ÞAÐ ÞARF AÐ STINGA ÞEIM Í SAMBAND
Ekki rétt. Þó að til séu tvinnbílar sem þarf að stinga í samband gildir það ekki um Lexus tvinnbíla. Þeir hlaða hybrid-rafhlöðuna sjálfvirkt með aflinu sem myndast við hemlun með aflendurheimt með því að búa til rafmagn við akstur á auknum hraða. Einfalt og snjallt.
ÞEIR ERU SILALEGIR
Þróuð hybrid-tækni nútímans er allt annað en silaleg: Til dæmis kemst Lexus GS 450h upp í 100 km/klst. á minna en sex sekúndum.
ÞEIR RÁÐA EKKI ÚRSLITUM UM ÚTBLÁSTUR
Þetta er ekki rétt. Sú staðreynd að bíll með full hybrid er stundum knúinn rafmótor eingöngu og að stundum veitir rafmótorinn hjálparafl þýðir að bensínotkunin er minni og þar með er mengun í útblæstri minni.
HYBRID ER NÝ OG ÓPRÓFUÐ TÆKNI
Alls ekki. Fyrsti bensín/rafmagnstvinnbíllinn var settur á markað árið 1900 og eins og vænta má hafa hlutirnir þróast síðan þá. Og á meðan flestir bílaframleiðendur eru rétt í þann veginn að kynna sínar gerðir tvinnbíla hefur Lexus þegar framleitt línu númer tvö af sínum tvinnbílum.
ÞETTA ER BARA BÓLA
Nei, ekki rétt. Flestir bílaframleiðendur feta nú í fótspor Toyota og Lexus við þróun tvinnbíla. Á endanum mun ný tækni ryðja úr vegi bensín/rafmagns-tvinnbílum á leið okkar að markmiðinu um enga mengun í útblæstri, en engu að síður munu tvinnbílar eins og við þekkjum þá í dag verða við lýði lengi enn.
ÞETTA ERU EINFALDLEGA RAFBÍLAR UNDIR ÖÐRU HEITI
Ekki rétt. Tvinnbílar með full hybrid sameina raforku og bensínafl. Þó að hægt sé að knýja þá með rafmótornum eingöngu nota þeir báðar vélarnar, stundum samhliða og stundum aðra í einu.
EF ÞÚ KEYRIR EKKI BÍLINN Í EINHVERN TÍMA TÆMIST RAFHLAÐAN
Afar ólíklegt er að hybrid-rafhlaðan tæmist því um leið og drepið er á bílnum hefur hybrid-rafhlaðan engin tengsl lengur við aðra aflgjafa.