ALGENGAR SPURNINGAR

FRÆÐAST MEIRA UM LEXUS HYBRID DRIVE

Hversu áreiðanlegt er Lexus Hybrid Drive?

Bílar með Lexus Hybrid Drive eru mjög áreiðanlegir. Óháðar rannsóknir hafa sýnt fram á að bílar með Lexus Hybrid Drive eru jafnáreiðanlegir og þeir bílar okkar sem knúnir eru bensín- eða dísilvélum. Góð ending íhluta Lexus Hybrid Drive eykur á áreiðanleikann. Til dæmis þarfnast rafmótorar og rafalar bílsins ekki neins viðhalds og V6- eða V8-bensínvélarnar vinna yfirleitt við bestu skilyrði, sem eykur endingartíma þeirra.

Hversu lengi endist hleðslan á rafhlöðu tvinnkerfisins?

Við hefðbundinn akstur ætti rafhlaðan ávallt að halda hleðslu. Einu aðstæðurnar þar sem hleðsla rafhlöðunnar gæti náð lágmarki væri ef bíllinn væri knúinn einungis raforku í lengri tíma.



Kerfið fylgist stöðugt með hleðslu rafgeymisins og gengur úr skugga um að rafgeymirinn tæmist ekki eða ofhlaðist. Það reiknar uppsafnaða notkun og hleður rafgeyminn í samræmi við það, annaðhvort með því að endurnýta hemlunarafl eða með því að breyta umframorku í rafmagn. Þannig reynir Lexus Hybrid Drive að halda hleðslu rafhlöðunnar nokkuð stöðugri.



Tæknilegir íhlutir rafgeymisins falla undir ábyrgð sem fylgir öllum tvinnbílunum frá okkur. Við venjulega notkun má gera ráð fyrir að rafhlaðan endist mun lengur en ábyrgðin nær til. Með því að forðast að rafgeymirinn sé tæmdur eða ofhlaðinn má lengja endingartíma hans umtalsvert.

Hversu langt kemst ég á rafgeymaafli einu saman?

Þó að Lexus Hybrid Drive gangi aðeins á rafgeyminum á litlum hraða, heldur kerfið á skynvæddan hátt rafgeyminum hlöðnum upp að ákveðinni lágmarksstöðu. Raunveruleg vegalengd sem þú getur ekið, eingöngu á rafgeymi veltur á margvíslegum þáttum, þar með talið aðstæðum á vegi, hleðslustöðu rafgeymis og þyngd ökutækis.

Hvað gerist þegar ég bremsa?

Lexus Hybrid Drive er búið tækni sem endurnýtir hemlunarafl. Þegar þú bremsar eða dregur úr hraðanum myndast hreyfiorka sem umbreytt er í rafmagn. Í hefðbundnum bílum tapast þessi orka sem varmi. Þegar hemlunarafl er endurnýtt vinnur rafmótorinn sem rafall og umbreytir hreyfiorku í raforku. Hún er síðan geymd í rafgeyminum til síðari tíma nota.

Með því að nýta afl sem annars tapast sem varmi, hávaði og titringur má draga úr eldsneytisnotkun um einn lítra á hverja 100 km.

Þarf að hlaða rafgeyminn í Lexus Hybrid Drive með utanaðkomandi rafmagni?

Nei, það þarf aldrei að stinga RX 450h, GS 450h eða LS 600h í samband við rafmagn. Það er vegna þess að Lexus Hybrid Drive tæknin hleður rafgeymi bílsins sjálfkrafa, annaðhvort með því að endurnýta hemlunarafl eða með því að mynda rafmagn þegar ekið er á meiri hraða.

Hversu lengi mun Lexus framleiða tvinnbíla?

Við teljum að tvinntæknin verði áfram grundvallarþáttur í þróun okkar á aflrásum þar sem við leitumst við að útbúa bíla sem menga ekki neitt.

Markmið okkar er að færa tvinntæknina á næsta stig í þróunarferlinu, hvort sem um er að ræða bensín- eða dísilvélar eða efnarafala. Eitt dæmi er FCHV-bíllinn (Fuel Cell Hybrid Vehicle) sem kom á markað í takmarkaðri dreifingu í Japan 2002. Hann er búinn efnarafal sem framleiðir raforku með því að sameina vetni og súrefni í efnafræðilegu ferli. Þar kemur efnarafallinn í stað bensínvélar í tvinnkerfinu og eina útblásturslofttegundin er vatnsgufa.

Lexus Hybrid Drive er grunntækni sem býður upp á mikla möguleika og verður notuð um ókomna framtíð.

Hvaða kosti hefur Lexus Hybrid Drive umfram önnur sambærileg tvinnkerfi?

Lexus var fyrstur bílaframleiðenda til að koma tvinntækni fyrir í lúxusbílum árið 2004 þegar RX 400h var settur á markað. Síðan þá höfum við haldið áfram að fínpússa tæknina í fjölmörgum kynslóðum og bílar með Lexus Hybrid Drive hafa ekið milljónir kílómetra við raunverulegar aðstæður. Þessi áreiðanlega, snjalla og fágaða tækni hefur sannað sig.

Lexus Hybrid Drive var þróað af Lexus til notkunar í lúxusbílum og byggist á framúrskarandi tækni sem notuð er í yfir milljón tvinnbíla. Nú bjóðum við heila línu öflugustu „full hybrid“ lúxusbíla heims. Þeir afkasta miklu, eru hljóðlátir í akstri, eldsneytisnýting hefur verið bætt og þeir menga minna en aðrir bílar.

Ólíkt sambærilegum tvinnkerfum gerir „full hybrid“ tæknin frá Lexus kleift að knýja bílinn með raforku eingöngu, þegar ekið er á minni hraða. Í EV-stillingu kemur enginn útblástur frá „full hybrid“ Lexus-bílum. Tæknikerfi keppinautanna bjóða ekki upp á þetta þar sem rafmótorar þeirra eru mun minni og geta aðeins unnið með brunahreyflinum en ekki knúið bílinn af sjálfsdáðum.

Að hvaða leyti eru bílar með Lexus Hybrid Drive öðruvísi en sambærilegir bensínknúnir bílar?

Allar gerðir með Lexus Hybrid Drive eru með sérstakri tvinnskiptingu í stað hefðbundins gírkassa og eru búnar fullkomnustu stjórneiningu sem völ er á.

RX 350 er með aldrifi með virkri togstýringu en RX 450h er búinn hinu nýstárlega E-FOUR-kerfi sem notast við rafmótora á sitthvorum öxlinum.

LS 460 er annaðhvort með afturhjóladrifi eða sítengdu aldrifi í gerðinni LS 460 AWD. Í bæði LS 600h og LS 600h L nýtir aldrifið hið mikla afl og tog sem Lexus Hybrid Drive veitir og dreifir því mjúklega á öll fjögur hjólin.

Þar sem Lexus Hybrid Drive gerðirnar eru allt bílar sem eru efstir í sínum línum eru þeir einnig búnir fullkomnari búnaði. Skoðaðu lýsinguna fyrir hverja línu til að sjá frekari upplýsingar.

Hvernig er Lexus Hybrid Drive notað við mismunandi akstursskilyrði?

Það er einstök upplifun að aka bíl sem knúinn er Lexus Hybrid Drive.

Gefðu vel í og stjórneiningin vinnur úr sameiginlegu afli V6- eða V8-bensínvélarinnar og rafmótoranna og skilar ótrúlega mikilli hröðun. Stjórneiningin annast einnig framleiðslu, geymslu og dreifingu raforkunnar.

Við akstur á meiri hraða umbreytir rafallinn oft viðbótarvélarafli í raforku sem geymd er á rafgeyminum. Á öðrum stundum, t.d. þegar þú hemlar, er rafgeymirinn hlaðinn með því að nýta hreyfilafl bílsins, sem í öðrum bílum tapast sem varmi.

Þegar þú lætur bílinn renna niður brekkur getur kerfið notað tækifærið og slökkt á vélinni til að spara eldsneyti.

Á minni hraða, t.d. í umferð innanbæjar, er bíllinn aðeins knúinn rafmótornum. Hann er þá nánast hljóðlaus og án mengunar í útblæstri, ekki bara koldíoxíðs heldur líka köfnunarefnisoxíðs og sótagna. Það þýðir hreinna loft fyrir alla.

Allt gerist þetta snurðulaust og hljóðlega og þú tekur varla eftir því þegar slokknar eða kviknar á bensínvélinni.

Hver er sá hámarkshraði sem hægt er að ná áður en bensínvélin fer í gang?

Það fer eftir ýmsum þáttum, s.s. hitastigi tvinnkerfisins (ef það er kalt er vélin yfirleitt ræst til að hita smur- og kælikerfin), hleðslu á rafhlöðunni, almennum akstursskilyrðum og farmþunga. Þegar farið er á skrið jafnt og þétt og rafhlaðan er vel hlaðin geta bílar með Lexus Hybrid Drive náð u.þ.b. 40 km/klst. með því að nota aðeins rafmótorana.

Get ég skipt á milli aflgjafa?

Ökumaðurinn þarf aldrei að skipta um aflgjafa þar sem stjórneiningin sér um það án vandræða. Í nýju RX 450h lúxussportjeppunum og LS 600h fólksbílunum er hins vegar hægt að skipta tímabundið á EV-stillingu (Electric Vehicle) þegar aðstæður leyfa.

Hvernig og hvenær skiptir Lexus Hybrid Drive úr bensínvélinni yfir í rafmótorinn?

Þar sem virkni Lexus Hybrid Drive er svo átakslaus og mjúk tekurðu yfirleitt ekki eftir því þegar skipt er á milli raforku og bensínafls. Á skjánum í mælaborðinu birtist hins vegar mynd af orkuflæði bílsins og þar geturðu séð að við ræsingu og á minni hraða eru það yfirleitt aðeins rafmótorarnir sem knýja bílinn.

Eftir því sem ekið er greiðar mun stjórneiningin skipta yfir á bensínvélina til að ná auknu afli. Á hraðferð er það yfirleitt bensínvélin sem sér bílnum fyrir afli. Ef þú þarft skyndilega aukið afl þegar gefið er í kallar stjórneiningin eftir viðbótarraforku til að aðstoða bensínvélina.

Get ég skilið Lexus Hybrid Drive bílinn eftir óhreyfðan í lengri tíma án þess að þurfa að endurhlaða rafgeyminn, t.d. þegar ég fer í frí?

Eins og við á um öll ökutæki gæti þurft að endurhlaða rafgeyminn ef hann er skilinn eftir í lengri tíma, sér í lagi við erfið veðurskilyrði. Vilji svo ólíklega til að öll hleðsla fari af rafgeyminum mun bensínvélin sjá um að ræsa bílinn.

Þá sér Lexus Hybrid Drive um að rafgeymirinn verði hlaðinn á ný á meðan ekið er. Á hraðferð umbreytir rafallinn umframorku í raforku. Þegar hægt er á ökuhraða er hreyfiorkan sem myndast nýtt á snjallan hátt og henni umbreytt í raforku sem notuð er til að hlaða rafgeyminn.