Skip to Main Content (Press Enter)

FYRIRVARI LEXUS LINK+

1. Eiginleikar fjarstýringarinnar sem hér eru sýndir eru aðeins til viðmiðunar. Hafðu samband við söluaðila Lexus til að fá nánari upplýsingar um eiginleika sem eru í boði í þínu landi.

2. Einhverjir eiginleikar ráðast af gerð. Hafðu samband við söluaðila Lexus til að fá nánari upplýsingar um eiginleika sem er í boði í þinni gerð bíls.

3. Athugaðu að fjarstýrð hita- og loftstýring er mögulega ekki í boði á þínu svæði vegna gildandi reglna. Frekari upplýsingar fást hjá næsta söluaðila Lexus.

4. Þegar fjarstýringarþjónusta er notuð skaltu ganga úr skugga um að:

  • bíllinn sé kyrrstæður og umhverfi hans öruggt. Gakktu úr skugga um að fólk eða dýr séu ekki í bílnum.
  • vélarhlífin sé lokuð og að bílnum sé ekki lagt innandyra án loftræstingar.
  • þú takir tillit til umhverfisins og lágmarkir óþarfa hávaða og loftmengun. Notaðu fjarstýringarþjónustu aðeins þegar þörf krefur.
  • þú fylgir gildandi lögum sem gætu takmarkað notkun þessarar þjónustu á þínu svæði (til dæmis gæti þessi þjónusta verið eyrnamerkt rafbílum eða einkavegum).

5. Þar sem takmarkanir gætu verið vegna loftnets bílsins og sendistyrks (sérstaklega ef hindranir eru í vegi) virka sumir eiginleikar stafræns snjalllykils hugsanlega ekki eins og búist er við. Slíkt getur m.a. falið í sér opnun, læsingu og gangsetningu bílsins.

Við mælum með því að halda á símanum í hendinni þegar opna á bílinn eða læsa honum og að setja snjallsímann á miðstokkinn eða þráðlausa hleðslutækið til þess að ræsa bílinn.  

Mælt er með að hafa lykilinn tiltækan til vara þegar hægt er.