HYBRID-HUGSUNIN

DRAUMURINN RÆTIST

Hybrid-hugsunin í bílaiðnaðinum er ekki eina dæmið um umhverfisvænar lausnir; slíkar lausnir er víða að finna. Hér eru nokkur dæmi sem eru í uppáhaldi hjá okkur:

Hinn margverðlaunaði arkitekt Gary Chang, sem er frá Hong Kong, hefur sannað með hugviti sínu að hugmyndafræðin um að ekkert eigi að fara til spillis getur orðið að veruleika. Örlítil borgaríbúð hans (aðeins 30,6 fermetrar) getur skipst niður í 24 herbergi.

Kerfið sem hann þróaði ber heitið Heimilisumbreytir en með því er hægt að hreyfa til veggi og renna þeim til og frá svo í ljós koma fleiri veggir og herbergi á bak við þá. Til dæmis þegar rúmið er fellt inn í vegginn verður botn þess að sófa. Vegginn á móti – þar sem sjónvarpið er – má draga fram svo í ljós kemur eldhús á bak við hann. Baðherbergið og gestaherbergið eru á sama svæðinu sem skipt er hugvitsamlega.

Hönnun Changs miðar að hámarksnýtni og notendavænum eiginleikum en líkja má henni við rússneskar babúska-dúkkur, þar sem hvert lag inniheldur það næsta. Gulleitir gluggarnir ná frá gólfi upp í loft og þeir ásamt spegilþöktu loftinu hámarka náttúrulega birtu þannig að vart þarf að kveikja á rafljósum.

Þrengsli heyra sögunni til því í þessari íbúð fer nákvæmlega ekkert pláss til spillis. Ekki neitt.

www.edge.hk.com