til að auðvelda þér að komast hjá hlutum sem gætu staðið í vegi fyrir þér. LBX er einnig búinn fjarstýrðu bílastæðakerfi sem gerir alla stjórnun bílsins mun öruggari þegar svigrúmið er lítið.