Aftur í Um Lexus

FRÉTTIR& VIÐBURÐIR

FRÉTTIR

Lexus innköllun

25. febrúar 2011

Tilkynnt hefur verið um innköllun á  Lexus RX 300, 330, 350 og 400h. Framleiðslutími 10. febrúar 2003 – 26. Júlí 2006.

Skipta þarf um festingu fyrir gólfteppi hjá bílstjóra vegna þess að upp hafa komið 3 tilfelli Bandaríkjunum þar sem talið er að gólfteppið hafi hindrað að bensíngjöf gangi eðlilega til baka. Engar tilkynningar hafa borist um slys vegna þessa.  Fjöldi bíla sem kalla þarf inn á Íslandi er 276.

Í innkölluninni verða festingar athugaðar og nýjar settar í ef þurfa þykir, eiganda bílsins að kostnaðarlausu.  Haft verður samband við eigendur bílanna um leið og íhlutir liggja fyrir.

Í framhaldi af þessu verður skipt um teppalista á gólfi bílsins og verða bílarnir kallaðir inn aftur þegar hönnun og framleiðslu listans er lokið.