LS

ALHLIÐA LOFTPÚÐAVÖRN

LS 460 og LS 600h gerðirnar eru búnar átta loftpúðum á mikilvægum stöðum sem staðalbúnaði: tveggja þrepa loftpúðar að framan, þar með talinn tveggja hólfa loftpúði fyrir farþega, hnjáloftpúðar fyrir ökumann og farþega í framsæti, hliðarloftpúðar að framan og tjaldloftpúðar eftir endilöngum hliðunum.

Þessir skynjarastýrðu loftpúðar vinna með öryggisbeltum, sem innihalda forstrekkjara fyrir framsæti og ytri aftursæti.

LS 600h L hefur tíu loftpúða sem staðalbúnað, þar sem hliðarloftpúðar að aftan eru tilgreindir til viðbótar. Hægt er að panta þá valkvætt fyrir LS 460 og LS 600h gerðirnar.

Valkvæði aftursætisslökunarpakkinn fyrir LS 600h L inniheldur byltingarkenndan sessuloftpúða. Þessi púði er virkjaður við árekstur framan á og með því að blása upp framhluta sætisins hjálpar hann til við að koma í veg fyrir að farþeginn renni fram.

Fræðast meira um aftursætisslökun með því að smella hér .

Aftur í LS Lykileiginleika