FRAMSÆKNI OG FÁGUN
Lexus hefur tekið þátt í hönnunarvikunni í Mílanó frá árinu 2005 og kynnt stefnu sína um framsækni og fágun með hjálp ýmissa listamanna.
Í hönnunarvikunni í Mílanó 2009 sýndi Lexus byltingarkennt verk eftir hinn virta arkitekt Sou Fujimoto. Listaverkið kallast „crystallised wind“ og byggist á Lexus LFA þar sem stefna Lexus um framsækni og fágun er túlkuð. Módelið er í raunstærð og vegur 4299 kg að meðtalinni stálgrindinni sem það er byggt á. Lexus sýndi einnig sérhannaðan bekk sem smíðaður er úr akrílplasti.
Sýningin fór fram frá 22. til 26. apríl í Museo della Permanente listagalleríinu í Mílanó um leið og stærsta hönnunarsýning heims, Salone del Mobile di Milano.