OPNA BRESKA MEISTARAMÓTIÐ 2009
STUÐNINGUR LEXUS VIÐ OPNA BRESKA MEISTARAMÓTIÐ 2009
Árið 2009 eru Lexus stoltir af því að kosta Opna breska meistaramótið, fimmta árið í röð. Þetta árið verður Opna breska meistaramótið haldið á hinum sögufræga Ailsa velli í Turnberry, í hinu tilkomumikla Ayr-skíri um 80 km frá heimsborginni Glasgow, sem hefur löngum verið talinn einn besti völlur heims. Árið 1977 var hann vettvangur sögulegs bardaga um meistaratitilinn þegar Jack Nicklaus og Tom Watson háðu hið fræga „Einvígi í sólinni“.
Frá 16. til 19. júlí verður 138. Opna breska meistaramótið haldið á Ailsa vellinum.
Lexus, sem opinber verndari og veitandi bifreiða Opna breska meistaramótsins, getur boðið gestum að njóta einstakrar gestrisni þá fjóra daga sem mótið stendur. Hátíðatjald verndarans fyrir gesti sína mun verða á besta stað, með útsýni yfir 18. holu.
Aftur í Kostun