GS

V6 VÉL

GS 450h er búin 3,5 lítra V6 bensínvél sem var hönnuð sérstaklega til að vinna sem hluti af heildinni í Lexus Hybrid Drive.

Vélin er smíðuð úr áli og því mjög létt, ásamt því að framleiða 218 kW við 6.400 rpm og 368 Nm togi við 4.800 rpm. Samþætt með háspennu rafmótor er heildar útkoman 254 kW. 0-100 km/klst á aðeins 5,9 sek. sýnir einstök afköst Lexus Hybrid Drive – hröðunin er mun meiri en á sambærilegum bíl sem eingöngu er búin 6 strokka vél.

Tæknilega háþróuð bein innspýting og hátt þjöppunarhlutfall stuðla merkjanlega að þessum framúrskarandi afköstum. Verðlaunatækni Lexus, tvöföld breytileg ventlatímunargreind (VVT-i), stillir stöðugt vélina svo hún falli nákvæmlega að akstursskilyrðum.

Fræðstu betur um GS tvinntæknina með því að smella á GS tvinntækni.

Aftur í Lykileiginleika GS