1. Nýir bílar
Lexus á Íslandi
Byrjar í (m. vsk)
10.490.000 kr.

Útfærslur

Veldu útfærslu

4 Valmöguleikar

  • ES - Comfort - Sedan

    ES Comfort

    Hybrid
    Sedan
    • +
      Afturljósasamstæða, LED-ljós
    • +
      Beygjuljós, LED-ljós
    • +
      Bílastæðaskynjarar að framan og aftan

    Select Engine

    Frá

    10.490.000 kr.

    Sjálfskiptur (CVT) | 4X2
  • ES - Exe - Sedan

    ES Exe

    Hybrid
    Sedan
    • +
      Aðalljós, þreföld LED-ljós
    • +
      Afturljósasamstæða, LED-ljós
    • +
      Beygjuljós, LED-ljós

    Select Engine

    Frá

    11.590.000 kr.

    Sjálfskiptur (CVT) | 4X2
  • ES - F Sport - Sedan

    ES F Sport

    Hybrid
    Sedan
    • +
      Aðalljós, þreföld LED-ljós
    • +
      Afturljósasamstæða, LED-ljós
    • +
      Beygjuljós, LED-ljós

    Select Engine

    Frá

    12.550.000 kr.

    Sjálfskiptur (CVT) | 4X2
  • ES - Luxury - Sedan

    ES Luxury

    Hybrid
    Sedan
    • +
      Aðalljós, þreföld LED-ljós
    • +
      Afturljósasamstæða, LED-ljós
    • +
      Beygjuljós, LED-ljós

    Select Engine

    Frá

    13.190.000 kr.

    Sjálfskiptur (CVT) | 4X2

BÚÐU ÞIG UNDIR NÝTT OG DJARFT ÚTLIT

Lexus ES brýtur öll fyrirframgefin viðmið fyrir fólksbíla með djarfleika sínum. Hann nýtur góðs af nýrri nálgun á hönnun og er bæði lægri, breiðari og rennilegri. Í honum sameinast útlínur sem svipa til tveggja dyra fólksbíla og rýmið og fágunin sem fólksbílar í fremstu röð státa af. ES er jafnframt fulltrúi glæsileika og þæginda.

NÝTT OG DJARFT ÚTLIT

Undirvagninn í ES-bílnum ýtir undir glæsilegt útlitið frá hlið, breiða stöðuna og lága þyngdarmiðjuna. Auk þess býður hann upp á nægt fótarými og pláss fyrir farþega, þrátt fyrir rennilega þaklínu tveggja dyra fólksbíls.

Óviðjafnanleg nákvæmni

Takumi-meistararnir okkar hafa yfirumsjón með öllum glæsilegu smáatriðunum, hvort sem það eru sætissaumarnir eða afgerandi skreytingarnar úr áli í farþegarýminu, sem eru innblásnar af Hadori-fægðum japönskum sverðum.

Sjálfhlaðandi Lexus Hybrid-bíll – 4. kynslóð

ES 300h tilheyrir 4. kynslóð sjálfhlaðandi Lexus-bíla með Hybrid-aflrás. Bíllinn skiptir jafnóðum yfir í rafbílastillingu (EV) í borgarakstri, án þess að valda nokkurri útblástursmengun. Það eina sem þú tekur eftir er ótrúlega viðbragðsfljótur en fágaður kraftur ásamt einstakri sparneytni bílsins.

Framsækin tækni

Þegar þú sest undir stýri í ES 300h heillastu umsvifalaust af einstakri hönnun ökumannsrýmisins þar sem áherslan er á að lágmarka alla truflun. Sjónlínuskjárinn tryggir að þú einbeitir þér að veginum framundan og aðrir eiginleikar á borð við akstursstillingarofa og stjórnborð með snertiskjá eru staðsettir þannig að auðvelt er að ná til þeirra án þess að skipta um akstursstöðu.

5 stjörnu öryggi

Hvert sem leiðin liggur í Lexus ES er traustvekjandi að vita að þú ekur einum öruggasta lúxus sedan-bíl sem framleiddur hefur verið. Öryggi bílsins hefur verið staðfest með 5 stjörnu einkunn í árekstrarprófunum Euro NCAP og árið 2018 hlaut hann nafnbótina „leiðandi í flokki sambærilegra bíla“ í árekstrarprófunum Euro NCAP á meðal hybrid-, rafknúinna og stórra fjölskyldubíla. Þetta mikla öryggi má þakka tækni á borð við Lexus Safety System + sem felur í sér hugvitssamlegt árekstrarviðvörunarkerfi sem getur nú greint gangandi vegfarendur í myrkri og hjól að degi til.

 

F SPORT-útlit

ES F SPORT eru með áberandi og kröftugt útlit, sérhannað, einkennandi Lexus-grill og netta vindskeið að aftan. Staðlaðar 18 tommu álfelgurnar og áberandi yfirbyggingarlitirnir leggja áherslu á afkastagetuna sem styrkist með AVS-fjöðrun bílsins. Inni í bílnum eru sportsæti, gírstöng með götuðu leðri og F SPORT-stýri ásamt vélunnum álfótstigum og innfelldum hliðarplötum á mælaborðinu.

 

 

ES-MYNDASAFN

Sérhver mynd hefur sögu að segja. Hér hefst ferðin þar sem þú færð að skoða ótrúlega hönnun og lýtalaust gæðahandverk Lexus-bílsins.