FRÉTTIR
Kostun Lexus á Opna breska meistaramótinu 2010
Á 150 ára afmæli Opna breska meistaramótsins mun keppnin snúa aftur á Heimavöll golfsins. Árið 2010 verður meistaramótið haldið í 28. skipti á St Andrews síðan 1873. Á þeim tíma hafa 22 golfleikarar farið með sigur af hólmi. Árið 2010 verður einnig hin fræga 17. hola, „Road Hole“, sem mögulega er frægasta golfhola heims, lengd í fyrsta sinn í yfir 100 ár.
Tom Watson, sem átti stórkostleg tilþrif á Opna breska á Turnberry á þessu ári, en varð að lúta í lægra haldi fyrir Stewart Cink í umspili, hefur sagt að mótið 2010 verði líklega hans síðasta.
Lexus, sem opinber verndari og veitandi bifreiða Opna breska meistaramótsins, getur boðið gestum að njóta einstakrar gestrisni frá 15. til 18. júlí. Hátíðatjald verndarans fyrir gesti sína mun verða á besta stað, með útsýni yfir völlinn.