LS
AKSTURSEIGINLEIKAR
Akstursgæði eru aðalsmerki Lexus og LS-bifreiðin hefur tekið annað stórt skref áfram. Þetta er ein af þýðustu og fáguðustu bifreiðunum á vegunum í dag og stýringin er einnig framúrskarandi snörp og nákvæm.
Lykillinn að þessu eru ný fjölliða loftfjöðrun, stífur en þó léttur undirvagn og loftaflfræði sem er leiðandi í sínum flokki. LS 460 AWD og LS 600h gerðirnar sem eru sítengdar í aldrifi veita ennþá meira tog, þá sérstaklega í erfiðum aðstæðum.
Skynvædd tækni veitir mismunandi aksturseiginleika eftir því hvernig þú ekur. Til dæmis, ef þú ert bara að leita að afslöppuðum, frístundaakstri, hjálpar rafeindatæknin um borð til við að veita rólega, þýða og eldsneytissparandi upplifun. Aktu svo af meiri ákefð og fjöldi virkra lykilíhluta er stilltur til að tryggja nákvæman akstur í beygjum, trygga stýringu og stöðugleika í beinum akstri.
Í LS 600h og LS 600h L gerðunum flytur nýtt sívirkt aldrif aukið afl og snúningsvægi af óaðfinnanlegri mýkt og nákvæmni.
Aftur í LS Lykileiginleika