ÁTTUGASTA ALÞJÓÐLEGA BÍLASÝNINGIN Í GENF
02. - 14. mars 2010
Tímamótabíllinn Lexus CT 200h, fyrsti lúxussmábíllinn með Full Hybrid kerfi, verður frumsýndur á Alþjóðlegu bílasýningunni í Genf. Hinn kraftmikli CT 200h, sem knúinn er Lexus Hybrid Drive, ögrar daglegum venjum með framsækinni hugsun.
Fyrir utan frumsýninguna á CT 200h mun Lexus tefla fram öllu sínu úrvali af Full Hybrid lúxusbílum í Genf: RX 450h, GS 450h og LS 600h L.
Lexus LFA mun deila sviðsljósinu með þeim. Þetta er þaulhugsaður ofurbíll, engum öðrum líkur og hannaður með framúrskarandi akstursupplifun í huga. Hinn afkastamikli IS F sportbíll og hinn lokkandi IS 250C blæjubíll fullkomna síðan Lexus-úrvalið við þetta tækifæri.
Aftur í Um Lexus