Skip to Main Content (Press Enter)
Fara í valmyndFara í leitFara í neðri valmynd
LEXUS FRÉTTIR

NÝR NX FRUMSÝNDUR Á NITTO ATP FINALS

Nýr Lexus NX verður frumsýndur í Evrópu á Nitto ATP Finals í Tórínó, lokamóti ATP-tennismótaraðarinnar þar sem fremstu karltennisspilarar heims mætast.

  • Nýr NX byggir á þeim styrkleikum sem hafa gert hann að mikilvægum þætti í velgengni Lexus í Evrópu.
  • Umfangsmiklar breytingar ná meðal annars til nýrra hybrid- og Plug-in Hybrid-kerfa, endurnýjaðrar ytri hönnunar og alveg nýs farþegarýmis.
  • Farþegarýmið er algerlega endurhannað í anda Clean x Tech, með nýjustu kynslóð margmiðlunarkerfis og 14 tommu skjá.
  • Ný tækni Lexus, sem tekur mið af þörfum fólks, gerir hverja ferð enn ánægjulegri. Þar má nefna falda snertirofa og Sensory Concierge-kerfið, sem býður nú í fyrsta sinn í Evrópu upp á ilm í farþegarýminu og gerir kleift að skapa einstaklingsmiðað andrúmsloft um borð.
  • Lexus er platínusamstarfsaðili og opinber bílasamstarfsaðili Nitto ATP Finals fjórða árið í röð.

Nýr Lexus NX verður í sviðsljósinu þegar hann verður frumsýndur í Evrópu á Nitto ATP Finals, lokamóti ATP-tennismótaraðarinnar, sem fer fram í Tórínó dagana 15. til 22. nóvember. Þetta virðulega mót er viðeigandi vettvangur fyrir nýjustu útfærslu bíls sem hefur lengi átt stóran þátt í velgengni Lexus í Evrópu og stendur nú undir tæpum þriðjungi árlegrar sölu merkisins í álfunni. 

Viðburðurinn undirstrikar jafnframt það öfluga samstarf sem Lexus hefur byggt upp við ATP*, samtök atvinnumanna í tennis, á stærsta sviði alþjóðlegs karlatennis.

*Association of Tennis Professionals, samtök atvinnumanna í tennis.

Lexus og ATP

Lexus hefur verið platínusamstarfsaðili og opinber starfsaðili ATP-mótaraðarinnar og Nitto ATP Finals frá árinu 2023. Samstarfið endurspeglar sameiginlega áherslu á færni, nákvæmni, ástríðu og stöðugar umbætur.  

Á hæsta stigi íþrótta byggist árangur á vönduðum undirbúningi, yfirvegun og því að huga að hverju smáatriði. Sömu gildi liggja að baki þróun bíla Lexus og þjónustu við viðskiptavini, þar sem ávallt er stefnt að fremstu röð.

Í tennis skiptir hvert stig máli. Í nýjum NX skiptir hvert smáatriði máli.

Nitto ATP Finals er því kjörinn vettvangur fyrir Lexus til að kynna nýjan bíl þar sem framúrskarandi aksturseiginleikar, tilfinningar og eftirminnileg upplifun fara saman. Á þessu lokamóti tímabilsins keppa átta stigahæstu leikmenn ársins í einliðaleik og átta stigahæstu tvíliðaleikspörin.

Nýr NX verður í sviðsljósinu á aðalkeppnisvellinum, þar sem hann verður sýndur í fyrsta sinn, og einnig á aðdáendasvæðinu á Piazzale Grande Torino við Inalpi Arena. Þannig nær kynningin langt út fyrir mótssvæðið til milljóna tennisáhugafólks um allan heim.  

Lexus leggur til flota af núverandi Hybridbílum, Plug-in Hybrid-bílum og rafbílum til að aka leikmönnum, starfsfólki mótsins og heiðursgestum meðan á keppni stendur. 

Í ár verður Lexus einnig opinber samstarfsaðili ATP No.1 Club, sem heiðrar alla þá leikmenn sem hafa náð efsta sæti heimslistans, PIF ATP Rankings.

Eno Polo, framkvæmdastjóri ATP: "Nitto ATP Finals er hápunktur keppnistímabilsins hjá okkur og við erum stolt af því að hafa Lexus með okkur í Tórínó. Samstarfið byggist á sameiginlegum metnaði til að skara fram úr og skapa einstaka upplifun fyrir aðdáendur. Það er ánægjulegt að Lexus nýti þennan glæsilega vettvang til að frumsýna nýjan NX í Evrópu og efli um leið samstarfið með aðkomu að ATP No.1 Club, þar sem einum mesta áfanga í íþróttinni okkar er fagnað. Við hlökkum til að halda áfram að þróa samstarfið og finna nýjar leiðir til að færa aðdáendur nær því besta sem tennis hefur upp á að bjóða."
 
Andre Schmidt, yfirmaður Lexus í Evrópu, segir: "Fyrir ári framlengdum við langtímasamstarf okkar við ATP og nú hlökkum við til að snúa aftur til Tórínó á Nitto ATP Finals. Þar frumsýnum við nýjan NX, sem gegnir lykilhlutverki í vaxandi úrvali rafvæddra lúxusbíla okkar, og sjáum um akstur á mótinu með nýjustu bílunum okkar."
 
"Þessi spennandi lokakafli tennisársins er kjörinn vettvangur til að sýna kosti nýja jeppans okkar og hvernig við leggjum okkur fram um að skapa einstaka upplifun fyrir viðskiptavini."
 
Eftir Evrópufrumsýninguna er stefnt að því að nýr NX komi í sýningarsali vorið 2027.

Nýr NX: sportlegri og nútímalegri ásýnd

Hönnuðir Lexus hafa þróað áfram Vital x Tech-hönnunarstefnu NX. Útkoman er sportlegri og fágaðri sportjeppi að utan, með nýju farþegarými þar sem þægindi og afslappað andrúmsloft eru í fyrirrúmi.

Bíllinn heldur sömu glæsilegu útlínunum en ný hönnunaratriði undirstrika breiða og lága ásýnd hans. Að framan er nýtt rammalaust snældulaga grill sem fellur mjúklega að yfirbyggingunni. Ný framljós sitt hvorum megin við grillið eru hönnuð fyrir fjölbreytt veðurskilyrði. Þau sameina aðlögunarhæft háljósakerfi, sem lagar lýsinguna að aðstæðum fyrir sem besta yfirsýn í myrkri, beygjuljós og ljósahreinsun. Dagljós og stefnuljós eru einnig endurhönnuð og mynda nú tvær samsíða ljósaræmur.

Á hliðunum sjást nýjar sílsahlífar og endurhannaðar fjölarma álfelgur með dökkri áferð. Að aftan mynda aftur- og hemlaljósin nýtt, áberandi mynstur þar sem L-lögunin er endurtekin.

F SPORT-útfærslurnar fá enn sterkari svip með háglanssvörtum þakbogum, þakspoiler, neðri hluta stuðara og sílsahlífum sem mynda skarpa andstæðu við yfirbygginguna. 20 tommu F SPORT-felgurnar eru með grönnum tvöföldum örmum og á milli þeirra sjást nýjar skærrauðar bremsudælur. 

Opinn og látlaus hreinleiki í anda Clean x Tech

Farþegarýmið tekur miklum breytingum, með innblæstri frá nýjum Lexus ES og væntanlegum TZ-lúxusjeppa. Mínimalísk Clean x Tech-hönnun einkennir rýmið. Rennilegt, lárétt mælaborð stillir 12,3 tommu stafrænu mælaborði og 14 tommu margmiðlunarskjá upp þannig að ökumaður þarf sem minnst að hreyfa höfuð og færa augun milli skjáa.

Faldir snertirofar Lexus, Responsive Hidden Switches, undirstrika hreint og látlaust yfirbragðið og eru nú í fyrsta sinn fáanlegir með fullri virkni. Þeir eru gott dæmi um tækni sem Lexus þróar með þarfir fólks í huga. Rofar fyrir búnað á borð við 360 gráðu umhverfismyndavélina, Panoramic View Monitor, og sjálfvirka bílastæðakerfið eru faldir í mælaborðinu þar til hönd ökumanns eða farþega nálgast. Þá lýsast þeir upp og verða sýnilegir. Við snertingu gefa þeir jafnframt áþreifanlega svörun sem staðfestir að aðgerðin hafi verið virkjuð.

Nýjar og sérkennandi yfirborðsáferðir setja einnig svip sinn á nútímalegt farþegarýmið. Þar á meðal er Forged Bamboo, en náttúrulegur breytileiki bambussins gefur hverjum fleti sinn eigin karakter.

Lexus Sensory Concierge: lúxus á þínum forsendum í hverri ferð

Lexus Sensory Concierge er nú í fyrsta sinn í boði í NX í Evrópu og gerir hverja ferð að upplifun sem höfðar til margra skilningarvita. Kerfið er enn eitt dæmið um nýsköpun með þarfir fólks í forgrunni. Það samstillir stemningslýsingu, tónlist, miðstöð, hitastig sæta og nú, í fyrsta sinn, ilm í farþegarýminu.

Í margmiðlunarkerfinu má velja á milli þriggja upplifunarstillinga: Inspire, Radiance og Revitalise. Hægt er að móta stemninguna enn frekar með 50 litatónum í lýsingunni og síbreytilegum litamynstrum á margmiðlunarskjánum.

Ilmurinn í farþegarýminu bætir svo enn einni vídd við upplifunina. Hann er þróaður í samstarfi við Givaudan, eitt af leiðandi fyrirtækjum heims á sviði ilms, snyrtivara, bragðefna og vellíðunar. Þrjú útskiptanleg ilmhylki eru staðsett í hanskahólfinu og tengjast loftræstikerfi bílsins.

Með því að flétta saman ilm, lýsingu, tónlist og hitastigi skapar kerfið einstaka upplifun sem hentar skapinu og ferðinni hverju sinni. Þannig birtist Omotenashi-gestrisni Lexus í verki.

Ný kynslóð hybridtækni með valfrelsi í fyrirrúmi

Lexus byggir á áralangri forystu sinni í hybridtækni fyrir lúxusbíla og framleikðir NX með nýrri kynslóð drifkerfa: Plug-in Hybrid-kerfi í NX 450h+ og Hybridkerfi í NX 350h. Viðskiptavinir geta því valið á milli einfaldleika og fágaðs aksturs Hybridbíls eða lengri drægni á rafmagni með Plug-in Hybrid-bíl.

Gert er ráð fyrir að báðar útfærslur verði meðal þeirra sem losa minnst af CO2 í sínum flokki. Lág eldsneytisnotkun helst þar í hendur við mjúkan, hljóðlátan akstur og góða svörun sem einkenna Lexus.

Nýja Plug-in Hybrid-kerfið er með stærri rafhlöðu en áður, en afkastagetan eykst úr 18 í 23 kWh. Samanlagt afl kerfisins verður 296 DIN hestöfl** og hröðun úr kyrrstöðu í 100 km/klst. tekur 6,1 sekúndu. NX 450h+ ekur sjálfgefið á rafmagni og áætluð rafdrægni er yfir 100 km, sem nægir vel fyrir daglegar ferðir flestra til og frá vinnu. Þegar hleðsla rafhlöðunnar gengur til þurrðar tekur sparneytið Hybridkerfið við án þess að ökumaður verði var við skiptin. Þar vinna bensínvél og rafmótor saman með lítilli losun, ólíkt kerfum margra keppinauta sem reiða sig þá eingöngu á brunavélina.

Þetta er fyrsti Plug-in Hybrid-bíll Lexus sem býður upp á hraðhleðslu með jafnstraumi. Hleðsla úr 10% í 80% tekur um 28 mínútur og auðveldar því að nýta rafakstur áfram á lengri ferðum.

Lexus hefur létt rafhlöðuna í NX 350h og fækkað rafhlöðusellum. Þökk sé endurbótum á kælingu breytist hámarksaflið þó aðeins lítillega og er nú 190 DIN hestöfl**.

Notagildi NX eykst einnig því allar útfærslur geta nú dregið allt að 1.500 kg, sem er 500 kg meira en áður.

**Bráðabirgðatala. Þróun stendur enn yfir.

Akstursupplifunin

Nýr NX styrkir enn þá eiginleika sem einkenna akstursupplifun Lexus: þægindi, öryggiskennd og góða stjórn við allar aðstæður. Drif, hemlar og stýri vinna náið saman, en stífari yfirbygging og staðsetning þungra íhluta neðar og nær miðju bílsins bæta stöðugleika og þægindi fyrir alla um borð.

Útkoman er bíll sem líður áreynslulaust um hraðbrautir, er lipur í borgarakstri og traustur á þjóðveginum. Góð svörun og þægindi í notkun gera NX að bíl sem fellur eðlilega að lífi eigandans.

Endurbættur NX var þaulprófaður og fínstilltur á prófunarbraut Lexus í Shimoyama í Japan. Í fyrsta sinn fyrir götubíl frá Lexus fóru prófanir og fínstillingar einnig fram á hinni goðsagnakenndu Nürburgring-kappakstursbraut og vegunum í nágrenninu. Þar voru aksturseiginleikarnir sérstaklega lagaðir að evrópskum vegum og óskum viðskiptavina í Evrópu.

Sérstök áhersla var lögð á góða akstursstöðu. Staða sætis, stærð stýris og uppröðun hemla- og inngjafarfótstiga voru yfirfarin í smáatriðum. Stýrið var einnig endurstillt til að bæta svörun og gera bílinn meðfærilegri. Það er létt og jafnt í viðbrögðum og veitir ökumanni góða tilfinningu fyrir stjórn.

Lexus hefur gripið til ýmissa ráðstafana til að draga úr hávaða og titringi og gera farþegarýmið enn hljóðlátara og fágaðra. Þar má nefna breytta lögun vélarblokkar og aukna hljóðeinangrun á völdum stöðum í bílnum.

Með endurbótum á burðarvirkinu, leysisuðu og sérstaklega sterkum límefnum hefur yfirbyggingin verið styrkt enn frekar. Útkoman er mýkri akstur, minni veghávaði og meiri stöðugleiki á ójöfnu undirlagi. Yfirbyggingin hefur einnig verið mótuð til að bæta loftflæði um bílinn og auka þannig stöðugleika og þægindi.

Fjórhjóladrifið, sem er staðalbúnaður í NX 450h+ og valkostur í NX 350h, hefur einnig verið endurbætt. Það grípur nú sjálfkrafa inn í við fjölbreyttari aðstæður og stuðlar að öruggum og þægilegum akstri með góðu veggripi og afli.

Stafrænt umhverfi og fjölbreyttir tengimöguleikar

Í ökumannsrýminu mynda nýtt 12,3 tommu stafrænt mælaborð og nýr 14 tommu margmiðlunarskjár samræmda heild. Margmiðlunarskjárinn er sá stærsti sem boðist hefur í NX. Ökumaður getur valið mismunandi uppsetningar og þemu fyrir mælaborðið eftir eigin smekk.

Nýjasta LexusConnect-margmiðlunarkerfið er með fjórfalt meiri vinnsluhraða, áttfalt meira geymslurými og 256 GB minni. Því er stjórnað á örþunnum skjánum eða með raddstýringu sem skilur eðlilegt tal. Græjur og flýtistillingar auðvelda aðgang að aðgerðum sem eru mikið notaðar.

Ein helsta nýjungin er að hægt er að birta kort leiðsögukerfisins í mælaborðinu. Þannig er auðveldara að fylgja leiðbeiningum án þess að athyglin færist frá akstrinum að óþörfu.

Í NX 450h+ er LexusConnect auk þess með sérstakan rafbílavalmyndaflipa sem veitir greiðan aðgang að upplýsingum um hleðslu, stöðu rafhlöðu og stillingar.

Aukið minni margmiðlunarkerfisins gerir kleift að bjóða fjölbreyttari tengda þjónustu í LexusLink+-appinu. Grunnþjónustan felur meðal annars í sér greiningu á akstri, staðsetningu bílsins og skýjatengda leiðsögn. Með fjarstýringu má meðal annars stjórna miðstöðinni og læsa bílnum eða aflæsa honum. Viðbragðstíminn er mun styttri en í fyrri kynslóð.

Nýja margmiðlunarkerfið styður einnig nýja kynslóð Lexus Smart Digital Key +. Þennan stafræna lykil má tengja við snjallsíma eða snjallúr eigandans og veita allt að sjö notendum aðgang að bílnum. Connect & Drive-þjónustupakkinn leggur áherslu á þægindi með snjallleiðsögn sem er þróuð í samstarfi við TomTom. Þar er einnig að finna Intelligent Voice Agent-raddaðstoðina, sem getur brugðist við mun fjölbreyttari fyrirspurnum en áður, svo sem um íþróttaúrslit, stöðu flugs og veður.

Connect & Secure er í boði fyrir NX í F SPORT- og Luxury-útfærslu og eykur öryggi bílsins með akstursupptökuvél, fjarstýrðri ræsivörn sem verður kynnt síðar og Car Theft Assistant-þjófnaðarþjónustu. Þessi búnaður veitir aukna vernd: myndskeið eru tekin upp í einnar mínútu lotum svo hægt sé að varðveita atburðarás rétt fyrir og eftir slys, hægt verður að virkja og afvirkja ræsivörn úr fjarlægð og rekja má bílinn ef honum er stolið, með samræmdri upplýsingagjöf til lögreglu.

Háþróuð öryggis- og akstursaðstoð

Allar nýjar NX-gerðir eru búnar nýjustu kynslóð Lexus Safety System+, með háþróuðum öryggiskerfum og akstursaðstoð.

Öryggiskerfin geta greint hættu á slysum á stærra svæði fyrir framan bílinn og í kringum hann. Þau vara ökumann við hættu á árekstri og geta, ef þörf krefur, aðstoðað við hemlun, akstur og stýringu til að koma í veg fyrir árekstur eða draga úr afleiðingum hans ef ekki er hægt að koma í veg fyrir hann.

Helstu kerfi á borð við árekstrarviðvörunarkerfið (Pre-Collision System, PCS), sjálfvirka hraðastilli með ratsjá (Dynamic Radar Cruise Control, DRCC), akreinavara (Lane Departure Alert, LDA) og akreinastýring (Lane Tracing Assist, LTA) hafa verið endurbætt til að veita enn meiri stuðning og gera aksturinn öruggari og þægilegri. Neyðarstöðvunarkerfi (Emergency Driving Stop System, EDSS) er einnig hluti af öryggisbúnaðinum. Kerfið greinir ef ökumaður verður ófær um að stjórna bílnum, þá hægir NX á sér þar til hann stöðvast á akreininni og kveikir á neyðarljósunum. 

Nýr NX: útfærslur og helsti búnaður

Nýr NX er fáanlegur í þremur búnaðarútfærslum*: Executive, Luxury og F SPORT. Allar eru með nýju framljósunum fyrir fjölbreytt veðurskilyrði, rafdrifnum og upphituðum framsætum, rafdrifnu og upphituðu stýri og rafdrifnum afturhlera. Nýja stafræna ökumannsrýmið er einnig staðalbúnaður ásamt nýjustu kynslóð Lexus Safety System +, sem sameinar öryggisbúnað og akstursaðstoð.

NX 450h+ er auk þess með nýrri 1.500 W riðstraumsinnstungu sem gerir kleift að nýta bílinn sem færanlegan aflgjafa.

Viðbætur í Executive eru meðal annars minni fyrir sætisstillingar, rafdrifinn mjóbaksstuðningur og loftræstingu í framsætum, fótskynjara fyrir handfrjálsa opnun afturhlera, dökkar afturrúður, 360 gráðu Panoramic View Monitor-umhverfismyndavél, þráðlaus símahleðsla og marglita stemningslýsing.

Luxury bætir þar ofan á 20 tommu álfelgum, sléttu leðuráklæði, upphituðum aftursætum, upplýsingaskjá í sjónlínu ökumanns og sjálfvirku bílastæðakerfi með fjarstýringu. Smart Comfort búnaðarpakkinn fylgir einnig og inniheldur nýja Sensory Concierge kerfið sem lýst er hér að framan.

NX F SPORT sker sig úr með sérhannaðri sportlegri útfærslu að innan sem utan. Þar má nefna háglanssvört atriði á yfirbyggingu, 20 tommu álfelgur með tvöföldum teinum, rauðar bremsudælur og liti sem eru sérstaklega í boði fyrir F SPORT, bæði á yfirbyggingu og innréttingu.

Fyrir Executive má velja Panorama glerþak og 20 tommu felgur. Við Luxury og F SPORT má bæta valbúnaðarpakka með Panorama glerþaki, vönduðu 17 hátalara Mark Levinson hljóðkerfi og stafrænum baksýnisspegli.

*Búnaður og heiti útfærslna geta verið mismunandi eftir mörkuðum.

Helstu tæknilegar upplýsingar - bráðabirgðatölur

Tölur innan sviga sýna breytingu frá núverandi gerð.
*1 Getur verið misjafnt eftir markaði og búnaði.
*2 Bráðabirgðatala. Þróun stendur enn yfir.
*3 Bráðabirgðatala samkvæmt WLTP. Þróun stendur enn yfir.
Gerð NX 450h+ NX 350h
Drif Fjórhjóladrif Fjórhjóladrif / framhjóladrif
Heildarlengd (mm) 4.690 (+30) 4.690 (+30)
Heildarbreidd (mm) 1.865 (0) 1.865 (0)
Heildarhæð (mm) 1.660 (0) 1.660 (0)
Hjólhaf (mm) 2.690 (0) 2.690 (0)
Eiginþyngd (kg) 2.050-2.130 *1 1.790-1.870 *1 / 1.730-1.800 *1
Hjólbarðastærð 235/60R18
235/50R20
235/60R18
235/50R20
Vél 2,5 lítra fjögurra strokka línuvél 2,5 lítra fjögurra strokka línuvél
Gírskipting Rafstýrð stiglaus gírskipting Rafstýrð stiglaus gírskipting
Afl vélar (DIN hö./kW) 140/103 *1 *2 140/103 *1 *2
Samanlagt afl kerfis (DIN hö./kW) 296/218 *1 *2 190/140 *1 *2
Hröðun 0-100 km/klst. (sek.) 6,1 *1 *2 7,7 *1 *2 / 7,8 *1 *2
Drægni á rafmagni (km) >100 km *3