LFA \\

OFURBÍLL VERÐUR TIL

LFA OFURBÍLLINN VINNUR SINN FLOKK Í NÜRBURGRING

Lexus átti tvo LFA í 24 klukkustunda kappakstrinum í Nürburgring í Þýskalandi 15.-16. maí síðastliðinn. LFA númer 50 vann sigur í sínum flokki – flokki SP8 fyrir bíla ‘nálægt framleiðslustigi’ – og varð í 18. sæti í heildarkeppninni.

Þessi gríðarlega krefjandi 24 klukkustunda úthaldskeppni var haldin á hinni fornfrægu Nordschleife-kappakstursbraut sem á 80 ára hefð að baki. Til þess að fagna árangrinum hefur Lexus útbúið Nürburgring-pakka fyrir LFA-viðskiptavini sem eru alvöru áhugamenn um kappakstur.

Aukinn niðurþrýstingur dregur úr loftmótstöðu, úttak er aukið í yfir 570 hestöfl og það tekur aðeins 0,15 sekúndur að skipta um gír. LFA Nürburgring-pakkinn fæst aðeins í 50 eintökum af 500 eintaka heildarframleiðslu.

image