LS

ÁREKSTRARFORVÖRN AÐ AFTAN

Skynvædda árekstrarforvarnartæknin inniheldur millimetrabylgjumyndavél sem sett er upp í afturstuðaranum. Hún virkar hvort sem LS-bifreiðin er kyrrstæð eða á hreyfingu.

Ef myndavélin greinir ökutæki sem kemur á hættulegum hraða aftan frá, reiknar kerfið samstundis hættuna á árekstri og vaktar stöðugt aðstæðurnar. Ef talið er að árekstur aftan frá sé óumflýjanlegur, virkjar kerfið samstundis skynvæddu forárekstrarhöfuðpúðana á framsætunum.

Höfuðpúðarnir færast upp á við, allt að 60 mm og fram, allt að 25 mm. Þetta hjálpar til við að bólstra höfuð þeirra sem í sætunum eru sem viðbúnað gegn höggi, og dregur þar með stórlega úr hættunni á meiðslum vegna hálshnykks.

Árekstrarforvörn að aftan er innbyggður þáttur í valkvæðu Árekstrarforvarnarkerfi LS-bifreiðarinnar.

Aftur í LS Lykileiginleika