Reglur vefsvæðisins
Með því að fara inn á og nota Lexus-vefinn, samþykkir þú þessar reglur án takmarkana eða fyrirvara. Aðgangur þinn að Lexus-vefnum er þar af leiðandi háður þessum reglum, jafnt sem öllum viðeigandi lögum.
Höfundarréttur (c) Toyota Motor Europe ("TME")
Innihald
Lexus-vefurinn inniheldur upplýsingar varðandi vörulínu Lexus, kynningarbæklinga og viðmiðunarverð. Lexus vörurnar sem koma fram á þessum vef eru aðeins boðnar til sölu í Evrópu, og þær vörur sem koma fram í kynningarbæklingum vefsins eru aðeins fáanlegar í þeim löndum sem vísað er sérstaklega til innan viðkomandi bæklings.
Allar upplýsingar sem koma fram á þessu svæði eru aðeins til upplýsingar. Vefurinn kemur ekki í staðin fyrir þær upplýsingar sem fáanlegar eru frá viðurkenndum Lexus sölu- eða þjónustuaðila.
Reynt er að hafa þær upplýsingar sem á vefnum birtast eins yfirgripsmiklar og kostur er. TME áskilur sér samt sem áður rétt til að gera breytingar hvenær sem er, án fyrirvara, á gerðum, búnaði, tæknilýsingu og fáanleika.
Verð á Lexus vörum
Þær verðupplýsingar sem koma fram eða eru veittar í gegnum þennan Lexus-vef eru aðeins ætlaðar til upplýsingar og teljast ekki sem bindandi sölutilboð á Lexus vörum. Verð eru ráðlögð smásöluverð, en raunverð frá viðurkenndum söluaðila Lexus getur verið annað. Kaup á öllum Lexus vörum skulu vera háð skilmálum og skilyrðum einstakra sölusamninga.
Notkun "dúsu" tækni
TME notar dúsutækni (cookie) til að gera TME kleift að rekja þær slóðir sem þú fylgdir að Lexus-vefnum, til að hjálpa TME við að skrá notendavirkni á Lexus-vefnum og til að meta og bæta Lexus-vefinn, svo hann nýtist þér sem best. TME skráir ekki upplýsingar um einstaka notendur með þessari tækni þannig að engum upplýsingum um þig sérstaklega verður haldið til haga eða þær notaðar. Vinsamlegast athugaðu að þú getur stillt vafrann þinn þannig að hann samþykki ekki dúsur eða aðvari þig í því tilfelli að dúsa sé send.
Innlegg persónulegra gagna/notenda
Öll persónuleg gögn sem þú veitir TME gegnum Lexus-vefinn verða einungis notuð af TME til að bæta þá þjónustu sem TME veitir þér. TME vinnur að því að tryggja að örugg söfnun, sending og geymsla persónulegra gagna sé í samræmi við eðli slíkra gagna. TME mun ekki nota persónuleg gögn þín til að bjóða þér upp á nein óumbeðin skilaboð eða upplýsingar, né mun TME heldur deila slíkum gögnum með eða selja þau þriðja aðila án þíns samþykkis.
Þar sem TME er ekki skuldbundið til að vakta og/eða skoða neitt slíkt innlegg sem sett er á Lexus-vefinn af notendum og axlar enga ábyrgð eða skuldbindingar neins konar í tengslum við slíkt notandainnlegg, áskilur TME sér rétt til að athuga af og til slíkt notandainnlegg og að fjarlægja allt slíkt af svæðinu án réttlætingar.
Tilkynning um höfundarrétt
Allt innihald þessa vefs er varið með höfundarrétti. Þú mátt eingöngu nota upplýsingar, texta, myndir eða teikningar sem felast á þessu svæði fyrir persónulega, óviðskiptalega notkun og mátt ekki endurgera, breyta, dreifa, heimila eða gefa það út, í heild eða að hluta til, í neinum tilgangi án skriflegs samþykkis TME.
Vörumerki
Öll vörumerki, myndmerki og þjónustumerki sem sýnd eru á þessum vef eru eign Toyota Motor Corporation Japan, TME eða þriðja aðila. Þér er bannað að nota, niðurhala, afrita eða dreifa því á neinn hátt án skriflegs leyfis Toyota Motor Corporation, TME eða slíks þriðja aðila, eins og tilfellið gæti verið.
Hlekkir
Lexus-vefurinn getur innihaldið hlekki/vefslóðir til annarra vefsvæða, sem eru fullkomlega óháð þessu svæði. TME hvorki túlkar né ábyrgist nákvæmni, fullkomleika eða áreiðanleika upplýsinga sem felast í slíkum hlekkjum eða öðrum vefsvæðum, og aðgangur að öllum öðrum vefsvæðum sem tengjast Lexus-vefnum er á þína eigin ábyrgð.
Engin ábyrgð tekin á nákvæmni upplýsinga
Á meðan TME vinnur á sem nákvæmasta hátt að því að tryggja að allar upplýsingar á vef þessum séu réttar, er ekki hægt að tryggja nákvæmni og TME axlar enga ábyrgð á nákvæmni, fullkomleika eða áreiðanleika neinna upplýsinga sem felast á þessu svæði. Þetta svæði og allar upplýsingar og efni sem felast hér með eru veittar á "eins og er" grunni án nokkurrar ábyrgðar, hvorki yfirlýstrar né óbeinnar.
Takmarkanir á skaðabótaskyldu
TME neitar allri skaðabótaskyldu vegna beins, óbeins, tilfallandi, afleidds eða sérstaks tjóns sem rís af eða á einhvern hátt tengist aðgangi þínum að eða notkun Lexus-vefsins, að meðtöldum, en ekki takmörkuðum við missi eða tjón af völdum vírusa sem hafa áhrif á tölvubúnað þinn eða traust þitt á upplýsingum sem fengnar voru gegnum Lexus-vefinn.
Uppfærslur þessara regla
TME áskilur sér rétt til að uppfæra reglur þessar hvenær sem er, eftir því sem viðskiptaþarfir krefjast, og þér er hér með boðið að heimsækja þessa vefsíðu af og til, til að athuga með reglurnar.