ALÞJÓÐLEGA BIFREIÐASÝNINGIN Í FRANKFURT – NÝTT UPPHAF HJÁ LEXUS

17. - 27. september 2009

Lexus eru tilbúnir til að afhjúpa hinn byltingarkennda og fyrirferðarlitla hugmyndabíl, LF-Ch, á hinni virtu sýningu í Frankfurt í ár. LF-Ch er knúinn með Full Hybrid og markar nýtt upphaf hjá Lexus þar sem hann er yngri, djarfari og kraftmeiri en nokkur Lexus-bíll hefur áður verið.

Lexus, sem sýna skuldbindingu sína við tvinntæknina, munu í Frankfurt sýna alla línu sína af lúxus-tvinnbílum, sem eru leiðandi á heimsvísu. RX 450h, sem nýlega var hleypt af stokkunum, með 299 DIN hö. og 148 g/km af CO2, gæða tvinnfólksbíllinn GS 450h, með auðkennandi umbætur í hönnun og LS 600h, flaggskip lúxustvinnbílanna, sem inniheldur umtalsverðar umbætur fyrir 2010.

Lexus sýna einnig með stolti nýju gerðina, IS 250 F-Sport, sem fær mörg hönnunareinkenni sín frá hinum ofurafkastamikla IS F sportfólksbíl. Hinn heillandi IS 250C sportblæjubíll fullkomnar síðan hina spennandi uppstillingu gerða í Lexus-básnum.

Aftur í Um Lexus
top image