Aftur í Fréttir og viðburði

FRÉTTIR& VIÐBURÐIR

FRÉTTIR

Lexus L-finesse 'kristallaður vindur'

Listsýning Lexus á hönnunarvikunni í Mílanó

Lexus snýr aftur á hönnunarvikuna í Mílanó árið 2009 með listsýningu sem ber yfirskriftina Lexus L-finesse 'kristallaður vindur'. Með 'kristölluðum vindi' endurtúlkar Sou Fujimoto, byltingarkenndur japanskur arkitekt, tvíbendni hönnunarheimspeki Lexus, 'L-finesse'. Lexus-rýmið sýnir vélunninn og mótaðan akrýl-listmun, byggðan á Lexus LF-A, hugmyndasportbifreið Lexus með ofurmiklu afköstin, jafnt sem húsgagn sem sérstaklega er hannað fyrir Lexus og byggt úr akrýl.

Sýningin stendur yfir frá 22. til 26. apríl í Museo della Permanente listasafninu í Mílanó meðan á heimsins stærstu hönnunarsýningu, Salone del Mobile di Milano, stendur. Lexus hefur tekið þátt í hönnunarvikunni í Mílanó síðan 2005, í þeirri fullvissu að með því að fylgja eftir L-finesse skilaboðunum gegnum mismunandi listamenn og svið, fáist fram nýir staðlar og farið sé út fyrir hefðbundnar hugmyndir. Á þessu ári markar þátttaka Lexus þau tímamót þegar hefðir og nýsköpun í hönnun eiga samleið.

www.lexus-europe.com/milandesignweek