<p>Upplýsingar um búnað, útfærslur og verð sem birtast á heimasíðu okkar skal líta á sem leiðbeinandi með fyrirvara um villur. Hafðu samband við söluráðgjafa fyrir nánari upplýsingar. </p>
Fjöldi endurbóta og nýjunga hefur verið útfærður í Lexus RZ-rafbílnum, allt frá aukinni akstursdrægni og hraðari hleðslutíma til innleiðingar nýjustu kynslóðar rafrænna stýra frá Lexus. Nýr kraftmikill og lipur F SPORT bætist einnig í línuna.
AUKIN AKSTURSDRÆGNI
Ný 77 kWh rafhlaða eykur drægni allra gerða. Allt að 568 km eru nú mögulegir með einni hleðslu (tölur úr WLTP-prófun RZ 350e).
STYTTRI HLEÐSLUTÍMI
Hleðslutími hefur verið styttur með nýju innbyggðu 22 kW hleðslutæki og endurbættri forstillingu hitastigs og kælingu rafhlöðu.
EINSTAKUR LEXUS-AKSTUR
Yfirbygging RZ hefur verið gerð stífari, sem dregur úr hreyfingum hennar og stuðlar að nákvæmari stýringu.
RAFRÆNT STÝRI
Nýjasta útfærsla rafræns stýriskerfis skilar beintengdri og viðbragðsgóðri stjórn um leið og það auðveldar stýringu á hægum hraða og eykur fótarými og yfirsýn.
HINN EINI OG SANNI RZ 550E F SPORT
RZ 550e F SPORT tekur sinn stað í RZ-línunni. F SPORT er kraftmesti RZ-bíllinn til þessa og fer 0-100 km/klst. á aðeins 4,4 sekúndum.
AUKIN KYRRÐ Í FARÞEGARÝMI
Ný og endurbætt hljóðeinangrun bætir hljóðvistina í farþegarými RZ enn frekar, sem veitir hugarró við aksturinn.
Forced client side injection based on cached strategy
POST https://dxp-webcarconfig.lexus-europe.com/v1/grade-selector/is/is?modelId=d8ec0864-e0cb-4f08-9e8a-1261ee3b2d22&fbclid=IwZXh0bgNhZW0BMABhZGlkAAAv0tV-GZxzcnRjBmFwcF9pZAo2NjI4NTY4Mzc5AAEeqLL8xEzQTB38J_3tw9XZ1xflchjj8NDMpkJ0qHkYEfsB6kWEYa_BL7pqX3I_aem_8wVkYBjdiBjZIsqwGLLzLw&utm_medium=paid&utm_source=fb&utm_id=52582540034532&utm_content=52582540034332&utm_term=52582540034132&utm_campaign=52582540034532
NÝR LEXUS RZ
NÆSTA KYNSLÓÐ ER MÆTT
Hér er um að ræða fyrsta Lexus rafbílinn sem smíðaður var frá grunni og það gaf verkfræðingum okkar og hönnuðum færi á að útfæra lögun og virkni á nýjan og hrífandi máta. RZ markar upphaf nýs kafla í rafvæddri hönnun Lexus, allt frá fjórskiptum aðalljósunum sem falla inn í snældulaga yfirbygginguna til straumlínulagaðra útlína sem undirstrika sportlegt yfirbragð bílsins.
HANNAÐUR MEÐ ÞIG Í HUGA
TRAUST STAÐA
SPORTLEGT YFIRBRAGÐ
Afgerandi hönnun RZ sameinar fallega snældulaga yfirbyggingu og mótaðar útlínur. Yfirsýn er betri og loftflæði er hámarkað með lágri vélarhlíf, sem tilkomið er vegna þess að aflrásin krefst ekki lengur vélar.
Grilllaus framhluti RZ er innblásinn af hönnunarstefnu á grunni hnökralauss aksturs á rafmagni. Niðurstaðan er gullfallegur rafbíll. Einföld lögun dregur einnig úr loftmótstöðu.
Glerþakið er það breiðasta sem Lexus hefur framleitt og hægt er að skyggja glerið með dökkbláum tón með einni snertingu. Húðað glerið endurkastar sólarljósi til að draga úr hita á sólríkum dögum og halda hita í farþegarýminu þegar kaldara er í veðri.
Fágað útlit afturhluta RZ kallast á við framúrstefnulegt yfirbragð hans. Klofin þakvindskeið skila stöðugri afköstum um leið og einkennandi ljósaborðinn undirstrikar breidd bílsins og örugga stöðu.
Japanska hugtakið Takumi vísar til handverksmanns sem hefur náð óvenju háu færnistigi. Hjá Lexus hafa Takumi-meistarar yfirumsjón með öllum þáttum hönnunar, þróunar og framleiðslu. Hver og einn þarf að hafa að minnsta kosti 25 ára reynslu áður en hann getur reynt að öðlast stöðu Takumi meistara.
Tazuna er japanska hugtakið yfir tauma sem notaðir eru til að stjórna hesti. Tazuna-ökumannsrýmið er þannig uppsett að stjórnun bílsins krefst aðeins smávægilegra hreyfinga handa og augna svo þú getir haft augun á veginum.
Sjónlínuskjárinn, ökumannsskjárinn og 14" snertiskjárinn eru staðsettir til að hámarka útsýni ökumannsins. Hver og einn skjár skilar nauðsynlegum upplýsingum á skýran og hnitmiðaðan hátt til að tryggja tafarlausan aðgang og staðfestingu.
Stílhrein sætin veita góðan stuðning og fást í þremur litum, auk þess sem hægt er að velja áklæði úr Ultrasuede® og vegan-leðri. Við þetta bætist að átta stefnustillingar í framsætum eru staðalbúnaður í öllum gerðum.
Sestu í einkennandi Tazuna-ökumannsrými RZ og finndu hvernig þú nærð tafarlaust fullri stjórn á samtengdu tæknivistkerfinu. Nýr RZ er búinn tæknibúnaði sem eykur þægindi og skapar stemningu, hvort sem horft er til 64 lita stemningslýsingar og gagnvirks 14" snertiskjás eða snjallraddstýringar og leiðandi öryggisbúnaðar í flokki sambærilegra bíla.
SNJALLTÆKNI
RAFRÆNT STÝRI (STEER-BY-WIRE)
BYLTINGARKENND ÞRÓUN
Rafrænt stýri (steer-by-wire) frá Lexus er nú kynnt til sögunnar í RZ og veitir nákvæma og aðlögunarhæfa stjórn með háþróuðu stýri innblásnu af flugvélum.
Þar sem aðeins rafræn merki tengja stýrið og framhjólin, síar rafrænt stýri (steer-by-wire) út allan vélrænan titring. Öryggi er áfram í fyrirrúmi, með varakerfi sem tryggir samfellda og ótruflaða stjórn.
Rafrænt stýri (steer-by-wire) gerir kleift að stilla snúningshornið frá enda til enda í aðeins 200°. Það gerir stýringu auðveldari og nákvæmari og dregur nánast alveg úr þörfinni fyrir að færa hendurnar yfir hvor aðra við beygjur.
Fyrirferðarlítið stýri skapar meira fótarými og bætir útsýni. Auk þess sem það að leggja í bílastæði og beygjur á gatnamótum verða áreynslulausar og akstur á meiri hraða stöðugri og öruggari.
Omotenashi er hið aukna þjónustu- og gestrisnistig sem þú mátt búast við frá Lexus þegar þú heimsækir viðurkenndan þjónustuaðila. Það er einnig hugmyndafræði sem endurspeglast í mannmiðaðri tækni og lúxusþægindum Lexus bíla.
Hafðu augun á upplýsingum um bílinn, leiðsögn, öryggisbúnaði og hljóðstillingum án þess að taka þau af veginum. 10" sjónlínuskjárinn birtir allar þær upplýsingar sem þú þarft beint á framrúðunni.
Þú getur opnað bílinn, læst honum og gangsett hann án þess að taka snjallsímann úr vasanum eða töskunni. Einnig er hægt að deila fullum aðgangi með allt að fimm öðrum manneskjum.
Opnaðu afturhlerann með lykli með fjarstýringu, úr ökumannssætinu eða með því að hreyfa fótinn undir afturstuðaranum. Rafknúna opnun afturhlerans er einnig hægt að stilla í tiltekna hæð.
Þú ýtir á hnapp og háþróað bílastæðakerfið með Remote Park skannar bílastæðið og leggur bílnum fyrir þig. Einnig er hægt að stjórna þjónustunni utan bílsins með snjallsíma.
*Búnaður er misjafn eftir útfærslum
Þægindin í RZ snúast um meira en fyrsta flokks áklæði og pláss sem jafnast á við stærri sportjeppa. Þau er einnig að finna smáatriðunum, á borð við 64 lita stemningslýsinguna og nanoe™ X1-kerfinu, sem stuðlar að góðu loftflæði og viðheldur rakastigi húðar og hárs.
Geislahitarar, þeir fyrstu sem Lexus framleiðir, eru innbyggðir í S-Flow hita- og loftstýringuna, og staðsettir fyrir framan ökumann og farþega í framsæti. Þessir aukahitarar eru aukabúnaður sem sparar orku með því að beina hitanum aðeins þangað sem hans er þörf.
Framrúðan er úr sérlega vönduðu hljóðeinangrandi gleri sem tryggir algera kyrrð og næði í innanrýminu. Aðfelldir listar á hurðum styrkja hljóðeinangrun farþegarýmisins enn frekar og hlífarnar á brettaköntunum lágmarka slettuhljóð.
Þrettán hátalara Mark Levinson® Premium Surround-hljómkerfið er aukabúnaður sem er sérsniðinn að hljómburði farþegarýmisins. Kerfið skilar stafrænum heimabíóhljómi með Clari-Fi™, sem endurskapar hljóð sem tapast við stafræna MP3-samþjöppun.
Stjórnaðu ýmiss konar búnaði RZ í snjallsímanum þínum með Lexus Link+ appinu. Hægt er að nota appið til að stjórna hleðslulotum, til að hita eða kæla bílinn fyrir akstur eða til þess að deila snjalllykli sem veitir fullan aðgang að bílnum með allt að fimm öðrum manneskjum með
Fylgstu með hleðslustöðu og drægni RZ í Lexus Link+ appinu. Þú getur einnig ræst, stöðvað og tímasett hleðslu með fjartengingu og skipulagt væntanlega hleðslu á ferðinni.
Með tengdu þjónustunum okkar getur þú fundið hvernig er að vera algjörlega við stjórnvölinn og njóta fullkominna þæginda jafnt innan Lexus bílsins sem utan. Þegar þú nálgast þjónustuna með Lexus Link+ appinu, í margmiðlunarkerfi bílsins eða á þínu eigin svæði upplifir þú enn sterkari tengsl við bílinn.
Þú getur athugað stöðu RZ í rauntíma óháð staðsetningu með Lexus Link+ appinu, kannaðu hvort að hurðir séu ólæstar, rúður niðri eða farangursgeymsla opin.. Þú getur einnig notað valkostinn „Finna bílinn minn“ til að finna bílinn þinn og deila staðsetningu hans með vinum og fjölskyldu.
Forstilltu ákjósanlegt hitastig í RZ með Lexus Link+ appinu í gegnum fjartengingu. Þú getur einnig tímasett hitun eða kælingu á tilteknum tíma á hverjum degi.
Þú getur opnað bílinn, læst honum og gangsett hann án þess að taka snjallsímann úr vasanum eða töskunni. Einnig er hægt að deila fullum aðgangi að bílnum með allt að fimm öðrum manneskjum.
Aðstoðarkerfi fyrir örugga útgöngu er tengt við blindsvæðisskynjara bílsins og kemur í veg fyrir að farþegar opni dyrnar (að framan og að aftan) ef einhver er á ferð beint fyrir utan bílinn, til dæmis bílar eða hjólreiðafólk sem nálgast aftan frá.
Árekstrarviðvörunarkerfi Lexus getur komið í veg fyrir mögulegan árekstur, til dæmis við beygju til vinstri eða hægri og við framúrakstur. Það getur einnig greint hættu í tengslum við umferð úr gagnstæðri átt eða gangandi vegfarendur á leið yfir götuna við beygju á gatnamótum.
Ratsjárhraðastillirinn notar radarskynjara og myndavél til að greina ökutæki fyrir framan og halda viðeigandi fjarlægð. Ef ökutækið fyrir framan er stöðvað stöðvast RZ einnig. Þegar ökutækið fyrir framan tekur af stað gerir RZ það líka.
Viðbótaröryggispakkinn er staðalbúnaður í RZ. Hann felur í sér akreinaskiptihjálp, sem býður upp á sjálfvirk akreinaskipti á þjóðvegum, og umferðarskynjara að framan, sem varar ökumann við umferð sem nálgast frá hlið á gatnamótum.
Upplifðu meiri hrifningu, spennu og kraft með blöndu nýjustu tækni, nákvæmrar smíði og brautryðjandi nýsköpunar. Allir þættir RZ hafa verið þróaðir frá grunni með afköst, sparneytni og óviðjafnanlegan lúxusakstur í huga. Auk þess eru einkennandi akstursgæði, kyrrð og ítarleg vernd Lexus tryggð með háþróuðum stöðugleika RZ-byggingarlagsins.
RAFBÍLAR
LEXUS RZ
RAFBÍLARRZ 350eRZ 350e er silkimjúkur í akstri og ber með sér ný viðmið fyrir lúxusrafbíla. Bíllinn veitir 224 DIN hestöflum/165 kW afli í framhjólin sem skilar honum 0-100 km/klst. á 7,5 sekúndum og allt að 568 km drægi. Þess utan tekur hleðsla RZ styttri tíma, þökk sé forstillingarkerfi rafhlöðunnar og 22 kW innbyggðu hleðslutæki.
REYNSLUAKA RZSETTU SAMAN LEXUS RZ FYRIR ÞIGRZ 500eRZ 500e býður upp á fyrsta flokks lúxusafköst og er búinn nýju DIRECT4-aldrif, sem skilar alls 380 DIN hestöflum/280 kW jafnt til fram- og afturöxla. Þú ert 4,6 sekúndur frá 0-100 km/klst. og nýtur allt að 500 km drægi. Byltingarkennd akstursupplifun, sem einkennist af bæði nákvæmni og sveigjanleika, er í boði í RZ 500e- og RZ F SPORT gerðunum með nýju rafrænu stýri frá Lexus.
REYNSLUAKA RZSETTU SAMAN LEXUS RZ FYRIR ÞIGRZ 550e F SPORTRZ 550e F SPORT er kraftmesta RZ-gerðin og býður upp á algerlega einstaka akstursupplifun. Bíllinn býr yfir 408 DIN hestöflum/300 kW og getur náð 100 km/klst. á rétt rúmlega 4,4 sekúndum. Til að tryggja að fjöðrunin, fyrsta gagnvirka beinskipting Lexus og DIRECT4-aldrifið uppfylli afkastastaðla F-SPORT hefur þessi búnaður verið bæði prófaður og stilltur af ökumeisturum Lexus á kappakstursbrautinni okkar.REYNSLUAKA RZSETTU SAMAN LEXUS RZ FYRIR ÞIGAKSTURSUPPLIFUNHRATT VIÐBRAGÐ, MIKIL NÁKVÆMNILiprir og þægilegir aksturseiginleikar RZ tryggja afkastagetu sem eflir sjálfstraustið, tryggir þér aukna stjórn og eykur þægindin við allar akstursaðstæður. RZ fullnýtir alla eiginleika rafbílsins, svo sem hratt viðbragð og nákvæmni, án þess að það komi niður á hinum margrómaða einstaka Lexus-akstri.REYNSLUAKA RZSETTU SAMAN LEXUS RZ FYRIR ÞIGRAFMÖGNUÐ SKEMMTUNRZ virkar sem fínstilltur fyrir þig. Einstakur stöðugleiki undirvagnsins og lægri þyngdarmiðja skila bílnum spennandi hröðun, lipurð í akstri og sérlega viðbragðsfljótri hemlun.REYNSLUAKA RZSETTU SAMAN LEXUS RZ FYRIR ÞIGSNJALLT AFL MEÐ DIRECT4RZ 500e og RZ 550e F SPORT eru með DIRECT4-kerfinu, með samfelldri stillingu togs til fram- og afturöxla og hnökralausri tilfærslu akstursátaks. Niðurstaðan er áreynslulaus afköst og nákvæm stjórn.REYNSLUAKA RZSETTU SAMAN LEXUS RZ FYRIR ÞIGÓTRÚLEGA STERK YFIRBYGGINGNýtt heildrænt byggingarlag Toyota fyrir rafbíla er ótrúlega sterkbyggt og rafhlöðueiningin er innbyggð í undirvagninn undir farþegarýminu. Þetta stuðlar að lægri þyngdarpunkti RZ, sem aftur tryggir enn betra jafnvægi, stjórn og viðbragð.REYNSLUAKA RZSETTU SAMAN LEXUS RZ FYRIR ÞIGLÍFIÐ MEÐ RZHÁÞRÓUÐ RAFHLÖÐUTÆKNIRZ er knúinn með öflugri 77 kWh rafhlöðu með nýjustu Li-ion tækninni sem skilar þér hrífandi afköstum á miklum hraða. Drægi í blönduðum akstri samkvæmt WLTP-prófunum yfir alla línuna er allt frá 568 km fyrir RZ 350e, 500 km fyrir RZ 500e og 450 km fyrir RZ 550e F SPORT.REYNSLUAKA RZSETTU SAMAN LEXUS RZ FYRIR ÞIGLIPUR, RÚMGÓÐUR OG STÍLHREINNRZ er einstaklega lipur og áreynslulaus í akstri. Jafnvel á hefðbundnum vegum upplifir þú áður óþekkta akstursgleði. Meðal helstu kosta má nefna enga losun frá útblástursröri, endurheimt hemlaorku og rúmgott innanrými með miklu fótarými og farangursrými.REYNSLUAKA RZSETTU SAMAN LEXUS RZ FYRIR ÞIGÓVIÐJAFNANLEG REYNSLA EIGENDAÍ dag eru yfir 2,5 milljónir Lexus-rafbíla á götunum. Allir voru þeir smíðaðir í Japan samkvæmt þeim nákvæmu gæðakröfum sem tryggja áreiðanleika Lexus um allan heim.REYNSLUAKA RZSETTU SAMAN LEXUS RZ FYRIR ÞIG
AUKAHLUTIR
Aukahlutirnir okkar eru hannaðir til að færa þér fulla stjórn og sveigjanleika og eru þaulhugsaðir til að gera upplifun þína af RZ enn betri.
Inniheldur rennilega þverbita, rúmgott farangursbox og aftengjanlegan dráttarkrók.
HLÍFÐARPAKKI
Inniheldur lakkvarnarfilmu, sætisbakhlífar á aftursæti, hljóðdeyfandi, svartar ofnar gólfmottur og skottmottur úr textílefni og leðri sem auðvelt er að þrífa.
ÚTLITSPAKKI
Inniheldur svartar 18" álfelgur með örmum, fyrsta flokks gólfmottur úr textílefnum og leðri og upplýstar sílsahlífar.