1. Eigendur
  2. Sporlaus á nýjum Hybrid
Lexus á Íslandi
 EIGENDUR

SPORLAUS Á NÝJUM HYBRID

Akstur allra nýrra Hybrid bíla frá viðurkenndum söluaðilum Lexus á Íslandi, seldum frá og með 1. janúar 2019, er núna kolefnisjafnaður að fullu í samstarfi við Kolvið. Njóttu þess að aka sporlaust á Hybrid.

LEXUS ÍSLAND KOLEFNISJAFNAR NOTKUN ALLRA NÝRRA HYBRID BÍLA

Allir nýir Lexus Hybrid bílar sem seldir eru eftir 1. janúar 2019 verða kolefnisjafnaðir út líftíma sinn. Verkefni er unnið í samstarfi við Kolvið sem hefur á undanförnum árum gefið bíleigendum kost á að kolefnisjafna notkun á bílum sínum. Þar með eru nettó umhverfisáhrif notkunar á Hybrid bílum engin.

Á heimasíðu Kolviðar er reiknivél sem reiknar kostnað við að kolefnisjafna notkun bíla. Rétt er að skoða þessa reiknivél til að átta sig á hvernig þetta virkar. Miðum við að bíllinn sé ekinn 15.000 km á ári og notum hæstu eyðslutölu sem gefin er upp fyrir viðkomandi bíl á mismunandi hraða.

Ef reiknivélin er notuð má sjá að t.d. Lexus RX 450h eyðir 5,5 l á 100 km á mismunandi hraða. Samkvæmt reiknivél Kolviðar losar þessi akstur á einu ári 1,9 tonn af CO2 og til þess að kolefnisjafna aksturinn þarf að planta 19 trjám á ári sem binda munu CO2 yfir líftíma sinn. Kolviður sér um að planta trjánum og hirðir um þau í framtíðinni.

AF HVERJU ER LEXUS ÍSLAND AÐ GERA ÞETTA?

Bílar menga en Lexus og aðrir bílaframleiðendur keppast við að draga úr umhverfisáhrifum bíla sem þeir selja. Þessar aðgerðir styðja því fullkomnlega við markmið Lexus - um að fyrir árið 2050 verði enginn losun CO2frá framleiðslu, notkun eða förgun bíla. Skógrækt er viðurkennd aðferð til kolefnisjöfnunar. Með samstarfi við Kolvið erum við að vinna að kolefnisjöfnun sem byggð er á vísindalegum grunni.