LFA \\

OFURBÍLL VERÐUR TIL

LFA Á CONCOURS d'ELEGANCE

Concours d’Elegance bílasýningin á Pebble Beach er af mörgum talin helsta bílasýning heims. Glæsilegum fornbílum er stillt upp eftir 18. braut hins fræga Pebble Beach golfvallar og hugmyndabílar eru afhjúpaðir á flötinni skammt frá. Þar sýndi Lexus frumgerðina af LFA.

Þátttaka LFA á Pebble Beach, í kjölfar Nürburgring-kappakstursins og Festival of Speed í Goodwood, verður áreiðanlega til að gleðja bandaríska bílaáhugamenn. Yfirbygging úr kolefnatrefjum, fínstillt straumlínulögun og ótrúleg afköst. LFA kannar mörk framtíðartækni Lexus.

image