FRÉTTIR
Lexus innköllun
5 Júlí 2010
Tilkynnt hefur verið um innköllun á nokkrum gerðum Lexusbifreiða vegna ventlagorma sem valdið geta gangtruflunum. Skráðar hafa verið um 200 kvartanir vegna þess á heimsvísu og hefur því verið ákveðið að innkalla 275.000 bíla, þar af 18 á Íslandi.
Búið er að hafa samband við eigendur viðkomandi bíla hér á landi og verður gert við bílana á næstunni, eigendum að kostnaðarlausu. Þær gerðir Lexusbifreiða sem kallaðar eru inn hér á landi eru GS 450h, LS 460 og LS 600h.
Innköllunin nær ekki til annarra gerða af Lexus hér á landi.
Vinsamlegast hafið samband við söluaðila Lexus á Íslandi í síma 570 5400, ef einhverjar spurningar vakna.