GS

SPURNINGAR OG SVÖR

Hversu áreiðanlegt er Lexus Hybrid Drive?

Við væntum þess að okkar Lexus Hybrid Drive sé eins áreiðanlegt og ökutæki okkar með bensín- og dísilvélum. Í stuttu máli sagt, mjög áreiðanlegt.

Hversu lengi endist tvinnrafgeymirinn eða heldur hleðslu?

Tvinnrafgeymirinn fellur undir ábyrgð ökutækisins. Við búumst við því að rafgeymirinn endist mun lengur en ábyrgðin við venjulega notkun.

Sú tímalengd sem rafgeymirinn heldur hleðslu fer eftir mörgum þáttum, þar með talið akstursstíl, tíðni notkunar ökutækisins og veðurskilyrðum í umhverfinu.

Hversu langt kemst ég á rafgeymaafli einu saman?

Þó að Lexus Hybrid Drive gangi aðeins á rafgeyminum á litlum hraða, er kerfið hannað til að nýta bensínvélina og rafmótorinn eða mótorana á sem hagstæðastan hátt. Raunveruleg vegalengd sem þú getur ekið, eingöngu á rafgeymi veltur á margvíslegum þáttum, þar með talið aðstæðum á vegi og veðurskilyrðum, hleðslustöðu rafgeymis og þyngd ökutækis.

Hvað gerist við hemlun?

Lexus Hybrid Drive felur í sér endurnýjandi hemlunartækni. Hreyfiorkunni sem myndast við hemlun er umbreytt í rafmagn og geymd í háspennta, fyrirferðarlitla rafgeyminum.

Þetta þýðir að orka er endurheimt, sem annars myndi tapast sem hiti, sem stuðlar að hagkvæmum og ábyrgum akstri.

Þarf að hlaða Lexus Hybrid Drive eða stinga því í samband?

Nei, það þarf aldrei að stinga ökutækjum með Lexus Hybrid Drive í samband. Tæknin hleður sjálfkrafa fyrirferðarlitla, háspennta rafgeyminn, annað hvort gegnum endurnýjandi hemlun eða með því að framleiða rafmagn frá vélinni sem er gangi á ferðahraða.

Hversu lengi ætla Lexus að gera tvinnbíla?

Lexus heldur áfram að fjárfesta í og þróa tvinntækni, þar sem við trúum því að hún sé næsta stóra skrefið í bifreiðatækni. Þrátt fyrir að sumir gagnrýnendur haldi því fram að tvinnbílar verði stuttlíf fyrirbrigði, spá margir leiðandi bifreiðasérfræðingar áframhaldandi og auknum vexti, þar sem tvinntæknin muni dreifast um alla geira og inn í nánast því allar gerðir farþegaökutækja.

Framleiðendur framleiða, eða hætta að framleiða, ökutæki samkvæmt eftirspurn viðskiptavina. Þegar viðskiptavinir hafa einu seinni upplifað kraftinn, þögnina, eldsneytissparnaðinn, minnkuðu mengunina, og í tilfelli Lexus, lúxusinn við tvinnbíla, þá verður ekki aftur snúið.

Lexus Hybrid Drive býður upp á mikil afköst með stórkostlegri hagkvæmni. Ef keppinautur getur skákað afköstum þess, getur hann ekki skákað hagkvæmninni; ef keppinautur getur skákað hagkvæmninni, getur hann ekki skákað afköstunum.

Þið segið að tvinnbíllinn ykkar sé betri en keppinautarins. Hvers vegna?

Ökutæki með Lexus Hybrid Drive eru kraftmestu tvinnökutæki sem til eru og fyrstu lúxustvinngerðirnar á markaðnum. Og ólíkt flestum samkeppnisaðilum, gerir Lexus Hybrid Drive kleift að aka einungis á rafmagni innan ákveðins hraða, við stöðva-og-aka aðstæður, sem veitir hámarks hagkvæmni og lágsmarks umhverfisáhrif.

Við trúum því að ekki sé hægt að skáka blöndu okkar af miklum afköstum, hljóðlátum akstri, eldsneytissparnaði og minni mengun.

Er tæknilýsing ökutækja með Lexus Hybrid Drive sú sama og fyrir samsvarandi bensínútgáfur, eða er skottið til dæmis minna. Hvaða annar mismunur er til staðar?

Allar gerðir með Hybrid Drive eru tilgreindar með rafeindastýrðri, síbreytilegri skiptingu, frekar en hefðbundnum sjálfvirkum gírkössum.

RX 350 er tilgreindur með sívirku aldrifi, en RX 400h er með E-FOUR.

LS 460 er afturhjóladrifinn, en nýtt sívirkt aldrifskerfi nýtir og skilar hinu aukna afli og snúningsvægi í LS 600h.

Farangursgeymslan er eins í RX 350 og RX 400h gerðunum. Skottið er minna í tvinngerðum GS og LS, þrátt fyrir að enn sé vel úti látið geymslurými.

Þar sem ökutæki með Lexus Hybrid Drive eru toppgerðirnar í viðkomandi línum hafa þau einnig hærra stig tækjabúnaðar. Vinsamlegast sjá hlutann fyrir viðeigandi gerðarlínu vegna viðbótarupplýsinga.

Hvernig er Lexus Hybrid Drive notað á mismunandi hraða?

Lexus Hybrid Drive er hannað til að nýta bensínvélina og rafmótorinn eða mótorana á sem hagstæðastan hátt. Rafafl veitir samstundis snúningsvægi, en afl bensínvélarinnar og snúningsvægi byggist upp með hraða vélar.

Þar af leiðandi er best að nota bensínvélina við stöðugan akstur á mikilli ferð, en best er að nota rafmótorinn eða mótorana á minni hraða eða þegar augnablikshröðunar er krafist.

Það er hin skynvædda aflstýrieining, heili Lexus Hybrid Drive, sem ákveður nákvæmlega hvaða aflgjöfum á að úthluta og í hvernig samsetningu og hlutfalli.

Afkastamikli rafmótorinn eða mótorarnir eru notaðir við ræsingu og fyrir akstur á litlum hraða í dæmigerðum akstri. Þeir veita samstundis afl, en brenna engu eldsneyti og mynda þar af leiðandi núll mengun. Og þeir ganga næstum hljóðlaust svo þeir draga einnig umtalsvert úr hávaðamengun.

Eftir því sem hraðinn eykst og meira afls er krafist, ræsir aflstýrieiningin bensínvélina. Á stöðugum aksturshraða er það venjulega aðeins bensínvélin sem veitir aflið. Ef nauðsyn krefur getur dínamórinn einnig umbreytt hluta af vélaraflinu í rafmagn til að hlaða rafgeyminn.

Ef hröðunar er krafist, til dæmis við framúrakstur, notar aflstýrieiningin bæði bensínvélina og rafmótorinn eða mótorana til að veita hámarks snúningsvægi.

Lexus Hybrid Drive getur einnig framleitt rafmagn við hemlun, með því að umbreyta hreyfiorkunni, sem annars myndi vera kastað á glæ sem hita, í rafmagn og notað það til að hlaða rafgeyminn.

Hver er hámarkshraði sem ökutæki með tvinndrif geta náð áður en bensínvélin fer í gang??

Það er breytilegt og veltur á ýmsum þáttum, þar með talið hleðslustigi rafgeymis, almennum akstursskilyrðum og þyngd ökutækis. Með varfærinni hröðun og vel hlöðnum rafgeymi geta ökutæki með Lexus Hybrid Drive náð um það bil 40 km/klst á rafmótornum, eða mótorunum, einum.

Hins vegar verður að taka það fram að Lexus Hybrid Drive er hannað til að nýta báða aflgjafa á sem hagstæðastan hátt og því er ekki ætlað að vinna eingöngu sem rafknúið ökutæki.

Ef ég verð eldsneytislaus, get ég notað rafmagn til aksturs?

Nei. Þrátt fyrir að Lexus Hybrid Drive geri ökutækinu kleift að ganga á rafafli á litlum hraða þegar eldsneyti er í tankinum, er það ekki hannað til að ganga án eldsneytis. Það gæti valdið alvarlegum skemmdum, svo ökumenn ættu að gæta þess að hafa alltaf eldsneyti í tankinum, rétt eins og þú myndir gera með hefðbundnar bifreiðar sem knúnar eru bensíni eða dísil.

Hvernig og hvenær skiptir Lexus Hybrid Drive frá bensínvél til rafmagnsmótors eða mótora? Get ég skipt?

Hin skynvædda aflstýrieining hagræðir stöðugt afldreifingu. Venjulega er það aðeins rafmótorinn eða mótorarnir sem knýja ökutækið við ræsingu og á litlum hraða. Eftir því sem hraðinn eykst skiptir aflstýrieiningin yfir í bensínvélina til að veita viðbótarafl. Á ferðahraða er venjulega slökkt á rafmótornum eða mótorunum. Aflstýrieiningin getur samstundis kallað eftir viðbótar rafafli ef þörf er á, til dæmis ef ökumaðurinn eykur hraðann til að fara framúr.

Ökumaðurinn getur ekki stýrt úthlutun aflgjafa þar sem aflstýrieiningin stjórnar því á skynvæddan hátt. Aftur á móti getur ökumaðurinn í LS 600h valið að skipta í rafmagnaðan ökutækisham um styttri tíma þar sem aðstæður leyfa.

Get ég skilið ökutækið mitt með Lexus Hybrid Drive eftir um lengri tíma, til dæmis í sumarfríi, án þess að þurfa að hlaða rafgeyminn?

Eins og með öll ökutæki ætti að geyma það í tiltölulega vernduðu umhverfi, þar sem tryggt er að ökutækið sé ekki berskjaldað gagnvart óblíðum veðurskilyrðum, ef það er skilið eftir um lengri tíma án notkunar. Ef svo ólíklega vildi til að rafgeymirinn tæmdist fullkomlega, þá ræsir bensínvélin bifreiðina og sér um að hlaða rafgeyminn.

Það er öllu markverðara að hættan á að afhlaða hefðbundna rafgeyma hefur áhrif á ökutæki sem ekki eru tvinnbílar. Eins og með öll ökutæki er mælt með því heilræði, áður en ökutæki er skilið eftir ónotað um lengri tíma og gefa gaum að hleðslu hins hefðbundna rafgeymis á því tímabili.