CT 200h FÆR FIMM STJÖRNUR
CT 200h HLÝTUR HÆSTU EINKUNN FYRIR ÖRYGGI Í ÁREKSTRARPRÓFUNUM EURO NCAP
Nýi Lexus CT 200h bíllinn fær fullt hús í árekstrarprófun Euro NCAP — fimm stjörnur
- Fimm stjörnur af fimm mögulegum með 94% í einkunn fyrir vörn fullorðinna farþega
- Frábærar einkunnir fyrir vörn gegn aftanákeyrslum, þökk sé WIL-tækni Lexus í sætum af annarri kynslóð (Whiplash Injury Lessening, sæti hönnuð gegn hálshnykk)
- Eini hágæða bíllinn í sínum flokki með hnéloftpúða fyrir ökumann og farþega í framsæti sem staðalbúnað
Lexus CT 200h hlaut fimm stjörnur í hinni virtu árekstrarprófun Euro NCAP og fékk 83/100 í heildareinkunn. Einkunnin er vel yfir því lágmarki sem þarf til að hljóta fimm stjörnur og setur hún nýju Lexus bifreiðina í flokk með öruggustu hágæða bifreiðum í sínum flokki.
Viðurkenningin er enn merkilegri þegar litið er til þess að Euro NCAP tók upp nýtt og strangara árekstraprófunarkerfi árið 2009. Nýja prófunin samanstendur af fjórum þáttum, sem eru öryggi fullorðinna farþega, öryggi barna í bílnum, öryggi vegfarenda og öryggisaðstoð, sem er nýr þáttur. Einkunnir eru einnig gefnar fyrir þætti sem draga úr meiðslum og óhöppum, svo sem áminningar fyrir sætisbelti, ESP-búnað og hraðatakmarkanir. Þess vegna verður erfiðara að fá fimm stjörnur með hverju árinu sem líður.
Lexus CT 200h fékk 94% fyrir öryggi fullorðinna farþega, 84% fyrir öryggi barna í bílnum, 55% fyrir öryggi gangandi vegfarenda og 86% fyrir öryggisaðstoð.
Í umsögn Euro NCAP um flokk fyrir öryggi fullorðna farþega kom fram að CT200h fékk hæstu einkunn fyrir höggprófun með hliðarárekstri, að hnéloftpúðar veita góða vörn fyrir ökumann og farþega í framsæti og að vörn gegn sveifluáverkum er mjög góð. Bíllinn fékk frábærar einkunnir fyrir vörn gegn aftanákeyrslum, þökk sé WIL-tækni Lexus fyrir sæti (Whiplash Injury Lessening, sæti hönnuð gegn hálshnykk).
Höfuðpúðarnir í WIL-kerfinu eru hannaðir til að vera eins nálægt höfði farþega og hægt er við venjulega notkun. Við aftanákeyrslur sekkur búkurinn auðveldlega ofan í sætið og lokar þannig bilinu á milli höfuðs farþega og höfuðpúðans og dregur þar með úr hættu á meiðslum vegna hálshnykks.
Í prófun á öryggi barna í bílnum fékk CT 200h góðar einkunnir fyrir 18 mánaða börn og þriggja ára börn. Í flokknum fyrir öryggi gangandi vegfarenda kom í ljós að stuðarinn varði fætur vegfarenda vel og fékk fullt hús stiga frá Euro NCAP.
CT 200h er hannaður til að veita hámarksöryggi við allar aðstæður, með sterkbyggðri höggdeyfandi yfirbyggingu og alhliða vörnum gegn árekstrum og ákeyrslum.
Nýi Lexus bíllinn er eini bíllinn í sínum flokki sem, auk hinna átta stöðluðu loftpúða, er búinn hnépúðum fyrir bæði ökumann og farþega í framsæti. Hnéloftpúðarnir þenjast út frá neðanverðu mælaborðinu um leið og loftpúðarnir að framanverðu til að minnka meiðsli sem hljótast af höggi á stýri og neðanvert mælaborð. Púðarnir geta einnig minnkað brjóst- og höfuðmeiðsli með því að draga úr mjaðmahnykk og snúningi búks við harðan árekstur.
CT 200h er einnig fyrsti hágæða bíllinn í sínum flokki sem inniheldur árekstraöryggiskerfi (PCS) sem valfrjálsan aukabúnað. Kerfið stillir sætisbelti í framsætum og hemla til að draga úr skemmdum og meiðslum við árekstra og hemlar sjálfkrafa ef árekstur er óhjákvæmilegur. Sjálfvirkur hraðastillir (ACC) aðlagar hraða CT 200h sjálfkrafa að hraða bifreiðarinnar á undan.
Uppfært rafstýrt endurnýtanlegt bremsukerfi (ECB-R), sem er staðalbúnaður, inniheldur ABS-hemlakerfi, hemlunarhjálp, spólvörn (TRC) og stöðugleikastýringu (VSC).