HYBRID-HUGSUNIN

AÐ STANDA UNDIR NAFNI

Hybrid-hugsunin í bílaiðnaðinum er ekki eina dæmið um umhverfisvænar lausnir; slíkar lausnir er víða að finna. Hér eru nokkur dæmi sem eru í uppáhaldi hjá okkur:

Ekkert fer til spillis: Fáir iðka þessa hugmyndafræði og enn færri sér til gagns en Elizabeth Redmond hjá bandaríska fyrirtækinu POWERleap er ein af þeim. Vara hennar fangar orku frá umferð gangandi vegfarenda og bifreiða í borgum.

LexHybThinkPolar-StepUp.jpgÓlíkt stórum orkugjöfum eins og vindmyllunum sem víða framleiða orku sem beint er inn í landsnetin, þá er tækninni sem Redmond hefur hannað ætlað að knýja viðkomandi vélar beint. „Raforkulandsnetið er frábær lausn í mörgum tilvikum en afskaplega óskilvirkt“, segir hún.

„Raftæki dagsins í dag þurfa sífellt minna afl og snjallnetstæknin gerir okkur kleift að nota orkuna aðeins þegar við þurfum á henni að halda; þess vegna höfum við tækifæri til að lágmarka orkusóun. Tæknin hjá POWERleap gerir okkur kleift að sleppa skrefunum sem fara í að fóðra landsnetin af orkunni þar sem henni er einfaldlega beint þangað sem hún er notuð. Með því að sleppa þessum skefum færumst við nær því að útrýma orkusóun.“

Með notkun á sérstökum gólfflísum og þrýstiraftækni er orka frá gangandi fólki (og jafnvel dansandi) og bílum sem aka um beisluð og notuð til að knýja svæðið sem í hlut á. Með tæknilegu samstarfi við aðila úti um allan heim ráðgerir Redmond að prófa tækni sína á fjölþjóðlegum mörkuðum árið 2012 og koma henni út sama ár.

Hún álítur hybrid-tæknina eiga margt sameiginlegt með hennar eigin uppfinningu, þar sem hvor tveggja er áþreifanleg og opnar margar dyr. Hún álítur að hybrid-tæknin eigi eftir að verða enn hugvitsamlegri og standi sífellt frammi fyrir nýjum áskorunum: Þróun sjálfbærra bíla. „Þessi áskorun hefur í för með sér kvika nýsköpun og mun á endanum færa okkur lausn sem fer mjög nálægt því að útrýma útblæstri frá bílum,“ segir hún. „Tvinntæknin, hybrid, er að leiða okkur í rétta átt.“

www.powerleap.net