
ALRAFKNÚINN
SVONA VIRKA ALRAFKNÚNIR BÍLAR
Uppgötvaðu nýjan heim Lexus rafbíla, þar sem einfalt er að hlaða bílinn orku sem dugir langt út fyrir sjóndeildarhringinn.
SLAKAÐU Á MEÐAN ÞÚ HLEÐUR BATTERÍIN
Stingdu einfaldlega í samband heima eða á næstu hleðslustöð. Kynntu þér hvaða leiðir eru í boði til að hlaða Lexus og hversu lengi þú ert að fylla á rafhlöðuna.
-
HRAÐHLEÐSLA MEÐ JAFNSTRAUMI51 minsÁætlaður hleðslutími fyrir rafhlöðu úr 5 í 80% með jafnstraumi*HEIMAHLEÐSLA MEÐ RIÐSTRAUMI8 klst. og 2 mín.Áætlaður hleðslutími fyrir rafhlöðu úr 0 í 100% með riðstraumi*
-
HRAÐHLEÐSLA
Mikil og hröð fjölgun hleðslustöðva hefur í för með sér að nú er auðveldara en nokkru sinni fyrr að halda bílnum gangandi þegar þú ert á ferðalagi. Hleðsluhraðinn veltur að miklu leyti á afli stöðvarinnar. 50 kW stöð getur hlaðið upp í 80% á aðeins 30 mínútum. Hraðhleðslustöðvar (7–22 kW) geta fullhlaðið sumar gerðir bíla á 3–4 klukkustundum. Flestar almenningshleðslustöðvar eru hraðhleðslustöðvar.
-
GERÐIR HLEÐSLU
AÐ FINNA HLEÐSLUSTÖÐ
Aktu áhyggjulaus hvert á land sem er í þeirri vissu að þétt net hraðhleðslustöðva um alla Evrópu tryggir þér örugga hleðslu steinsnar frá. Og ekki nóg með það, heldur finnur bíllinn stöðina fyrir þig og lætur vita hvenær halda má ferðinni áfram.
-
SKIPULAGNING
Þetta er ekki flókið. Færðu inn áfangastaðinn á snertiskjáinn og Trip Planner-eiginleikinn skipuleggur leiðina að næstu hleðslustöð.
ENDURHLEÐSLA
Þú kemur á hleðslustöðina og færð þér kaffibolla á meðan rafhlaðan hleður sig, sem tekur mínútur en ekki klukkustundir.
TILBÚINN AF STAÐ
Lexus-forritið lætur þig vita þegar bíllinn er tilbúinn að fara af stað. Búðu þig undir næsta áfanga ferðarinnar.
-
GERÐIR HLEÐSLU
HRAÐHLEÐSLUTÆKNI
Í dag eru um 100.000 hleðslustöðvar í Evrópusambandinu og búast má við að þeim fjölgi í tvær milljónir á næstu fimm árum. Þó að sumar almenningshleðslustöðvar bjóði upp á „opinn aðgang“, sem þýðir að notkunin er gjaldfrjáls, tilheyra flestar þeirra tilteknum þjónustuveitendum þannig að þú gætir þurft sérstakt kort eða farsímaforrit.
HEIMAHLEÐSLA
Auðvelt er að koma Lexus-heimahleðslustöðinni fyrir heima og með henni geturðu fullhlaðið bílinn á rétt rúmlega 8 klukkustundum. Með Lexus Link færðu ýmsa sniðuga eiginleika eins og hámarkshleðslustillingu sem gerir bíleigendum sem búa uppi á hæð kleift að nota endurnýtingarhleðslu þegar þeir fara að heiman.
-
GERÐIR HLEÐSLU
UPPSETNING HEIMAHLEÐSLUSTÖÐVAR
Mælt er með því að fá verkfræðing til að setja upp heimahleðslustöðina og Lexus útvegar traustan samstarfsaðila til að sjá um það. Tryggt er að raflagnir hleðslustöðvarinnar séu öruggar og samkvæmt tilskildum stöðlum.
-
HRAÐARI HLEÐSLA
Meira afl hleður rafhlöðuna hraðar.
SPARNAÐUR
Í sumum löndum er boðið upp á allt að 75% styrk fyrir byrjunarkostnaði við hleðslubúnaðinn.
LÆGRI GJÖLD
Margir dreifingaraðilar rafmagns bjóða upp á lægri gjöld að næturlagi, sem gæti dregið úr kostnaðinum.
-
AKTU UM AF ÖRYGGI
Þú kemst lengra en þig óraði fyrir í Lexus-rafbíl. Sestu í ökumannssætið og ferðastu borga á milli af öryggi, vitandi að þú kemst örugglega á áfangastað og vel það.

278 KM
MÍLANÓ → FENEYJAR

309 KM
ZÜRICH → MÜNCHEN

312 KM
BRUSSEL → PARÍS
LÁTTU RAFHLÖÐUNA ENDAST LENGUR
Hægt er að auka drægið, sem er þó gott fyrir, í bílunum okkar sem eru eingöngu rafknúnir, með nokkrum einföldum ráðum sem spara peninga og draga úr orkunotkun á ferðinni.
-
SVONA VIRKA ALRAFKNÚNIR BÍLAR
AKTU AF SKYNSEMI
Til að hámarka drægið fylgist bíllinn þinn með afköstunum og fínstillir aksturinn. Þú getur líka breytt akstursstillingum til að auka drægið. Rafbílar þurfa mjög lítið viðhald. Þrátt fyrir það geta einföld atriði eins og réttur þrýstingur í hjólbörðum og loftsíuskipti lengt drægi rafhlöðunnar um nokkra km á hverri hleðslu.
SVONA VIRKA ALRAFKNÚNIR BÍLAR
HAFÐU ÞAÐ SVALT
Ef bílar standa oft og lengi í miklum hita geta afköst rafhlöðunnar minnkað hraðar. Til að tryggja hámarksdrægi skaltu fara sparlega með loftkælinguna.
SVONA VIRKA ALRAFKNÚNIR BÍLAR
MÝKRA ER BETRA
Hæg og mjúk hröðun eykur skilvirkni allra rafbíla. Með því að forðast mikla og snögga hröðun, sérstaklega í mikilli umferð, geturðu aukið verulega drægið sem þú færð út úr hverri hleðslu.
-
FRAMSÆKIN RAFHLÖÐUTÆKNI

SVONA VIRKA ALRAFKNÚNIR BÍLAR
ÖRYGGI ÚT ENDINGARTÍMANN
Rafhlaðan sem knýr Lexus-bílinn þinn endist yfirleitt jafnlengi og bíllinn sjálfur. Rannsóknir sýna að margir rafbílar eru enn með í kringum 75% afköst rafhlöðu eftir 193.000 km akstur. Aðrar sýna enn lengri endingartíma, með 5% afkastatapi eftir 80.000 km og öðru 5% afkastatapi eftir 241.000 km. Þar sem meðalökumaður rafbíls ekur aðeins í kringum 15.000 km á ári þurfa fæstir nokkurn tíma að skipta um rafhlöðu.

SVONA VIRKA ALRAFKNÚNIR BÍLAR
VEL VARIÐ
Til að tryggja langa og áhyggjulausa endingu eru rafhlöðurnar okkar búnar framúrskarandi kæli- og hitakerfum, með endingargóðum gúmmíþéttingum sem verja þær fyrir hvers kyns vökva og ryki. Einnig býður Lexus 10 ára (eða 1 milljón km) framlengda viðhaldsáætlun fyrir rafhlöður í rafbílum vegna allra virknigalla í aðalrafhlöðunni og afkastaminnkunar niður fyrir 70%, að því gefnu að reglulegri ástandsskoðun sé sinnt.

SVONA VIRKA ALRAFKNÚNIR BÍLAR
ÞÚ ÞARFT ENGAR ÁHYGGJUR AÐ HAFA
Þú ert í öruggum höndum – Lexus hefur þegar afhent fleiri en 1,5 milljónir hybrid-bíla og nýi sjálfhlaðandi Lexus

SVONA VIRKA ALRAFKNÚNIR BÍLAR
ENDURVINNSLA Á EINFALDARI HÁTT
Þegar komið er að lokum endingartíma rafhlöðunnar í UX 300e erum við með endurviðtökuáætlun til að tryggja vistvæna, örugga og ábyrga endurvinnslu hennar. Eins og er endurheimtum við yfir 90% rafhlaðna okkar frá söluaðilum okkar í Evrópu en markmiðið er að hlutfall endurviðtöku verði 100% í öllum rekstri okkar.