ALGENGAR SPURNINGAR

Til að bæta við bíl smellirðu annaðhvort á „Bæta við öðrum bíl“ á heimasíðunni eða, ef þú ert þegar með ökutæki, smellir á táknið „Bílskúrinn minn“ á „Bæta við bíl“-hnappinn efst til hægri. Til að eyða bíl opnar þú „Bílskúrinn minn“, flettir niður og smellir á „Fjarlægja bíl“.

Í Lexus Link+ appinu velurðu fyrst bílinn þinn úr „Bílskúrinn minn“, en smellir svo á „Tengdar þjónustur - Yfirlit“. Fylgdu síðan flæðinu til að virkja tengdar þjónustur sem eru í boði fyrir ökutækið þitt.

 

Ef einn eða fleiri tengdir bílar í „Bílskúrinn minn“ hafa ekki enn verið virkjaðir færðu kvaðningu með upphafsskjá um að virkja tengda þjónustu í hvert sinn sem þú skráir þig inn í appið. Ef þú sleppir þessu skrefi geturðu samt virkjað það síðar með því að fylgja skrefunum hér að ofan.

 

Athugaðu: í virkjunarferlinu þarftu að samþykkja notkunarskilmálana og staðfesta persónuverndaryfirlýsinguna.

Ef þú vilt slökkva varanlega á tengdum þjónustum í Lexus Link+ appinu skaltu fyrst velja bíl í „Bílskúrinn minn“ og smella svo á Tengdar þjónustur - Yfirlit. Fylgdu leiðbeiningunum til að slökkva á þjónustunni.

Lexus Link+ appið gerir þér kleift að hafa stjórn á bílnum hvar sem þú ert. Það er auðvelt í notkun og veitir þér aðgang að einstökum eiginleikum sem gera upplifunina að öðru og meira en bara akstri milli staða. Þú getur skipulagt ferðir, séð hvar þú lagðir bílnum, fengið upplýsingar um hvenær þarf að sinna viðhaldi, skoðað gögn um bílinn og fengið mikilvægar tilkynningar, ásamt því að geta fjarstýrt loftræstikerfi, hurðum og hættuljósum bílsins.

Röðin með táknunum fimm vísar til eftirfarandi hluta, frá vinstri til hægri:

 

  • Bíllinn - Kort - Tilkynningar - Aðgangur - Aðstoð

Þú getur opnað tengdu þjónusturnar hvenær sem þér hentar. Gögn um bílinn eru send í appið í hvert sinn sem drepið er á vélinni. Þú getur skoðað upplýsingar um síðustu ferð um leið og þú hefur drepið á vélinni. Til að senda gögn þarf að vera með farsímagagnasamband og því virkar þetta hugsanlega ekki ef bílnum er lagt í bílastæðahús neðanjarðar.

Aðgangsupplýsingarnar eru þær sömu fyrir Lexus Link+ appið og fyrir mínar síður. Hægt er að breyta aðgangsorðinu á báðum stöðum. 

 

Til að breyta aðgangsorði skaltu opna innskráningarskjáinn og velja „Gleymt lykilorð“.

Söluaðilinn þinn þarf að staðfesta hver þú ert til að tryggja að óviðkomandi geti ekki nálgast persónuupplýsingar viðskiptavina Lexus.

 

Þú færð beiðni um að fara til söluaðilans vegna þess að það er algert forgangsatriði hjá Lexus að vernda persónuupplýsingar viðskiptavina.

  • Þú þarft að segja upp áskriftinni að tengdum þjónustum og fjarlægja bílinn af aðgangi þínum í appinu.
  • Þú þarft að fjarlægja notandasnið af aðalskjánum
  • Ekki eyða aðganginum, því þeim Lexus bílum sem þú kannt að eignast í framtíðinni verður bætt við aðganginn. Mundu að láta nýjan eiganda bílsins vita að bíllinn sé með aðgang að tengdum þjónustum.

Tengdar þjónustur stöðvast ef verksmiðjunúmer bílsins er fjarlægt af aðganginum.

Smelltu á aðgangstáknið neðst til hægri á yfirlitsstikunni til að gera breytingar á notandastillingum.

Tengdar þjónustur eru innifaldar í kaupunum á öllum Lexus bílum sem eru samhæfir við tengdar þjónustur, í tíu ár.

 

Tengdar þjónustur eru einnig innifaldar fyrir bíla sem eru búnir snjallþjónustum, í fjögur ár.

Tengdar þjónustur Lexus Link+ appsins virka í 10 ár. Lexus greiðir gagnakostnaðinn vegna tengdu þjónustunnar í þessi 10 ár, en Lexus Link+ appið virkar einnig án tengdra þjónusta.

Á skjámyndinni „Bílskúrinn minn“ er hægt að smella á hnappinn „Valinn söluaðili“ undir „Þjónusta og viðhald“. Hér getur þú sett upp þann söluaðila sem þú vilt helst eiga viðskipti við.

Hybrid akstursþjálfun kennir þér hvernig þú getur bætt hybrid aksturinn, út frá fyrri ökuferðum, og hvernig þú nýtir EV stillinguna best til að draga úr eldsneytisnotkun og umhverfisáhrifum.

Já, fyrir valdar gerðir. Á mælaborðinu á heimasíðunni er hægt að skoða núverandi eldsneytisstöðu, bæði á mæli og sem drægni.

Já, á völdum gerðum geturðu séð stöðuna á hurðum, gluggum, farangursgeymslu og ljósum bílsins. 

 

Til að athuga stöðuna ferðu á upphafssíðuna. Smelltu á hnappinn „Staða bílsins“.

 

 Til að fá frekari upplýsingar um þá eiginleika sem eru í boði fyrir hverja gerð skaltu hafa samband við viðurkenndan söluaðila eða skoða upplýsingarnar á vefsvæði Lexus fyrir þitt svæði.

Já, á völdum gerðum er hægt að nota appið til að læsa / taka úr lás úr fjarlægð. Á fjarstýringarskjánum er að finna hnappana til að læsa / taka úr lás.

 

Hafðu í huga að ekki verður hægt að:

  • Læsa bílnum ef einhverjar dyr eru opnar og/eða ef snjalllykillinn er inni í bílnum 
  • Taka bílinn úr lás ef þjófavörnin er virk eða ef bílnum var læst handvirkt með lykli

 

Til að fá frekari upplýsingar um þá eiginleika sem eru í boði fyrir hverja gerð skaltu hafa samband við viðurkenndan söluaðila eða skoða upplýsingarnar á vefsvæði Lexus fyrir þitt svæði.

Já, hægt er að staðsetja valdar gerðir á fjölförnu bílastæði með því að kveikja á hættuljósum ökutækisins úr fjarlægð. 

 

Opnaðu fjarstýringarkortið í Lexus Link+ appinu. Með því að smella á „Hættuljós“ er hægt að kveikja á hættuljósum bílsins og þannig er auðvelt að finna hann.

 

Hættuljósin loga í 60 sekúndur. Eftir 60 sekúndur getur þú aftur kveikt á hættuljósunum. 

 

Til að fá frekari upplýsingar um þá eiginleika sem eru í boði fyrir hverja gerð skaltu hafa samband við viðurkenndan söluaðila eða skoða upplýsingarnar á vefsvæði Lexus fyrir þitt svæði.

Opnaðu stjórnborðið „Þjónusta“ og veldu „Hybrid akstursþjálfun“ (fyrir hybrid bíla), „EV þjálfun“ (fyrir rafbíla) eða „Talnagögn um akstur“ (fyrir órafmagnaða bíla). Veldu flipann „Ferðir“ til að sjá fyrri ferðir og smelltu svo á ferð til að skoða viðkomandi talnagögn um akstur. Þú getur líka fundið upplýsingar um síðustu ferð á stjórnborðinu „Heima“.

Lexus Link+ appið er stutt í: 

  • iOS-tækjum með útgáfu 15.0 eða nýrri
  • Android-tækjum með útgáfu 7.0 eða nýrri, en ekki frá vörumerkinu Huawei (Huawei setti á markað eigið stýrikerfi, HarmonyOS, í júní 2021)

Þú getur fundið útgáfu appsins neðst í hlutanum „Aðgangur“.

Þú þarft að slá inn innskráningarupplýsingarnar þínar í margmiðlunartæki bílsins. Því næst þarftu að tengja margmiðlunarkerfið við verksmiðjunúmer (VIN) bílsins. Þá þarftu Bluetooth tjóðrun til að tengja bílinn við netið. Eiginleikinn „Áfangastaðirnir mínir“ virkar núna. 

Ef þú ert með startkapla geturðu fengið start frá öðrum bíl með því að fylgja leiðbeiningunum í eigendahandbókinni.

Já og nei. Það er hægt að bæta bíl við marga aðganga, en það er aðeins hægt að fá aðgang að tengdum þjónustum eða öðrum persónuupplýsingum gegnum einn aðgang.

Farðu í iOS App Store eða Google Play Store og leitaðu að „Lexus Link+ app“. Þú getur svo hlaðið því niður, þér algjörlega að kostnaðarlausu.

Aðgangurinn þinn er notaður í bæði Lexus Link+ appinu og Mínum síðum. Hægt er að stofna aðgang í báðum kerfunum af innskráningarskjá. Eftir að aðgangurinn hefur verið stofnaður færð þú virkjunartölvupóst sem þú þarft að staðfesta áður en þú færð aðgang að aðgangnum þínum og bætir bílnum/bílunum þínum við.

Fáanlegt á völdum gerðum, Fjarstýrða hitastýringu er hægt að fjarvirkja í gegnum Lexus Link+ appið til að kæla/hita innanrými bílsins.

Frá fjarstýringarskjánum/ muntu geta ræst Fjarstýrða hitastýringu í 10 mínútur fyrir Hybrid bíla, en 20 mínútur fyrir Plug-in Hybrid- og rafmagnsbíla. Þegar Fjarstýrð hitastýring er virkjuð gefur Lexus Link+ appið til kynna hversu mikill tími er eftir þar til aðgerðinni lýkur. Fjarstýrða hitastýringu er hægt að endurnýja tvisvar (2x10 mín eða 2x20 mín).

Athugaðu að á sumum ökutækjum fer vél bílsins einnig í gang þegar kveikt er á Fjarsýrðri hitastýringu. Þar af leiðandi verður kveikt á öllum aukastillingum sem notaðar voru í síðustu ferð (áður en slökkt var á bílnum) (t.d. hitastillingum, sætahitun, útvarpi o.s.frv.).  

 

Á völdum bílum eru frekari möguleikar í boði með Fjarstýrði hitastillingu. þessir möguleikar eru:

  • Fjarstýrð hitastýring í sætum, sætishitara, stýrishitara og afþíðingu.
  • Forstillt Fjarstýrð hitastýring: ákveðið fyrirfram hvenær bíllinn á að kæla eða hita innanrýmið.

 

Rafmagnsbílar og Plug-in Hybrid bílar þurfa að hafa að minnsta kosti 20% eða 30% hleðslu á rafhlöðunni til að geta notað hitastýringuna.

Ef hitastig utandyra fer undir -10°C mun fjarstýrða hitastýringin ekki virka á rafmagns- og Plug-in Hybrid bílum.

Þegar bíl hefur verið bætt við aðganginn er ekki lengur hægt að nota eldri útgáfuna af Lexus Link+ appinu fyrir sama bíl. Ef þú átt hins vegar fleiri en einn Lexus bíl verður áfram hægt að nota eldri útgáfu appsins fyrir gerðir sem hafa ekki enn verið færðar í nýju útgáfuna.

Þú getur skoðað bæði virkar og óvirkar áskriftir með því að opna „Bílskúrinn minn“ og velja hlutann „Tengdar þjónustur - Yfirlit“.

Þú getur skoðað notkunarskilmálana í gagnaverndargáttinni á aðganginum þínum.

Þú getur skoðað persónuverndaryfirlýsinguna þína í gagnaverndargáttinni á aðganginum þínum.