LFA \\

OFURBÍLL VERÐUR TIL

LFA VEKUR ATHYGLI Á GOODWOOD

3.-5. júlí 2009, Lexus var stoltur þátttakandi í Festival of Speed (hátíð hraðans) á Goodwood fyrr í sumar. Mikill mannfjöldi safnaðist saman á þessum þriggja daga viðburði þar sem bestu kappaksturbílarnir og ökumennirnir úr öllum greinum koma saman. Þrátt fyrir smávegis rigningu var hátíðin vel heppnuð að vanda.

Hópi virtra evrópskra bílablaðamanna var boðið að aka LF-A frumgerðinni frá Lexus, bæði á kappaksturbrautinni og í fjöllunum. Ofurbíllinn fékk afar jákvæðar móttökur. Áhorfendur fögnuðu í kapp við ærandi vélargnýinn þegar LF-A brunaði upp brekkurnar og blaðamennirnir lofuðu ótrúlega getu bílsins og varð tíðrætt um hið einstaka hlutfall afls og þyngdar.

image