Tækniorðasafn

Aðlögunarhæfur skriðstillir (ACC)

Aðlögunarhæfur skriðstillir (ACC) er afhentur ásamt valkostinum Árekstrarforvarnarkerfi (PCS), þar sem hann notar sömu háþróuðu millimetrabylgju-ratsjártæknina. ACC virkar rétt eins og hefðbundinn skriðstillir - þar til ratsjáin greinir ökutæki framundan sem fer hægar. Kerfið dregur þá úr hraða samkvæmt því með því að slaka á inngjöfinni eða beita hemlunum. Ökumaðurinn getur þá valið fylgivegalengd fyrir ökutæki-til-ökutækis, sem ACC viðheldur sjálfkrafa með því að beita hemlunum eða inngjöf til að samsvara hraða ökutækisins á undan. Þegar vegurinn framundan er aftur auður snýr ACC mjúklega aftur á upphaflegan ferðahraða.

Aðlögunarhæf breytileg fjöðrun (AVS)

Aðlögunarhæf breytileg fjöðrun (AVS) stillir sjálfvirkt frammistöðu fjöðrunarinnar á öllum fjórum hjólum fyrir sig. AVS, sem byggð er á gögnum sem berast frá fjölda skynjara sem staðsettir eru um bifreiðina, virkjar stillanlegan dempunarkraft hvers höggdeyfis til að tryggja bestu mögulegu stjórn bifreiðarinnar á breiðu sviði akstursaðstæðna. Þetta tryggir bestu stjórnun og akstursþægindi, öllum stundum. Hægt er að víxla AVS milli mismunandi hama, en það fer eftir Lexus-gerðinni. "Sport" til dæmis veitir virkari og heillandi akstursupplifun.

Háþróaður, fyrirferðarlítill rafgeymir

Hérna er rafaflið sem Lexus blendingsdrifið framleiðir geymt þar til þess er þörf. Hinn háþróaði fyrirferðarlitli nikkel-málmvetnissambandsrafgeymir (Ni-MH), sem komið er fyrir undir, eða fyrir aftan aftursætið, veitir mikið aflúttak miðað við litla þyngd sína. Hann er smíðaður til að endast og þarfnast ekki hleðslu frá utanaðkomandi aflgjafa né heldur reglubundinnar endurnýjunar. Þessi 288 V rafgeymir er stöðugt hlaðinn raforku sem dínamórinn framleiðir, eða gegnum endurnýjandi hemlun.

Háþróað hindrunargreiningarkerfi

Háþróað hindrunargreiningarkerfi getur greint margskonar hindranir fyrir framan bílinn, þar með talið, í fyrsta sinn, vegfarendur. Kerfið samanstendur af: 1. Millimetrabylgjuratsjá. Ratsjá er upplögð til að bera kennsl á hluti með skarpar afmarkaðar brúnir, en ekki eins skilvirk við að bera kennsl á mannlega lögun. 2. Tvírása myndavél. Uppsett fyrir ofan framrúðuna og getur greint hluti með lágmarks ratsjárspeglun - svo sem menn. 3. Næstum innrauðir kastarar. Þeir bæta upp myndavélarnar að nóttu til. Staðsettir í framljósum bifreiðarinnar og hafa sama svið og hái geislinn. Háþróuð hindrunargreining er innbyggður þáttur í pakkanum Háþróauð Árekstrarforvörn.

Loftfjöðrun

Með loftfjöðrun er hver fjögurra fjöðrunareininga stöðugt stillt með tölvustýrðum rafeindabúnaði til að hæfa hraða bifreiðarinnar og yfirborði vegarins. Þetta eykur akstursþægindi og meðhöndlun. Fyrir ofan ákveðinn hraða lækkar loftfjöðrunin ökutækið til að bæta stöðugleika og loftaflfræðilega frammistöðu. Sjálfvirk hæðarstilling tryggir að bifreiðin heldur hagstæðasta jafnvægi við öll álagsskilyrði. Valkvæð loftfjöðrunin í RX 350 auðveldar ökumanninum að velja handvirkt aksturshæð.

Loftpúðar

Ásamt höggdeyfandi krumpusvæðum og stífri byggingu öryggisbúrs farþegarýmis, bæta loftpúðar við aukastigi verndar. Loftpúðar eru staðsettir um húsið að framan og aftan, til hliða og í lofti, til að lágmarka hættuna á meiðslun við slys, en það fer eftir Lexus-gerðum. Í sumum tilfellum er hraðanum sem loftpúðinn springur út á stjórnað af alvarleika árekstursins, sem er ákvarðaður af skynjurum og örgjörva í bifreiðinni. Loftpúðar eru hannaðir til að vinna í sameiningu með öryggisbeltum. Flest Lexus öryggisbelti innihalda einnig forstrekkjara, sem herða á öryggisbeltunum andartakið fyrir árekstur.

Bluetooth(r) tækni

Bluetooth(r) tengsl gera þér kleift að samlaga þráðlaust samhæfðan farsíma til að auðvelda handfrjáls samskipti. Hvar í bifreiðinni sem síminn er, er handfrjálsa kerfið virkt. Hægt er að stjórna símanum gegnum Raffjölsýnarsnertiskjáinn (EMV), með stjórntækjum á stýrishjólinu, eða með raddskipunum. EMV skjárinn getur geymt allt að 500 farsímanúmer og hljóðið er leitt gegnum hljómtækjahátalakerfi bifreiðarinnar.

Hemlaaðstoðarkerfi (BAS)

Rannsóknir sýna að við sumar aðstæður þegar nauðhemla þarf, mistekst ökumönnunum að þrýsta nægilega fast á hemlafótstigið, eða sleppa hemlunum of fljótt. Ef einhver af þessum aðstæðum koma upp veitir Hemlaaðstoðarkerfið (BAS) sjálfkrafa aukinn hemlunarþrýsting. Þetta hjálpar þér að ná mjúkri, öruggri, hámarkshemlun. Þetta gerist allt á sekúndubroti og er svo lítið áberandi að þú hefur sennilega enga hugmynd um að þarna hafi BAS verið að verki.

Skriðstillir

Veldu hraða, settu skriðstillinn í gang og aksturinn verður þegar í stað ennþá þægilegri. Hvort sem þú ekur á móti vindi, upp í móti eða niður, stillir skriðstillirinn sífellt stöðu inngjafarspjaldsins til að viðhalda nákvæmlega þeim hraða sem þú valdið, eins lengi og þú vilt. Til að fara hraðar eða hægar skaltu aðeins ýta á skriðstillisstöngina í samræmi við það. Af öryggisástæðum slekkur skriðstillirinn sjálfvirkt á sér um leið og þú snertir hemlana.