TÆKNI
Í hverju skrefi í átt markmiðsins um núll-mengun er Lexus knúinn áfram af skynvæddri notkun tækni. Nýsköpun og frumkvæði, svo sem léttvigtarhönnun, háþróað eldsneytisinnspýtingarkerfi, "hrein dísil" tækni, endurvinnslulausnir og Lexus Hybrid Drive leika öll sitt hlutverk í að hjálpa til við að takmarka hið aðkallandi vistfræðilega álag.
Lexus Hybrid Drive
Lexus Hybrid Drive sameinar á skynvæddan hátt bæði rafmagn og bensín í háþróaðan aflgjafa sem dregur stórlega úr mengun, eykur eldsneytissparnað og býður upp á hrífandi þýð afköst. Sem eini framleiðandi úrvalsökutækja með tvinnlínu, er Lexus í fararbroddi í átt að sparneytnari ökutækjum. Sem framleiðandi með áreiðanlegt orðspor í háþróaðri tæknihugsun er Lexus einnig leiðandi í sparneytnum ökutækjum sem veita friðsæla kyrrð, tilkomumikla frammistöðu og svörun.
Skynvæðing vélar
Bæði bensín- og dísilvélar munu halda áfram að vera ráðandi aflgjafar í ökutækjum næstu árin og því er Lexus að lyfta grettistaki í því að draga úr áhrifum þessara véla. Með því að endurskoða alla byggingu brunahreyfilsins, hefur Lexus þróað tækni eins og Breytilega ventlatímun með greind (VVT-i) sem eykur skilvirkni brunaferlisins, sem þýðir að minna eldsneyti er notað, og "hreindísil-" tækni. Dísilsvifryks- og níturoxíðsminnkunarkerfi Lexus (Diesel Particulate NOx reduction (DPNR)) notar nýjan fjórvirkan hvarfakút sem dregur úr losun svifryks og níturoxíða (NOx).
Lesa meira
Aftur í Umhverfi