ÚR SÉR GENGIN ÖKUTÆKI
Tilskipun Evrópusambandsins um úr sér gengin ökutæki takmarkar notkun þeirra efna sem gefa tilefni til áhyggna - sem svar við því notar Lexus fjölda blýlausra bifreiðahluta og tæringarvarnarefna, kvikasilfurslaus ljós og rofa, og asbestlaus núningsefni og vélarþéttingar.
Markmið ESB hvað varðar bifreiðaframleiðendur er að hægt sé að endurvinna 85% þyngdar ökutækja og endurheimta 10% orku fyrir 2015. Með þetta í huga hefur Lexus Japan þróað leiðir til að nota ákveðnar svampvörur sem finnast í leifum ökutækja til að skapa endurunnar hljóðeinangrunarvörur og einnig er hægt að endurvinna glerleifar til að gera úr flísar sem notaðar eru í landslagsgöngustíga.
Þegar úr sér gengin ökutæki hafa verð tætt til að vinna úr þeim öll nýtanleg efni eru leifarnar bræddar í sérlega litlar einingar til landfyllingar, sem dregur þar með úr umhverfisáhrifum af því að urða efni.
Aftur í Umhverfi