GS

MARGMIÐLUNAR- OG LEIÐSÖGUKERFI

Margmiðlunar- og leiðsögukerfið umbreytir GS 450h í fyrsta flokks afþreyingar-, leiðsögu- og samskiptamiðstöð. Gagnvirka stjórnstöðin er Raffjölsýnarskjárinn (EMV) - 7" litasnertiskjár sem gerir þér kleift að skoða og stjórna fjölda kerfa, þar á meðal hljómtækjum, loftræstingu, bakkaðstoð og gervihnattaleiðsögn. Einnig er hægt að raddstýra mörgum kerfum.

Skýrar kortateikningar á harða drifi (HDD) leiðsögukerfisins ná yfir Vestur-Evrópu, með tvöfaldri kortaaðstöðu - stórum mælikvarða og litlum mælikvarða Í löndum með Dynamic Route Guidance (DRG), er það uppfært með nýjustu umferðarupplýsingum til að hjálpa þér að forðast seinkanir.

Mark Levinson(r) Premium umhverfishljómkerfið býður upp á fyrsta flokks fjölmiðlunarafþreyingu í hæsta gæðaflokki. Einnig er hægt að vista geisladiska á harða drifið og flokka þá með Gracenote(r) hugbúnaðinum. Nánari upplýsingar má finna á síðunni yfir Hljóðkerfið.

Bakkaðstoðin notar myndavél sem snýr aftur til að varpa útsýninu fyrir aftan GS 450h á EMV-skjáinn, sem leggur yfir sjálfmyndaðar leiðbeiningalínur svo ekkert mál verður að leggja.

Vinsamlegast athugið: Margmiðlunar- og leiðsögukerfið er fáanlegt sem kostnaðarvalkostur fyrir GS 450h

Aftur í Lykileiginleika GS
top image