LS
8 HRAÐA SJÁLFSKIPTING
Lexus þróaði heimsins fyrstu 8 hraða sjálfskiptingu fyrir LS 460. Árangurinn er skipting sem veitir það besta af hvoru tveggja, fær um að veita snögga hröðun en þó að skila góðum eldsneytissparnaði.
8 hraða gírkassinn er léttur og fyrirferðarlítill og nýja vökvastýritæknin býður upp á afar mjúka skiptingu. Leiðandi tækni tryggir margfalda gírskiptigetu, frekar en hið hefðbundna einfalda skiptihlutfall hverju sinni, sem hámarkar færslu kraftvægis við allar aðstæður. Ekki aðeins er gírskiptingin mjúk, hún er einnig sérlega hröð.
Heimsnýjung frá Lexus. 8 hraða skipting fyrir ofurþýð og hagkvæm afköst.
Aftur í LS Lykileiginleika