MENGUN Í ÚTBLÆSTRI OG ELDSNEYTISNÝTING

Við hjá Lexus framleiðum fyrsta flokks bíla og gerum okkur fullkomlega grein fyrir þörfinni á að draga úr umhverfisáhrifum.

Það var fyrir um tveimur áratugum sem verkfræðingar okkar áttuðu sig á því að með óbreyttri tækni gengi ekki að samræma gjörólík markmið aukinna afkasta og bættrar eldsneytisnýtingar, meira afls og minni mengunar í útblæstri. Við hófum því ítarlega þróunarvinnu sem skilaði sér í tilurð einstakrar tvinndrifrásar sem við kölluðum Lexus Hybrid Drive.

Lexus er fyrsti og eini framleiðandi lúxusbíla sem býður heila línu sk. „full hybrid“ bíla og bregst þannig við vaxandi áhyggjum af umhverfisþáttum og þeirri viðleitni að framleiða afkastameiri bíla sem menga minna. Hjá LS 600h er losun koltvísýrings næstum 25% minni en hjá sambærilegum fólksbílum án þess að það komi niður á afköstum. Enn fremur hefur verið dregið nær algjörlega úr losun köfnunarefnisoxíðs og kolvetnis.

Smelltu hér ef þú vilt kynna þér umhverfisstefnu Lexus betur.

Til baka í Tvinntækni