HYBRID-HUGSUNIN
ORKU SAFNAÐ MEÐ HRAÐI
Hybrid-hugsunin í bílaiðnaðinum er ekki eina dæmið um umhverfisvænar lausnir; slíkar lausnir er víða að finna. Hér eru nokkur dæmi sem eru í uppáhaldi hjá okkur:
Hraðahindranir eru alþekkt aðferð við að hægja á ökuhraða í bæjum og borgum um allan heim. Sú staðreynd að þær fá á sig mikinn þunga (þ.e. bílinn) felur í sér tækifæri til orkubeislunar sem ekki krefst neinnar breytingar á atferli ökumanns eða ökutækis.
Í stað hefðbundinna hraðahindrana hefur breska fyrirtækið Highway Energy Systems Ltd þróað hæðarstillanlegan púða sem liggur á götunni og er með fjölda af spjöldum. Þegar bíll ekur yfir púðann færast spjöldin hljóðlega upp og niður og knýja tönn sem snýr vél sem býr til vélorku.
Stöðugur straumur umferðar getur búð til 10 til 36kW af afli úr einni hraðahindrun. Á 1,5 km vegarkafla þarf aðeins fjórar hraðahindranir til knýja öll umferðarmerki, umferðarljós og götuljós á leiðinni. Þetta kerfi er þegar í notkun á svæði í vesturhluta London og yfirvöld víðsvegar í Evrópu hugleiða að taka það í notkun.
Mjög svipað kerfi er í notkun í stórmarkaðnum Sainsbury's í Gloucester í Englandi þar sem orkufangandi spjöld hafa verið sett upp á bílastæðunum. Þegar þungi bíls leggst yfir spjald verður væg veltihreyfing sem, líkt og hreyfing hraðahindrunarinnar, knýr rafal. Sainsbury's notar þessa grænu orku til að knýja afgreiðslukassa sína og væntir þess að kerfið verið búið að borga sig upp á aðeins tveimur árum.
Snjöll hugsun og einfaldar lausnir geta haft gífurleg áhrif á það hvernig við knýjum borgir okkar og bæi afli. Að sóa ekki tækifærunum hefur leitt til þess að við sóum ekki orkunni – og þarna er enginn millivegur.
www.hughesresearch.co.uk